Vikan


Vikan - 21.02.1963, Qupperneq 46

Vikan - 21.02.1963, Qupperneq 46
ar kynsystur hennar. Að fólk lifi saman fyrir giftingu virðist vera orðin þjóðarsiður liér og skal eng- inn dómur á það lagður, hvort það er eðliiegt eða ekki, en lauslæti má fullyrða að sé injög óheppilegt Auk þess er það ekki liklegt fyrir stiilku, til að ávinna sér virðingu karlmanna. Nokkuð er um það, að menn sitji og drekki Iieilu dansleikinia og fari svo fullir í forstofur að reyna að ná sér í kvenmann til fylgilags við sig. Þó ótrúlegt sé tekst þetta furðulega oft og segir mikið um sjálfsvirðingu kvennanna sem i hlut eiga, að þær skuli yfirleitt nokkuð vilja við menn tala, sem ekki virtu þær viðlits fyrr en dans- leiknum var lokið. Slíkir hættir hæfa ekki siðuðu fólki, heldur nautgripum og hundum. Einn af þeim leiðu siðum, sem margir ungir menn hafa, er að koma ekki inn í hús til að sækja stúlkur sem þeir fara út nieð, held- ur flauta fyrir utan og biða þar. Þetta er herfileg framkoma og versti dónaskapur. Þætti mér ekki óeðlilegt. að foreldrar neituðu þvi að dætur jieirra hefðu félagsskap við slíka menn, ef stúlkan hefur ekki rænu á því sjálf. Svo er þó komið á ótrúlega mörgum heimil- um, að afkvæmin fara alveg sínu fnam og hafa vilja foreldranna að engu. Ef gengið er gegn vilja þeirra hóta þau að flytja að heiman og það nægir venjulega til að beygja foreldrana. Þetta afleita ástand er ekki hægt að skrifa á reikning ung- linganna, heldur foreldranna, sem Iétu þetta byrja i fyrsta lagi. Eitt af því sem er orðinn mjög mikill þáttur í lifi ungs fólks er notkun vins og mjög stór hluti þess umgengst Vinið á alveg sama hátt og alltaf liefur tiðkazt hjá frumstæðum þjóðum, sem sé með fullkomnu óhófi. Fólk skilur alltof sjaldan að vínið er lítils virði sem skemmtun i sjálfu sér. Það getur hins vegar verið ómetanleg upphót á skemmtanir, þegar það er rétt notað. Fólk virðist alls ekki gera sér grein fyrir að það verður ekki skemmtilegt á þvi að vera fullt. Hins vegar er talsverð hætta á að l>að verði sér til skammar og öðr- um til Ieiðinda. Þetta hefur að visu verið sagt oft áður og enginn virðist hafa hlustað, en mér finnst ástæða til að minnast á það eigi að siður. Að tala uin áfengislaust land er skortur á raunsæi og þarf ekki mikla söguþekkingu til að sjá það. Það er ekki svo langt síðan að áfengisbann var hér, að menn ættu að inuna að slikt verkar ekki. Það er því miklu meiri ástæða til að segja fólki eitthvað um hvernig hægt er að hafa ánægju af áfeng- inu á sem hættuminnstan hátt, frekar en að berjast gegn þvi. Hér mun því verða rætt um áfengi sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut, sem getur verið hættulegur, ef rangt er með hann farið. Þó að mikið sé um hílslys, hef ég ekki heyrt um það talað að hanna ætti bíla vegna þess. Við skulum nú ræða hinar ýmsu tegundir áfangis og byrja á bjórn- um. Okkar vísu löggjafar hafa að visu ekki talið óhætt að leyfa okk- ur að drekka bjór og eru færð gegn þvi ýmis fáránleg rök. Þrátt fyrir þetta er mikið drukkið hér af bjór, sem á ólöglegan og löglegan hátt kemur inn í landið. Þykir það yfir- leitt hið mesta hnoss, ef mönnum tekst að eignast bjór og umgengst fólk hann yfirleitt eins og fágætt hnossgæti. Þetta stafar af því að erfitt er að fá hann og einnig batn- ar hann til muna við það að vera ólöglegur. Sannleikurinn er sá að bjór er hvorki sérlega góður drykkur né hollur. Hentar hann oft vel með mat, en er annars fyrst og fremst viðeigandi fyrir karlmenn. Erlendis er það yfir- leitt ekki talið kvenlegt að drekka bjór, auk þess sem það er líklegt til að hafa slæm áhrif á vaxtar- lagið. Ilvað því viðkemur að nota bjór þegar fólk er að skemmta sér, verður ekki annað sagt en að það sé óheppilegt. Ef menn verða ekki saddir áður en þeir verða fullir, er hælt við að þeir verði leiðinlega fullir og heilsan daginn eftir hræði- leg. Yfirleitt hefur bjór þau áhrif á kvenfólk, að það verður syfjað og geðvont, auk þess sem bjórlykt af fagurri mey, er allt annað en dásainleg. Létt vín, þegar þau eru notuð rétt, eru sennilega lientugustu og skemmtilegustu vinin. Þau eru fyr- ir fólk sem ekki er að flýta sér og má vera að því að njóta lífsins. Vinið getur verið töfrandi, það opnar augun fyrir fegurðinni, smátt og smátt, það gleður hjartað, ekki skyndilega, heldur hægt og liægt, þannig að maður verður betri maður og elskar lífið af hjarta. Konur sem kunna að meta vín eru þær sem ekki þýðir a'ð flýta sér við, konan sem skilur að hvort sem það er matur, vín, eða lífið sjálft, verður þess bezt notið, með þvi að taka það í litlum skömmtum og fara ekki of hratt. Létt vín á að drekka sitjandi, og engin skynsamleg afsökun til fyr- ir að drekka það standandi. Senni- lega er bezt að drekka það sitj- andi i hægindastól, með púða und- ir höfðinu. Cockteilar eru varasamir drykk- ir og ofmetnir. Þeir eru yfirleitt mjög sterkir, bæði að áhrifum og bragði, og telst til undantekn- inga ef þeir eru bragðgóðir. Cock- teilar leiða yfirleitt af sér að fólk verður hávært, fer að flýta sér og fær mikilmennskutilfinningu. Þvi iniður leiða þeir líka af sér að menn verða að drekka meira af cockteilnum, til að halda mikil- mennskutilfinningunni, og verða því enn háværari. Þegar kvenfólk drekkur cock- teila, endar það gjarnan með skelf- ingu. Eftir tvo verður stúlka geð- stirð og oft syfjuð, eflir fjóra verð- ur liún málgefin og liávær, og eft- ir átta til tíu er hún orðin blind- full, óstöðug í orðum og limaburði og oft klæmin og dónaleg. Sé þetta æskilegt þá drekkið fyrir alla muni cockteila, en varla mun siðað fólk hafa áluiga fyrir þessu. Ef kven- maður er enn sæmilega rólfær, eftir marga cockteila, eru miklar liluir til að hún verði skyndilega ástfangin í píanóleikaranum, eða að hún segi hverjum sem heyra vill að hún viti svo sem til hvers þú sért að reyna að fylla hana. Ég hef aldrei orðið þess var að kven- fólk yrði fallegra eða skemmti- legra á því að drekka cockteila og það sama á við um karlmenn, þó að yfirleitt liafi þeir ekki eins fer- leg áhrif á þá eins og kvenfólkið. Sterk vín, blönduð með vatni eða gosdrykkjum, eru ekki eins vara- söm eins og cockteilarnir. Þau eru fyrst og fremst viðeigandi sem karl- mannadrykkir. Það er altaf eitt- hvað ókvenlegt við það þegar stúlka gengur upp að bar og biður um tvöfaldan whisky og sóda, svo ekki sé talað uin ]iað ef hún biður um tvöfaldan asna eða brennivín. Það er lika hætt við að það fari i fínu taugárnar hjá karhnönnum, að sjá stúlku drekka gott wliisky blandað með engiferöli eða öðru álíka, en kvenfólk hefur mikla til- hneigingu til þess. Drekki það mik- ið af sterkum vinum hefur það tilhneigingu til að gráta, rífast og toga i hárið’ á karlmönnum. Yfir- leitt er það regla að aldrei skyldi neinn drekka sterk vín fyrr en á kvöldin og bezt henta þau fyrir karlmenn sem eru samankomnir einir, til að ræða sín áhugamál. Þá komum við að þeim drykk sem skemmtilegasta eiginleika hcf- ur alla drykkja, sem er konijak, og sleppum öllum likjörum og ýmsum sulldrykkjum, sem fundnir eru upp af hótelum i hitabeltinu. Þeir sem kunna að mela konijak, hafa yfir- leitt vit á að fara með það,.þannig að minni hætta er á að menn taki upp á einhverju fáránlegu. Konijak hefur þann eiginleika að gera karl- manninn öruggan og ungan og dregur fram lijá konunni hlýju, ástúð og jafnvel ástríður, án þess að þessu fylgi nokkur óheppilegur ákafi. Það er engin lcið að drekka koni- jak öðruvísi en siljandi og helzt á maður að vera algerlcga afslapp- aður. Konijak hefur þcnn indæla eiginleika að hægja á tímanum. Menn sannfærast um það að allt muni fara á bezta veg og fyrir öllu verði séð á réttum tíma. Ég efast þvi um að til séu nicnn sein flýta sér við að drekka konijak. Það er leitun á skemmtilegri tilfinningu en að sitja í góðum stól, halla sér aftur á bak og teygja úr sér, drekka koníjak og horfa um leið á fallega stúlku. Við skiljum nú við áfengið með þeim lokaorðum, að það getur ver- ið til inikillar skemmtunar, Jicgar það er notað af viti. Sé það ekki gert, getur það orðið til mikils Nivea inniheldur Eucerit — efni skylt húðlitunni — frá því stafa hin góðu áhrif þess. ÉG NOTA NIVEA EN ÞÉR? Núið Nivea á andlítið að kveldi: Þá verður morgunraksturinn þægilegri og auðveldari. Og eftir raksturinn hefur Nivea dásamleg áhrif. GOTT ER AÐ TIL ER NIVEA! Látið NIVEA fullkomna raksturinn. — VIKAN 8. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.