Vikan - 21.02.1963, Page 22
Kvenleg fegurð hefur alltaf verið mikið til umræðu, og það
stundum svo, að mönnum hefur þótt nóg um. En það er eins
með hana og aðra fegurð, að hún gleður augað, og þótt annað
vaki ef til vill í veðri, er kvenfólk engu síður hrifið af —
eða gagnrýnt á — kvenlega fegurð en karlmenn.
Sú stétt kvenna, sem öðrum fremur hefur dregið að sér
fagrar konur, er leikkvennastétt. Frægar leikkonur hafa mótað
fegurðarsmekkinn á hverjum tíma og hann hefur breytzt eftir
því sem dísir kvikmyndanna hafa bryddað upp á fleiru.
Hér birtum við myndir af sex þekktum leikkonum, sem allar
hafa átt drjúgan þátt í að móta tízku og fegurðarsmekk hvers
tíma. Við höfum verið að velta því fyrir okkur, hver þeirra sé
Framhald á bls. 51.
„Blue Jeans“ hafa haldið innreið sína til Moskvu. Þessar bláu nankins-
buxur, sem eru svo vinsælar í Ameríku — reyndar orðnar næstum eins
mikið þjóðartákn í Bandaríkjunum og fáninn þeirra, Stars and stripes.
Rússnesk æska er engin undantekning í því, að henni finnst þessar buxur
þægilegar íveru og gefa visst gildi, og eru svartamarkaðs prísarnir á
buxunum í Moskvu geypilega háir.
Þessi mynd er að vísu tekin í Moskvu, en stúlkan er frá Indonesíu.
Hún er ein þeirra mörg þúsund æskumanna, sem stunda nám í Moskvu.
Flestir þessara erlendu námsmanna eru frá vanþróuðu ríkjunum, en það
er í frásögur fært, að tala kínverskra nema í höfuðborg kommúnismans
hefur verið ört lækkandi síðasta árið.
THEDA BARA —var ímynd kven-
legrar fegurðar árið 1915. Fyrsta
bomba kvikmyndanna. „Lokkandi
varir, hvítar, heillandi axlir.“
MARY PICKFORD —„unnusta al-
heimsins" árið 1920. Lítil og hnellin,
hin gullna fegurð.
MARLENE DIETRICH — með Bláa
englinum varð hún átrúnaðargoð
bíógesta upp úr 1930. Mikill persónu-
leiki.
GRETA GARBO — fegursta kona
heims, ímynd kvenlegs yndisþokka.
Uppáhald bæði karla og kvenna.
INGRID BERGMANN — sló í gegn
um 1940 með sinni heilbrigðu og
ómáluðu fegurð.
AVA GARDNER — dökk á brún og
kynþokkafull, varð fyrirmynd
bandarískra kvenna —- og reyndar
fleiri.
ELIZABETH TAYLOR — hættuleg
og ekki of siðsöm kona, með dulda
sorg í sínum frægu augum.
AUDREY HEPBURN — strákslega
leikkonan. Hún gaf þeim nýja mögu-
leika, sem ekki höfðu of mikið af
hinum „kvenlegu" eiginleikum í
útliti.
GRACE KELLY — gaf gott for-
dæmi. Nú gátu konur verið frjálsar
og eðlilegar í fegurð sinni.
MARILYN MONROE — var í uppá-
haldi meðal karla vegna líkams-
vaxtarins. Konur dáðu hana fyrir
mýkt hennar og lipurð.
SOPHIA LOREN —- kynbomban,
sem varð að fegurðardís. andlit
hennar er þroskað, samræmt og
tjáningarfullt.
BRIGITTE BARDOT — ástmey ung-
linganna, blanda af sakleysi, hams-
leysi og kynþokka.