Vikan


Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 4

Vikan - 21.02.1963, Blaðsíða 4
Verið migr NOTIÐ ^ANGASTER SNYRTIYÖRUR DAGKREM NÆRINGARKREM ANDLITSM J ÓLK ANDLITSKREM BODY MILK MAKE-UP STEINPÚÐUR LAUST PÚÐUR VARALITIR VARALITABLÝANTAR AUGNPOKAKREM AU GNHÁRALITUR AUGNSKUGGAR AU GN ABRÚN ABLÝANTAR KINNALITIR ÚTSÖLUSTAÐIR: Vcrzlunin Tíbrá, Laugavcgi, Tízkuskólinn, Laugavcgi 133, Hoitsapótck, Langholtsvegi, Gjafa- og snyrtivörubúðin, Bankastræti, Silfurbúðin, Vestmannaeyjum. Auglýsingar ... Vika mín. Viltu koma því á framfæri fyrir mig, að auglýstar verði fæðingar barna í blöðunum eins og tíðkast víða erlendis. Mér finnst þetta góð- ur siður og skemmtilegur. Kær, kveðja. Móðir. Athugasemd ... Kæra Vika. Þið spyrjið, við hvað ég sé hrædd, og hvað ég sé að fela. Þetta finnst mér skrýtin athugasemd. Ég fór auðvitað á þennan miðils- fund af því að ég var ekki laus við hjátrú, því að þá var ég ung og saklaus og datt ekki í hug, að það væru til svik og hrekkir, fór til að leita frétta af framliðnum, svo fallegt sem það er. Þessir líkamningar voru svo eðli- legir, alveg eins og ég hafði alltaf hugsað mér vofur og drauga. Ég var í þá daga mjög myrkfælin. Og þó voru augu mín ekki svo haldin, að ég sæi ekki í gegnum þetta. Það má nú segja, að þetta hafi verið kænlega útbúið hjá Láru — þetta voru hennar góðu hæfileikar. Svo fór ég til fleiri miðla, sem þóttust vera, og til kerlinga, sem þóttust geta látið anda koma í glas, og sum- ar skrifuðu ósjálfráða skrift -—- og allt reyndust þetta blekkingar og svik og vitleysa. Og hverju er það svo, sem þið eruð ekki fyllilega sammála? Ef ég hefði verið að fela, þá hefði ég ekki skrif- að neitt. Nú er ég orðin gömul kona og ekkert myrkfælin. Brilljantín ... Kæri Póstur. Við erum að rífast um það þrír, hvort það sé óhollt að nota brilljan- tín í hárið. Getur þú frætt okur um það? Kveðja. Þrír í vanda. Það ku vera skaðlaust að nota flestar tegundir brilljantíns á markaðnum, stundum jafnvel gagnlegt fyrir hárið — en auð- vitað er ofnotkun slíks eins og flests annars afar óæskileg. Smábréf til „Athuguls“ á Akureyri ... Kæri „Athugull". Þótt andsprengi holskeflustefn- unnar á Akureyri hafi lognazt nið- ur með útfiri dobbeltkvalanna, þá er engin forstaða til þess að þú grafir þér neinar vangaveltur. Schopenhauer gæti ekki hafa átt hundrað og fimmtíu ára sljóleika- afmæli, þótt þú haldir föstum skorðum í frelsissnobbið. Hin há- væga hugsjónageifla þín er til margborinnar hneysu. Auk þess er það mesti eintrjáningur, að gor- menni nútímans séu á einhvern hátt mergjaðri en gengur og hleypur. Vertu nú hagsæll og farðu í ritbind- indi þér til sjónarauka. Það þýðir ekki að velkjast á öfgaskerjum kunnáttuleysisins fyrir bí. Þú mátt ekki halda, að skilningsrætur góðs og ills séu margtraðkaðri en fagur- gali almenningsstefnunnar. Það hefur opinberlega verið yfir- drifið, að sprekalaust fjalastrengja í undurbrauði nær ekki nema kverkaslyddu og vel það. Með afspyrnukveðjum, Skarphéðinn Douglas Rasmussen. Kvenfólk ... Kæra Vika. Ég stalst til að lesa greinarnar „Ertu að leita að konu“ þó þær væru aðeins ætlaðar körlum eftir því sem sagt var. Ég var að reyna að sjá í hvaða flokki eða týpu ég væri, en gat nú alls ekki komizt að neinni niðurstöðu. Hann hefur kannski gleymt eins og einni týpu, höfundurinn? Bless, Dísa. — — — Hann hefur líklega gleymt „ÞEIRRI HNÝSNU“ — týpunni, sem stelst til að snuðra í því, sem henni kemur ekki við — til dæmis greinum fyrir karl- menn. Kæra Vika. Ég hafði gaman af greinunum í Vikunni um blessað kvenfólkið og gjarnan vildi ég fá meira af slíku efni. Ég er nefnilega alltaf að leita þó ekki sé ég búinn að eyða í það 800 þúsundum eins og höfundurinn. En hvernig er það, hefur honum ekki tekizt að ná sér í kvenmann sjálfum? Halldór Jónsson. --------Ekki get ég ímyndað mér það, þótt ég viti raunar ekki, hver þessi kvenfróði sómamaður er. En einhvern veginn virðist mér sem svo, að bókstaflega all- ar þessar kvennatýpur, sem hann telur upp, séu svo gallaðar, meira og minna, að honum væri vissu- Iega vorkunn, ef hann sæti uppi með eina. Auk þess hlýtur að vera heldur ömurlegt að eiga konu, sem aldrei getur komið manni á óvart. Þannig kona verð- ur ekki annað en maskína. En þessi fróði kvennamaður úthróp- ar sig sem allsvitandi um kven- þjóðina — og verði honum að góðu, ef hann nælir sér í ekta- kvinnu, ekki öfunda ég hann, svona takmarkalausan kvenna- speking. — Hann er greinilega búinn að ofkeyra sig, veslings maðurinn, orðinn 800 þúsund krónum fátækari, einskisnýtri 4 — VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.