Vikan


Vikan - 21.02.1963, Qupperneq 49

Vikan - 21.02.1963, Qupperneq 49
^ BÚNAÐARBLAÐIÐ flytur bændum: Frásagnir af reynslu annarra bænda rið búskap, leiðbeiningar ráðunauta og vísindamanna, erlendar nýj- ungar, sem eiga við íslenzka staðhætti. 9 BÚNAÐARBLAÐIÐ er óháð stjórnmálum og stéttasamtökum. BÚNAÐARBLAÐIÐ er ómyrkt í máli og hefur hag bændastéttarinnar fyrir augum í skrifum sínum. ® BÚNAÐARBLAÐIÐ kemur út 12 sinnum á ári. Áskriftargjald er aðeins 150,00 krónur á ári. 9 Sá, sem gerist áskrifandi að VIKUNNI, fær BÚNAÐARBLAÐIÐ ókeypis. ® VIIÍAN kostar 250,00 krónur ársþriðjunslega. ÁSKRIFTARSEÐILL □ VIKAN □ BÚNAÐARBLAÐIÐ Nafn: .............................................. Hcimili: ........................................... Sýsla: ............................................. □ Greiðsla fylgir. □ Sendið póstkröfu. V I K A N — Skipholti 33 — Pósthólf 149 — Reykjavík. 1...............................................................1 reyndu að fá sem mest út úr frels- inu. Bertil sat með hrukkað enni yfir skýrslunum. Við og við blaðaði hann í bunka af minnisblöðum, og bar þau saman við skýrslurnar, leitaði að samhengi, og reyndi að finna leiðbeiningar út úr hinum ýmsu upplýsingum. Hann hætti aldrei fyrr en hann var búinn að grafast fyrir um ástæðu meinsins, hversu lengi sem það kunni að taka hann. Ef foreldrarnir færðu börn sín til hans, þá skyldi hann sannarlega ekki liggja á liði sínu og gera allt, sem í hans valdi stóð til þess að beina hugum barnanna á réttar brautir. Eina hljóðið, sem barst til eyrna hans var hið eðlilega hljóð frá „venjulegu barnasjúkrahúsi". Mestallt starfsliðið var farið heim fyrir löngu síðan og næturvaktin tekin við. Einstöku sinnum hvörfl- uðu að honum efasemdir um lækn- ana, sem unnu á sjúkrahúsinu. Fyrir þeim lágu aðeins endurteknar vana- rannsóknir, finna meinið, gefa með- ul eða skera upp, og senda svo börnin heim frísk og spræk, á meðan hann glímdi við völundarhús barns- sálarinnar, og átti í óendanlegum erfiðleikum. Olga var föl yfirlitum þegar hún greiddi Ieigubílnum, og gekk upp tröppurnar. Hún opnaði dyr biðstof- unnar, og sagði við Sofie, að nú gæti hún leikið sér að hverju, sem hún vildi, en á meðan skyldi hún reyna að finna pabba og mömmu fyrir hana. „Heldurðu að þú finnir þau?“ „Já, Sofie, ég finn þau, það máttu vera viss um.“ Mað ánægjuandvarpi gekk Sofie í áttina til fiskabúrsins, og horfði á fiskana stórum athyglisaugum. Þegar Olga kom út á ganginn var hún enn ekki viss um til hvors af foreldrum Sofie hún ætti fyrst að snúa sér. Hikandi gekk hún fram hjá skrifstofu Margit Wallers og hélt áfram til yfirlæknisins. Áður en henni gafst tími til þess að skipta m skoðun, var hún búin að banka á hurðina og gekk inn. Bertil leit á hana yfir gleraugun, og hugur hans virtist víðsfjarri, en allt í einu var eins og hann áttaði sig á því hver stóð frammi fyrir honum. Hann stóð skyndilega á fætur, og gekk í áttina til hennar, og var kvíði í hverju skrefi. „Ert þú hér? Það hefur þó ekk- ert komið fyrir Sofie?“ „Jú,“ svaraði Olga harðneskju- lega, „það má víst kalla það svo. Ég er hér komin í þeim erinda- gerðum að spyrja, hvort ekki er hægt að taka Sofie inn á barna- sálfræðideildina sem sjúkling. Ég get að minnsta kosti ekki afborið að horfa upp á sálarangist hennar lengur.“ „Sálarangist? Sofie? Segðu mér, kæra Olga, það er þó ekkert að þér?“ „Að minnsta kosti ekki eins mik- ið og er að Sofie.“ „Hvar er Sofie núna?“ „Hún stendur frammi í biðstofu og skoðar fiskana, og bíður eftir því að fá aðeins að sjá foreldra sína, jafnvel aðeins augnablik." „Setztu niður, Olga og segðu mér allt af létta.“ Olga sagði frá. Rödd hennar hækkaði og lækkaði á víxl, og hún fékk reglulega útrás á tilfinningum sínum. Með hverju orði varð andlit Bertils alvarlegra. „Skar hún virkilega símaþráðinn í sundur?“ „Já, hún skar hann í sundur til þess, að foreldrar hennar gætu ekki hringt og sagt, að þau ætluðu ekki að koma heim í kvöldmat." „Farðu inn til konu minnar, segðu henni það, sem þú sagðir mér, og á meðan fer ég fram og næ í Sofie,“ sagði Bertil með samanbitnar varir. Hann gægðist inn um gluggann á hurðinni að biðstofunni, eins og hann hafði svo oft áður gert til þess að sjá hvað litlu sjúklingarnir hefð- ust að, þegar þeir væru einir og út af fyrir sig. Þarna, hjá fiskakerinu, stóð dótt- ir hans, með litlu hendurnar sínar fyrir aftan bak, og talaði við fisk- ana. „Hugsið ykkur bara hvað þið eig- ið gott að vera svona margir saman. Þið þurfið aldrei að vera einir og yfirgefnir. Þið eigið mömmur og pabba og bræður og systur, og svo koma líka stundum mamma mín og pabbi minn inn til ykkar. Það er svo gott að tala við ykkur, því þið getið engum sagt hvað ég segi við ykkur. Ég get sagt ykkur hvað ég er alltaf leið og einmana. Þið vitið ósköp vel hvað þau hugsa vel um öll börnin hérna á spítalanum, en getið þið skilið af hverju þau vilja hugsa meira um þau en um mig? Ég er svo einmana, svo ægilega, voðalega einmana.“ Nú gat Bertil ekki lengur setið á sér. Hann flýtti sér inn í biðstof- una, og tók litlu telpuna í fang sér. „Elskan mín, elsku litla stúlkan mín, mikið var gaman að sjá þig hér. Ég var einmitt að hugsa hvað mig langaði mikið til að sjá þig.“ „Af hverju komstu þá ekki heim til mín?“ „Jú, sjáðu til, ég hef svo voða mikið að gera hérna á sjúkrahús- inu, því hér eru svo mörg lítil börn, sem líður svo illa. Veiztu það, að sum þeirra eiga enga mömmu og engan pabba, sem þykir vænt um þau eins og okkur mömmu þykir um þig, og þess vegna vil ég reyna að hjálpa þeim. Má ég það ekki?“ „Jú-ú,“ kom dræmt, „en þegar ég verð stór, þá ætla ég ekkert að VIKAN 8. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.