Vikan


Vikan - 21.02.1963, Síða 28

Vikan - 21.02.1963, Síða 28
KONUNGUR FRAMHALDSSAGAN 8. HLUTI Hazel Ruth Wade var tveimur árum yngri en Esther Johnson. FaSir hennar, Richard T. Wade, hafði einu sinni verið lögreglustjóri í Wichita i Ivansas, en hafði seinna setzt að á búgarði í Oklahoma, eftir að hafa kvænzt stúlku að nafni Leon- ora. Hún var svo heittrúuð, að liún bannaði honum að eiga byssur og setti þau skilyrði fyrir að giftast honum, að hann segði upp stöðu sinni í lögreglunni. Mörgum árum seinna hafði hún farið í skemmti- ferð á heimssýninguna í St. Lois og séð þar sýningu ísraelsmanna og fengið trúarrit þeirra með sér heim. Eftir lestur þeirra hafði hún skrif- að og beðið um fleiri upplýsingar. Ben konungur hafði scnt August Baushke til þess að snúa fjölskyld- unni til réttrar trúar. „Til hvers ertu að gróðursetja þessi eplatré?“ spurði Baushke fyr- irlitlega. „Heimsendir kemur eftir tvö ár! T>ú munt aldrei tína þessi epli, bróðir. Þú ættir heldur að flýta þér að ganga í söfnuðinn og bjarga þannig sjálfum þér og fjölskyldu þinni." Bóndinn og elzta dóttir hans, Edna, tóku þessu með nokkurri tor- tryggni. En Leonora Wade tók ísra- elstrúnni samstundis opnum örmum. Hún og þrjár aðrar dætur hennar, Hazel Ruth, Cleatus og Dorothy, og sonur hennar Hayden, fóru öll með skeggjaða trúboðanum til Bentqn Harbor árið 1904. „Mér er enn í fersku minni, þegar ég sá fyrst Hús Davíðs,“ skrifaði Hazel Ruth löngu seinna, en hún var tólf ára gömul þegar þetta var. „Við gengum fram hjá Jerúsalem og um súlnagöngin og grasflatirnar voru svo grænar og fallegar. Hljómsveit- in stóð þarna og spilaði við móttök- una og á tröppunum stóð Mary drotning og beið okkar. Svo kom Benjamín konungur út og gekk til hennar. Hann var hvítklæddur og hvítar dúfur svifu umhverfis höf- ■uð lians og settust á herðar hans. Mér fannst ég vera að ganga inn í Paradis!“ Faðir hennar og Edna komu á eftir þeim og reyndu að fá móður hennar til að snúa aftur heim. Ben Purnell lagði sig allan fram við að fá þennan uppgjafa lögréglustjóra til að ganga I söfnuðinn og tókst það næstum. Richard Wade seldi búgarð sinn og kom með peningana til Benton Harbor. En það var í um- ræðunum um fjármálin, sem Ben konungur tapaði þessum tilvonandi lærisveini sínum. „Edna dóttir min vill ekki ganga í söfnuðinn, hvað sem hver segir,“ sagði Wade við spámanninn síð- hærða. „Við eigum alls fjórtán þús- und dollara. Hve mikið finnst þér, að ég ætti að gefa Ednu?“ „Því viltu gefa henni eitthvað?" spurði Ben. „Jú, það er nú eins og það er,“ sagði Richard Wade og yppti öxl- um. „Maður reynir að safna ein- hverju saman handa börnum sin- um.“ „Þú meinar, sem þau fá þegar hann deyr?“ „Já.“ „Já, en ef þú hefur tekið hina sönnu trú, geturðu ekki dáið, bróð- ir. Því ættirðu þá að vera að gefa stúlkunni eitthvað?“ Þessi græðgi hins guðlega spá- manns gerði lögreglustjórann aftur tortrygginn, og hann hætti við að ganga i söfnuðinn. Hann leigði sér hús í Benton Harbor og bjó þar með Ednu dóttur sinni. Þegar konan hans heimtaði helming peninganna, lét hann hana fá þá, þótt hann vissi að þeir mundu samstundis verða af- lientir Ben konungi. Hann bjó í borginni í fimm ár og reyndi að fá Leonoru til þess að koma aftur til sin. En loks, 1909, gafst hann upp og fór burt úr ríkinu. Á þeim tíma, þegar Hazel var fjórtán ára, var hún tekin í Innsta hringinn. Hún flutti úr óhrjálegum bjálkakofanum, sem fjölskyldu liennar hafði verið fenginn til íbúð- ar, og í eitt af smáherbergjunum, sem voru umhverfis konungsbústað- in i Shiloh. Fyrstu nótt hennar þar kom Ben konungur og settist á rúm- stokkinn hjá henni. „Fellur þér vel að búa hérna, Ruth?“ „Já.“ Hún titraði af taugaóstyrk yfir að vera svona nærri þessari guðlegu veru. „Hefurðu verið að lesa hin heilögu rit?“ I-Iún játaði því. Hún hafði gengið í eina skólann, sem var f nýlend- unni, en þar voru trúarritin lesin upp fyrir börnin. „Hefur þér verið sagt eitthvað um blóðlireinsun?“ spurði hann blíð- máll. Þegar hún hristi höfuðið fór hann að útskýra það fyrir henni. En þegar hann ætlaði að fara að sýna henni það í verki og byrjaði að toga í náttkjólinn hennar, fór hún að gráta og ýtti honum frá sér. Hann yfirgaf hana þá, en þegar hann fór, læsti hann dyrunum á eftir sér. Næsta morgun tókst Hazel Ruth samt að sleppa út úr húsinu. Hún hljóp í gegnum skóginn að litla kofanum, sem móðir hennar bjó i. Með ekka og andköfum sagði hún henni livað hefði komið fyrir. „Þú munt brenna í Viti, ef þú segir þetta!“ sagði Leonora og sendi hin börnin burt, svo að þau heyrðu ekki samræðurnar. „Gerirðu þér ekki Ijóst, að Benjamin konungur er ekki dauðlegur maður? Hvernig gæti hann gert nokkuð jiessu líkt? Þú hlýtur að hafa fengið martröð! Nú vilég ekki heyra meira umþetta. Eg fer aftur með þig til Shiloh og þú gerir ]>að sein Benjamín konung- ur segir þér og hagar þér almenni- lega. Að öðrum kosti muntu brenna í eilífum eldi, þvi geturðu trúað!“ Eftir að móðir hennar hafði farið með hana nauðuga aftur i kvenna- búrið, hélt Hazel Ruth áfram að þrjózkast við kröfum Bens. Hann beið rólegur og reyndi að hafa á- hrif á liana með því að láta hana sjá, að allar hinar stúlkurnar voru fúsar til þess að láta að vilja hans. Hann lét eldri stúlkur vera i her- bergi með henni, og hann hreinsaði ineira að segja blóðið í öðrum stúlk- um að henni viðstaddri. En þegar nokkrar vikur höfðu liðið svo, að hún var enn ósnert, kom hann eitt kvöld inn í herbergið til hennar, skipaði öllum að fara út, reif síðan 28 ~ VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.