Vikan


Vikan - 21.02.1963, Page 31

Vikan - 21.02.1963, Page 31
Rhodes þríhyrmngurnm. • Framhald a£ bls. 25. eyjunni, á'ður en það væri of seint.“ „E-e-nú — svo að þér haldið hún þagnaði. „Já, ungfrú.“ „Svo það er það, sem þér hald- ið að muni gerazt!“ sagði Pam- ela seinlega. „En það getur ekki átt sér stað — hann mundi aldrei gera neitt slíkt . . . Hann er í rauninni svo geðfelldur maður. Það er allt þessum Chantry-kven- manni að kenna. H,ann mundi ekki — hann mundi ekki — gera.“ Hún þagnaði — þvi næst sagði hún lágri röddu: ,,Morð? Er það —- er það virki- lega o.rðið, sem þér hafið í huga?“ „Einhver hefur það í huga. Það ætla ég að segja yður.“ Það fór skyndilega hrollur um Pamelu. „Ég trúi því ekki,“ mælti hún. FIMMTI KAFLI. Atburðarásin um kvöldið 29. október var fullkomlega ljós. Hún hófst með háværri deilu milli þeirra tveggja — Golds og Chantrys. Málrómur Chantrys varð sífellt hærri og hærri og síðustu orðin, sem hann sagði heyrðu fjórar persónur — gjaldkerinn við afgreiðsluborðið, veitingahússtjór- inn, Barnes hershöfðingi og Pamela Lyall. „Bölvað svínið yðar! Ef þér og konan yðar haldið, að þið getið skellt allri skuldinni á mig, þá skjátlasf ykkur! Á mcðan ég tóri, mun Válentine halda áfram að vera konan min.“ Því næst hafði hann rokið út úr gistiliúsinu cldrauður af reiði. Þetta gerðist fyrir miðdegis- verðinn. Eftir miðdcgisverðinn köinust á sættir (enginn vissi, hver hafði komið þvi í kring). Valentine bauð Marjorie Gold i ökuferð i tunglskininu. Pamela og Sara fóru með þeim. Chantry og Gold léku hnattborðsleik. Að því loknu komu þeir inn i salinn, þar sem þeir voru fyrir, Hercule Poirot og Barnes hershöfðingi. Það niátti heita að þetta væri í fyrsta sinn, sem Chantry var hros- leitur og i góðu skapi. „Gekk hnattborðsleikurinn vel?“ spurði hershöfðinginn. „Ég ræð ekkert við þennan mann,“ sagði liöfuðsmaðurinn. „Hann vann með fjörutiu og sex stigum.“ Douglas Gold maldaði hæversk- lcga í móinn. „Hreinasta hundaheppni. Ég get fullvissað ykkur um það. Hvað má bjóða yður? Ég ætla að fara og ná í þjón.“ . Staup af einhverju brennivíni fyri’’ mig, þakka yður fyrir.“ „Allt i lagi. Þér hersliöfðingi?“ „Þakka yður fyrir. Ég ætla að fá cinn viský og sóda.“ „Ég lika. En hvað segið þér, hr. Poirot?“ „Þér eruð mjög vingjarnlegur. Ég vildi helzt fá kassiusaft." „Saft — ég bið afsökunar.“ „Kassiusaft. Það er sólberja- saft.“ „Ó, þér eigið við likjör! Ég skil. Væntanlega fæst það hér. Ég hef aldrei heyrt það nefnt.“ „Já, það fæst hér. En það er ekki Iíkjör.“ „Mér finnst þetta skritinn smekkur — en það verður hver að hafa það eins og honum sýnist! Ég ætla að fara og panta þetta.“ Chantry liöfuðsmaður tók sér sæti. Þó að hann væri ekki að eðl- isfari skrafhreyfinn eða mann- blendinn, reyndi liann sýnilega af beztu getu að vera andríkur. „Það er furðulegt, hvað maður getur vanizt þvi að koinast af, án þess að heyra neinar fréttir,“ mælti hann. Það rumdi í hershöfðingjanum. „Ekki get ég sagt, að fjögurra daga ganralt „Continental Daily Mail“ komi mér að rniklu gagni. Vitanlega er mér sent „The Times“ og „Punch“ vikulega, en þau eru svo skratti lengi á leiðinni.1 „Það væri fróðlegt að vita, hvort það verða almennar kosningar um þetta Palestinumál?" „Þetta hefur allt farið í handa- skolum,“ fullyrti hershöfðinginn, og i sama hili gekk Douglas Gold aftur inn i salinn og þjónninn kom á hæla honum með drykkjaf- föngin. Hersföfðinginn hóf að segja smásögu frá hermennskuárum sín- um á Indlandi árið 1905. Eng- lendingarnir tveir hlýddu hæ- versklega á, en þó líklega ekki af mikluin áhuga. Hercule Poirot dreypti á kassíusaftinni sinni. Hershöfðinginn kom nú að kjarna sögunnar og allir viðstadd- ir hlógu eins og skyldan bauð. í sama bili birtist kvenfólkið í salardyrunum. Þær virtust allar fjórar í sólskinsskapi, spjölluðu og hlógu. „Tony, elskan, þetta var alveg guðdómlegt,“ hrópaði Valentine um leið og hún lét fallast í stól við lilið hans. „Þetta var stórkostleg hugmynd hjá frú Gold. Þið hefð- uð átt að koma líka allir saman.!“ „Hvað segið þið um dálitla hressingu?“ sagði eiginmaður hennar. Hann leit spyrjandi á hinar. „Einiberjabrennivin fyrir mig, elskan,“ sagði Valentine. „Brennivín og engiferbjór,“ sagði Pamela. „Sömuleiðis," sagði Sara. ■ „Ágætt.“ Chantry reis á fætur. Hann ýtti sínu glasi, sem enn var ósnert, til konu sinnar. „Taktu þetta. Ég ætla að fá annað handa *V«*AV«* AV4AAV4A A-v á hættu, norður gefur. 8- 6-5-3 9- 4-3 D-9-8-3 9-2 A 9 y A-5 y 10-7-6-5-2 * D-G-8-7-3 Það er leikur í bikarkeppninni og mín sveit er að spila við topp- sveit að norðan. Ég sit hljóður í norðursætinu og hugsa um það, hvers vegna ég fæ aðeins mannspil á höndina, þegar ég spila keppnis- bridge. Ég segi eitt hjarta, sem gengur til vesturs, sem segir tvö hjörtu. Ég læt engan bilbug á mér finna og segi þrjá tígla, austur segir þrjá spaða og suður stekkur alla leið í fimm tígla. Þegar vestur doblar, flý ég í fimm hjörtu, en vestur lokar þessari sagnseríu með fimm spöðum. Suður spilar út hjartaás og síðan LAUFA ÞRISTI. Austur fær 11 slagi og mér til mikillar ánægju minnist ég þess að bíllinn minn er við dymar og skammbyssa í honum. Ég horfi ástúðlega á suður. Áður en ég skýt hann, ætla ég að segja: „Ég sagði tígul, makker“. Hálfleikur kemur og ég er spenntur að vita hvað mínir menn hafa gert á þetta spil. „Við kom- umst í fimm spaða, segir austur, en suður fórnaði í sex lauf“. „Góð sögn, segi ég við norðan- manninn, aðeins einn niður“. „Ég vann það“, sagði suður. „Vestur spilaði ekki út laufaás; hann spilaði út tígulkóng". Ég horfi ástúðlega á vestur og hleyp út í bílinn. Með óguðlegum hraða gríp ég byssuna og þá man ég að hún er óhlaðin. mér. Hvað viljið þér fá, frú Goíd?“ Gold var að hjálpa konu sinni úr yfírhöfninni. Hún sneri sér við og sagði brosandi: „Ef ég gæti fengið appelsínu- safa, þakka yður fyrir.“ „Alveg rétt. Appelsinusafa." Hann gekk til dyra. Frú Gold brosti til manns síns. „Það var svo dásamlegt. Ég vildi, að þú hefðir komið með.“ ,Það vildi ég líka. Við förum eitthvert kvöld, eigum við það?“ Þau brostu livort til annars. Valentine Chantry lyfti glasi sinu og tæmdi það. „Ó-ó!“ stundi hún. „Þetta var það, sem ég þurfti.“ Douglas Gold lagði frá sér yfir- höfn konu sinnar á legubekk. Um leið og hann kom aftur til liinna, spurði hann hvasst: „Halló, hvað er að?“ Valentine Chantry lá aftur á bak i stólnum. Varir hennar voru bláar og hún liélt hendinni á hjartastað. „Ég er eittlivað svo undar- leg - • .“ Hún saup hveljur og barðist við að ná andanum. Chantry kom nú aftur inn og hraðaði sér til konu sinnar. „Halló, Val, hvað er að þér?“ „Ég — ég veit ekki . . . þetta, sem ég drakk — það var eitthvað skritið á bragðið." „Einiberjabrennivínið?" Chantry þrútnaði i framan og snerist á hæli. Ilann þreif í öxl- ina á Gold. „Þetta var mitt glas . . . Gold, livern djöfulinn hafið þér látið í það?“ Douglas Gold starði á afmyndað andlit kvenmannsins i stólnum. Hann var orðinn náfölur. „Ég — ég — hef ekkert . . .“ Valentine Chantry seig niður á stólinn. Barnes hershöfðingi hrópaðl upp: „Náið í lækni — fljóttl" Fimm minútum síðar var Valen- tine Chantry liðið lík . . . SJÖTTI KAFLI. Daginn eftir fór enginn i sjó- inn. Þegar Pamela Lyall kom niður um morguninn, föl i andliti og klædd óbrotnum, dökkum búningi, rakst hún á Hercule Poirot i for- salnum og dró hann að sér inn í litla skrifstofu. „Þetta er óttalegt!“ sagði hún. „Hræðilegt! Þetta sögðuð þérl Þér sáuð það fyrir! Morð! “ Hann hneigði höfuðið alvarleg- ur í bragði. „Ó!“ hrópaði hún og stappaði fætinum i gólfið. „Þér hefðuð átt að afstýra þessu! Einhvern veginn! Það hefði mátt koma í veg fyrir það!“ „Hvernig?“ spurði Poirot. Það stjákkaði í henni snöggvast við þessa spurni ngu. „Gátuð þér ekki leitað til ein- hvers — til lögreglunnar ...?“ „Og sagt hvað? Hvað er hægt að segja — áður en atburðurinn ger- VIKAN 8. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.