Vikan - 02.07.1964, Side 5
og þá eru þar efst á þaugi þætt-
ir Svarvars Gests, Sveins Ás-
geirssonar og svo ótal margir
fleiri þættir, sem of langt væri
upp að telja, þó er það einn mað-
ur, sem ég dái sérstaklega og
hugsa oft til, þó alveg sérstak-
lega klukkan 7 á morgnana, því
ég þarf að vakna snemma og nú
þarf ég varla vekjaraklukku, ég
vakna bara af tilhlökkun og
hoppa fram úr um leið og ég
heyri þessa dásamlegu rödd, sem
hefur alltaf eitthvað skemmtilegt
að segja landsmönnum. Ég veit
um marga sem hugsa líkt og ég.
Það væri gott ef útvarpið hefði
meira af slíkum ágætismönnum,
og þó ég segi fyrir mig, enginn
jafnast á við Jón Múla, annars
er ég líka hrifin af Stefáni Jóns-
syni, Það er röddin sem heillar.
Ekki meira lof.
Pálína frænka, Skagakróki.
Trúaratriði
Ég og vinkona mín vorum að
tala saman um vikudagana þegar
það kom upp að við vorum ekki
sammála um hvort sunnudagur
sé fyrsti eða síðasti dagur vikunn-
ar. Því biðjum við þig að leysa
vandann. í BIBLÍUNNI stendur
að hvíldardagurinn sé 7 dagur
vikunnar og í SJÓNVARPSDAG-
SKÁNNI stendur frá sunnudegi
til laugardags.
Þökkum allt gott.
H. og U.
— — — og viS hérna segjum aS
fimmtudagur sé fyrsti dagur
VIKUNNAR. Þetta er huggulegt
eSa hitt þó heldur. Ég veit ekki
hvernig þetta fer allt saman.
Líklega verSur viS aS hafa þá
reglu, að fara eftir því á hvaS
viS trúum bezt og mest: Sjón-
varpiS, VIKUNA — eSa Biblí-
una.
Og enn brennur
hraun...
Kæri Póstur!.
Gætir þú sagt mér, hvar hægt
er að fá bókina „Líkamsrækt
Jowett“, hvað hún kostar og
hvort hægt væri að fá hana
senda? Ég hef ekki orðið var við
hana í bókabúðum. Svo er hér
annað: Ég kaupi VIKUNA ekki
að staðaldri, en hef ágirnd á
nokkrum eintökum, sem ég
missti af. Þáu hafa að geyma
skáldaða frásögn af gosi miklu í
Bláf jöllum, eigi langt frá Reykja-
vík. Ég býst við, að þýðingarlaust
sé að spyrja, en er möguleiki á
að fá þessi blöð einhversstaðar?
Virðingarfyllst, Norðlendingur.
---------Um bókina getum við
ekki sagt neitt, því miður, og
vafalaust eina ráðið að spyrjast
fyrir hjá bóksölum.
Framhaldssagan „Brennur
hraun við Bláfjöll“, eftir G. K.
birtist í 3.-7. tölublað VIKUNN-
AR (bæði meðtalin) á þessu ári.
Reynandi er að hafa samband
við Blaðadreifingu, Laugavegi
133, sími 36720, til að fá það sem
vantar.
The Beatles
Kæri Póstur!
1 14. tbl. var beðið um heimils-
fang The Beatles. Heimilisfangið
þeirra er:
The Beatles,
c/o E. M. 1. House,
Manchester Square,
London W. 1.,
England.
Svo vona ég, að þið birtið þetta
bréf fyrir Beatles-aðdáendur.
Þakka gott lestrarefni.
Ein hjálpsöm.
P.S. Hvernig er skriftin?
---------Það er eiginlega föst
regla hjá okkur að birta aldrei
upplýsingar um heimilisföng eða
aðrar persónulegar upplýsingar
um frægt, þekkt eða alræmt fólk.
En vegna þess að við vorum fyrir
skemmstu með ýmsar slíkar upp-
lýsingar í viðtali við vin okkar
Ringó, gerum við undantekningu
í þessu tilfelli . . . og þökkum
upplýsingarnar.
P.S. Skriftin er ekki góð, því
miður.
— Varst það þú, sem skyrptir í
sveppasúpuna?
,,Aukið
með
prestolite
„THUNDERVOLT“
kertunum.
Sendum í póstkröfu.
prestalitE
TRANSISTOR-
KVEIKJUR
DINAMOAR
STRAUMLOKUR
HÁSPENNUKEFLI
og fleira.
ALTERNATORAR
KRISTINN GUÐNASSON H.F.
Klapparstíg 25-27 - Símar 12314 21965.
Uigufluð ii lund ullt
★
Notið fullkomnar vélar -
öpugga og reynda flugmenn
elzta starfancSi flugskóla
landsins
/