Vikan - 02.07.1964, Side 32
hUPKQp
5 stærðir af
kæliskápum.
5 ára ábyrgð
á fyrstikerfi.
HOiVIJVIMlNJ
3 og 4 hellna elda-
vélar með sérlega
góðum ofni.
Góðir
greiðsluskilmálar.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú hefur tekið þér á hendur verk, sem er svo um-
fangsmikið, að þú sérð hvergi fyrir endann á því.
Þú getur þó glatt þig við að þó þú þurfir að leggja
dag við nótt mun þetta verða þér til ómetanlegra
hagsbóta er yfir lýkur.
Na.utsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Það skeður margt skemmtilegt í kringum þig þessa
chgana. Það liggur einhver spenna í loí
þeir sem kjósa rómantíkina fá nóg af henni. Þér
gengur dálítið erfiðlega að koma fyrirætlunum
þínum í framkvæmd.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þér hefur orðið eitthvert glappaskot á, reyndu
samt að hressa þig upp og hrista af þér skömm-
ustusvipinn. Þú færð óvenjugott tækifæri til að
drýgja tekjur þínar. Þú ferð í ferðalag, sem félags-
skapur, sem þú ert tengdur stendur fyrir.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Ákveðin persóna hefur yndi af að láta þig finna,
að hún sé yfir þig hafin. Núna á næstunni kemur
fyrir atvik, sem gérir þér mun greiðara að um-
gangast hana. Það verður nóg um ást, rómantík og
skemmtanir fyrir þá sem þannig eru stilltir.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
eÞú skalt þiggja aðstoð félaga þíns, samvinna ykkar
er til mikils hagræðis fyrir báða. Þú kemst á snoðir
um óskemmtilegt mál og þarft að vera sérstaklega
varkár til að verða ekkert við það bendlaður.
Taktu ekki skjótar ákvarðanir.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Menn, sem voru mjög spenntir fyrir samvinnu við
K S þig í ákveðnu máli virðast hafa gufað upp, svo
þú verður að vera fljótur að hugsa ef þú ætlar ekki
að tapa á öllu saman. Þú verður talsvert utan
heimilisins og skemmtir þér prýðilega.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Kynning þín á nýju fólki kemur þér að miklum
notum í vissu máli. Þú hittir gamlan kunningja
af tilviljun, sem þú munt eiga nokkur samskipti
við. Þú lendir í smá boði með nokkuð óvenjulegu
sniði út af óvenjulegu tilefni.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Leitaztu við að vera jákvæður í starfi þínu, reyndu
að vera ofurlítið raunsærri og óháðari öðrum. Þú
hefur verið nokkuð þunglyndur undanfarið, en
vegna þess að þú veizt ástæðuna, áttu betra með
að kippa öllu í lag, en margir aðrir.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú skalt halda áfram að vinna að og fullgera áætl-
^ anir þínar í einrúmi áður en þú gerir þær opin-
berar, það verður áhrifaríkast. Þú kemst að all-
góðum kaupum og samningum á vissri eign. Vertu
ekki mikið út á við.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Reyndu að hressa upp á einn vinnufélaga þinn,
sem á 1 erfiðleikum. Þú leggur þér til nýtt áhuga-
'iqggpr mál, sem er dálítið tímafrekt. Vertu á verði gegn
manni, sem býður þér félagsskap við sig, senni-
lega hefur hann ekki hreint mjöl í pokahorninu.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Það eru gerðar miklar kröfur til þín á vinnustað,
þú verður að leggja þig betur fram ef þú vilt
komast eitthvað áfram. Kunningi þinn gerir þig
áhyggjufullan, vegna bíræfinnar hugmyndar sinn-
ar. Skemmtu þér eins og kostur er.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þér er ráðlegt að halda fast um budduna og gera
engin viðskipti, sem beinlínis snerta fjármál. Þú
ættir að láta að vilja einhvers, sem stendur nærri
þér og slaka á eigin kröfum. Dveldu sem mest heima.
Haltu boð fyrir kunningja þína.
ZANUSSI
Algjörlega sjálfvirk
þvottavél með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
32
— VIKAN 27. tbl.