Vikan - 20.12.1962, Síða 39
fótrofa.
Hreyfillinn er að talsverðu leyti
gerður úr alúmíni, og átakið fyrst
og fremst á framhjólunum, en nú
eru stöðugt fleiri bílaframleiðend-
ur að taka upp þá tilhögun. Þeir
hjá Citroen tóku hana upp árið 1927.
Margir hafa átt erfitt með að
viðurkenna þær breytingar, sem nú
hafa verið gerðar á yfirbyggingu
Citroenbílsins, en þó er það alltaf
að koma betur í ljós, að einnig þar
eru framleiðendur hans á undan
tímanum.
LANCIA.
Af evrópskum bílum er það
vafalaust Lancian, sem á lengst í
land með að njóta verðskuldaðrar
viðurkenningar. Þetta er hinn á-
gætasti bíll, en orsökin er sennilega
sú, að kostir hans eru fyrst og
fremst þess eðlis að þeir láta lítið
yfir sér, en koma því betur í Ijós
þeear á reynir.
Ég vil leyfa mér að taka það
fram, að Lancia er ekki einungis
í fremstu röð bíla að tæknilegri
fullkomnun, heldur og að traust-
leika og vandaðri framleiðslu og
þægilegur og skemmtilegur bíll í
akstri.
Áhrif hinna ítölsku tízkumeist-
ara leyna sér að vísu ekki í yfir-
byggingunni frekar en á öðrum
ítölskum bílum, en Lancia er nú
framleidd í þrem mismunandi gerð-
um — Appia, Flamina og Flavia.
Hreyflarnir eru af gerðinni V-4 og
V-6 og Flavian er með framhjóla-
drifi og óvenjulega öruggum skífu-
hemlum á öllum hjólum.
Sérkenni gera engan bíl betri,
nema þau reynist þá eins vel og í
Lanciabílunum. Framhjóladrifið get-
urur haft óþægilega annmarka, en
í Lanciabílunum verður þeirra ekki
á neinn hátt vart, en hins vegar
koma þægindin af því að vera laus
við drifskaftið, mjög greinilega í
ljós.
Allur frágangur á Lanciabílunum
er og sérlega vandaður, einnig hvað
það snertir, sem „falið er milli
þilja“. Allt fellur slétt og vel, og
allur innbúnaður er mjög smekk-
legur og þægilegur. Sætin eru til
dæmis svo góð, að aðrir framleið-
endur mættu gjarna taka þau til
fyrirmyndar.
Fáum bílum hef ég ekið, sem
mér hefur fallið eins vel við — í
alla staði.
—0—
Þetta eru þá tíu beztu bílarnir
á mínum lista. En þar gildir hið
sama og um beztu knattspyrnu-
menn, þeir eru hver öðrum harla
ólíkir, þótt þeir skari fram úr, og
þannig er það um allt úrval. Og
þegar á allt er litið, er það ekki
aðalatriðið hvað veldur því að einn
er öðrum fremri, heldur hitt að
hann er öðrum betri og með þeim
beztu.
En eitt held ég mér sé óhætt að
fullyrða að ég hafi komizt að raun
um varðandi þetta, hvers vegna
sumir bílar skara fram úr öðrum.
í rauninni er sérhver slíkur bíll
draumur sem einum manni hefur
tekizt að gera að veruleika; manni,
sem setti takmarkið og stjórnaði
sókninni unz því var náð. Eins og
frábær skáldverk eru frábærir bíl-
ar til orðnir fyrir sköpunargáfu
eins manns. Engin framkvæmda-
nefnd, ráðgefandi aðstoðarmenn eða
rafeindaheilar geta komið í staðinn
fyrir sköpunargáfu einstaklingsins.
Þá er það önnur mikilvæg stað-
reynd, að þessir sömu einstakling-
ar hafa gert sér ljóst, að draumur-
inn verður aldrei fullkominn í
framkvæmd heldur krefst hans
stöðugra endurbóta. Það virðist
álíka óhyggilegt hvort heldur er,
að hagga þar engu frá fyrstu gerð
og að hverfa algerlega frá henni
og taka upp allt annað í hennar
stað.
Ég geri ráð fyrir að listi þessi
taki breytingum áður en langt um
líður, því að víða er mjótt á mun-
um, og margir bílar svo góðir, að
þeir eiga skilið að skipa ellefta
sætið — að minnsta kosti. ★
Kópavogskirkja.
Framhald af bls. 17.
því er sóknarpresturinn í Kópa-
vogi, sr. Gunnar Árnason, tjáði
okkur. .
Kópavogsbúar hljóta að fagna
þeirri bæjarprýði sem kirkjan
er og raunar njóta fleiri góðs af
fegurð hennar þar sem hún blas-
ir við af öllum nálægum slóðum.
Vonandi verður svona fagurt
guðshús til þess að auka kirkju-
sókn og áhuga fyrir starfi kirkj-
unnar, eða til hvers væri svona
fögur bvgging ella.
Sumir hafa látið í ljós þá
skoðun, að kirkjubyggingar eigi
ekki að vera nýtízkulegar, það
sé of tildurslegt. Það eigi að
byggja kirkjur eftir hinni einu
sönnu formúlu, sem notuð var
við bárujárnskirkjur í sveitum.
Það er hérumbil sama og að
biðja tímann að gjöra svo vel
að standa kyrran; stöðva þró-
unina. Hvað er sjálfsagðara, en
kirk j u byggingar séu börn
síns tíma? Þannig hefur það
alltaf verið. Engum dettur í hug
að endurbyggja Kölnardóm-
kirkjuna. Það yrði alltaf falskt.
Notre Dame í París, Stefáns-
dómur í Vín og Fæðingarkirkj-
an í Betlehem voru byggðar
eftir þeirri tízku sem þá var á
hverjum tíma. Nútímakirkja í
rómverskum eða gotneskum stíl
verður aðeins eftirlíking sem síð-
ari tímar taka ekki mark á.
Það sem gert er í fullri einlægni
eftir smekk samtímans, það fær
listsögulega þýðingu og stendur
um aldir, sé verkið gott.
GS.
Hestur - bíll - flugvél.
Framhald af bls. 3.
að félagsheimilunum um helgar eins
og lóuhópar, svífa til jarðar og lenda
mjúklega á „flugvélastæðinu“? Og
heimilisfaðir í Reykjavík skreppa
með konu og krakka á berjaheiði í
fjölskylduflugvél sinni?
Þetta er hvorki fjarstæðukennd-
ara né ólíklegra nú, en núverandi
bílaeign og bílanotkun landsmanna
var fyrir nokkrum áratugum. Það
er því alls ekki að vita nema þetta
eigi eftir að rætast. Erlendis er flug-
vélin að vinna á, jafnt og þétt, sem
einkafarartæki og koma mönnum
í stað bílsins, og sífellt eru að koma
á markaðinn flugvélar, sem ætlað-
ar eru til einkanotkunar. Enn eru
þær að vísu mun dýrari en bíllinn,
einnig í rekstri, en notagildið svo
margfalt meira, að menn setja það
ekki fyrir sig, hafi þeir á annað
borð þörf fyrir slíkt farartæki.
Hér má sjá eina slíka vél, „Dúf-
una“ frá de Havilland flugvélaverk-
smiðjunum. Hún er sex farþega, bú-
in öllum þægindum og öryggistækj-
um og knúin tveim hreyflum, 400
hestafla. Þykir hún hið þægilegasta
og hentugasta einkafaratæki, auk
þess sem hún er glæsileg útlits,
bæði á jörðu og í lofti.
Það væri ekki amalegt að bregða
sér norður að Mývatni um sumar-
helgi í „Dúfunni", á berjaheiði
vestur á fjörðu eða dansleik austur
á Hallormsstað----------
Og þetta kemur.
Boomerange og loft-
hreyfilögmál.
Framhald af bls. 3.
að koma aftur til þess, sem beitir
þeim, ef þau missa marks, en þó
mun þurfa nokkurt lag og æfingu
til þess að hann njóti sín. Sá eigin-
leiki byggist á flóknu atriði í sam-
bandi við lofthreyfilögmálið, og
reynist útfærsla þess svo hávísinda-
leg og nákvæm hjá þeim áströlsku,
að lærðustu sérfræðingar semja um
Klúbburinn
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og f jær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
VIKAN 39