Vikan


Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 32
hUPKQp 5 stærðir af kæliskápum. 5 ára ábyrgð á fyrstikerfi. HOiVIJVIMlNJ 3 og 4 hellna elda- vélar með sérlega góðum ofni. Góðir greiðsluskilmálar. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú hefur tekið þér á hendur verk, sem er svo um- fangsmikið, að þú sérð hvergi fyrir endann á því. Þú getur þó glatt þig við að þó þú þurfir að leggja dag við nótt mun þetta verða þér til ómetanlegra hagsbóta er yfir lýkur. Na.utsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það skeður margt skemmtilegt í kringum þig þessa chgana. Það liggur einhver spenna í loí þeir sem kjósa rómantíkina fá nóg af henni. Þér gengur dálítið erfiðlega að koma fyrirætlunum þínum í framkvæmd. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þér hefur orðið eitthvert glappaskot á, reyndu samt að hressa þig upp og hrista af þér skömm- ustusvipinn. Þú færð óvenjugott tækifæri til að drýgja tekjur þínar. Þú ferð í ferðalag, sem félags- skapur, sem þú ert tengdur stendur fyrir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Ákveðin persóna hefur yndi af að láta þig finna, að hún sé yfir þig hafin. Núna á næstunni kemur fyrir atvik, sem gérir þér mun greiðara að um- gangast hana. Það verður nóg um ást, rómantík og skemmtanir fyrir þá sem þannig eru stilltir. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): eÞú skalt þiggja aðstoð félaga þíns, samvinna ykkar er til mikils hagræðis fyrir báða. Þú kemst á snoðir um óskemmtilegt mál og þarft að vera sérstaklega varkár til að verða ekkert við það bendlaður. Taktu ekki skjótar ákvarðanir. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Menn, sem voru mjög spenntir fyrir samvinnu við K S þig í ákveðnu máli virðast hafa gufað upp, svo þú verður að vera fljótur að hugsa ef þú ætlar ekki að tapa á öllu saman. Þú verður talsvert utan heimilisins og skemmtir þér prýðilega. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Kynning þín á nýju fólki kemur þér að miklum notum í vissu máli. Þú hittir gamlan kunningja af tilviljun, sem þú munt eiga nokkur samskipti við. Þú lendir í smá boði með nokkuð óvenjulegu sniði út af óvenjulegu tilefni. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Leitaztu við að vera jákvæður í starfi þínu, reyndu að vera ofurlítið raunsærri og óháðari öðrum. Þú hefur verið nokkuð þunglyndur undanfarið, en vegna þess að þú veizt ástæðuna, áttu betra með að kippa öllu í lag, en margir aðrir. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú skalt halda áfram að vinna að og fullgera áætl- ^ anir þínar í einrúmi áður en þú gerir þær opin- berar, það verður áhrifaríkast. Þú kemst að all- góðum kaupum og samningum á vissri eign. Vertu ekki mikið út á við. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Reyndu að hressa upp á einn vinnufélaga þinn, sem á 1 erfiðleikum. Þú leggur þér til nýtt áhuga- 'iqggpr mál, sem er dálítið tímafrekt. Vertu á verði gegn manni, sem býður þér félagsskap við sig, senni- lega hefur hann ekki hreint mjöl í pokahorninu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það eru gerðar miklar kröfur til þín á vinnustað, þú verður að leggja þig betur fram ef þú vilt komast eitthvað áfram. Kunningi þinn gerir þig áhyggjufullan, vegna bíræfinnar hugmyndar sinn- ar. Skemmtu þér eins og kostur er. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þér er ráðlegt að halda fast um budduna og gera engin viðskipti, sem beinlínis snerta fjármál. Þú ættir að láta að vilja einhvers, sem stendur nærri þér og slaka á eigin kröfum. Dveldu sem mest heima. Haltu boð fyrir kunningja þína. ZANUSSI Algjörlega sjálfvirk þvottavél með suðu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. 32 — VIKAN 27. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.