Vikan - 21.02.1963, Page 5
ORIKK
þekkingu ríkari, utan hvað hann
fær líklega einhverja þóknun
fyrir að skrifa þessar greinar.
Sjúk ...
Hvernig í ósköpunum stendur á
því Póstur minn, að ég fæ aldrei
svar við bréfinu, sem ég sendi þér
í haust? Ég er þó búin að senda
þér tvisvar sama bréfið og fæ aldrei
svar við því. Er svona mikið að gera
hjá þér Póstur minn, eða hvað?
Færðu svona mikið af bréfum að
þú getir bara hreint alls ekki svar-
að því? Ef svo er, þá ætla ég nefni-
lega alveg að hætta að skrifa þér,
og skrifa heldur Fálkanum, því ég
er viss um að þeir telja ekki eftir
sér að svara fávísri sveitapíu og
góðum viðskiptavini. Kannski þeir
fái heldur ekki eins mörg bréf og
þú, og geti þá heldur gefið sér tóm
til að svara einu og einu bréfi.
Svarsjúk.
--------Þú ert liangt frá því að
vera ein um að fá ekki svar,
Svarsjúk mín, en til að hafa þig
góða, ætla ég að birta þetta bréf-
korn þitt — annars minnir mig,
að bréfin þín hafi verið svo
dónaleg, að ég hafi ekki getað
verið þekktur fyrir að birta þau.
Strætisvagnar ...
Kæri Póstur.
f haust birtir þú frá mér bréf,
þar sem ég bað Bílasmiðjuna og
SVR þess lengst allra orða, að forð-
ast að hafa vagnana of straumlínu-
lagaða í framtíðinni, svo maður
gæti staðið uppréttur aftast í þeim
vögnum, sem hafa stæði aftast. Síð-
an hafa komið nokkrir vagnar ný-
ir, og allir eru þeir hnarrreistari
aftan fyrir en þeir, sem ég kvartaði
undan. Það er svo sem ágætt —
en — allir þessir vagnar eru af
minni gerðinni, þar sem ekki er
stæði aftast, svo hækkunin á hús-
inu kemur engum til góða! Þetta
heitir að vísu að taka vel við ábend-
ingum, en verður þetta ekki gleymt,
þegar kemur að því að yfirbyggja
stóru vagnana næst. Farþegi.
Langt nef ...
Kæra Vika.
Ég hef svoleiðis nef, að það stend-
ur eiginlega beint upp í loftið og
opnast þangað. Og allir eru alltaf
að spyrja mig, hvort ég drukkni
ekki í sturtunni. Getur maður látið
snúa við á sér nefinu hérna heima
eða verður maður að fara til út-
landa til þess að láta laga þetta á
sér. Svo þakka ég þér fyrir allt
skemmtilegt og framhaldssögurnar.
Pétur H.
-----— Það er sosum hægt að
snúa við nefinu á þér hérna
heima, en ætli það verði ekki
heldur hrossalegar aðfarir. Þetta
ku vera gert með góðum árangri
ytra, en ekki nema í neyðartil-
fellum. En ef sturtuvandamálið
er það eina, sem hrjáir þig, finnst
mér naumast vert að vera að
gera sér neinar grillur. Þú getur
hara staðið á höndum, þegar þú
færð þér sturtu.
Allabaddarífransí? ...
Kæri Póstur.
í sumum sögum stendur, að fólkið
hafi farið út gegn um franska
glugga. Hvað þýðir það? Og um
daginn var ég í partýi, þar sem
nokkrir kallar voru að tala um
franska ást og hlógu mikið. Hvað
þýðir það? Dollý.
--------„Franskir" gluggar eru
opnanlegir gluggar með mörgum
smárúðum, oftast niður undir
gólf. Ég veit ekki til þess að
frönsk ást sé eitthvað frábrugðin
annars konar ást —- mennirnir
hafa bara svona einkennilegan
húmor.
Kindur ...
Hvað á ég að gera við því að ég
get ómögulega sofnað á kvöldin,
sama hvað ég reyni. Ég tel kindur
bæði afturábak og áfram, en alger-
lega tilgangslaust. Ef þessari taln-
ingu heldur áfram, þá verð ég bráð-
um að fá mér reiknivél í bælið.
En aldrei get ég sofnað fyrr en 2—3
á nóttunni, og þá er ég auðvitað
rotaður eins og hæna á morgnana.
Hænuhaus.
--------Það er ekki von að þú
getir sofnað, ef þú liggur og
rembist við að telja kindur
afturábak og áfram — það er
nóg til þess að halda einum manni
vakandi lengur en til hara 2 eða
3. Gallinn í tilfejlum sem þess-
um er oft einfaldlega sá, að menn
eru fyrirfram handvissir um, að
þeir geti ekki sofnað og byrja
að telja kindur og annað ámóta
bjánalegt, um leið og þeir loka
augunum. Lang skynsamlegast er
að útiloka alla hugsun — það fer
minnst orka í það! -— Eru annars
hænur eitthvað „rotaðri" en önn-
ur dýr?
Glært —POLYTEX— til blöndunar í
— POLYTEX-málningu, gefur meiri
gljáa og auðveldar hreingerningu.
— POLYTEX— plastmálning
er mjög auðveld í meðförum
og ýrist lítið úr rúllu.
— Viðloðun er frábær á nýja
sem gamla málningu.
djöfn)
VIKAN 8. tbl. — g