Vikan


Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 8

Vikan - 02.07.1964, Blaðsíða 8
VIKAN HEINISÆKIR Þegar ég hringdi ! Ómar Ragnarsson, og mæltist til þess að VIKAN fengi að heim- sækja hann, var það guðve'lkomið. — En ég á ekki heima þar sem þið haldið, sagði hann. — Eg daft ofan af 12 hæð í Austurbrún 2 og alla leið niður í kjallara á Sörlaskjóli 86. Einhvernveginn snerist númerið við í koll- inum á mér, svo ég byrjaði á því að berja utan húsið númer 68 við Sörlaskjól. Þar var enginn anz, svo sneri ég mér að stúikubarni uppi á tröppunum og spurði hana, hvort hún vissi hvar Ómar Ragnarsson ætti heima. — Hann á heima í einhverjum kjallara, sagði barnið, og meira hafði ég ekki upp úr því. En að lokum hafðizt þetta, og Ómar tók á móti mér ásamt Jónínu dóttur sinni, tveggja ára gamqlli, og konu sinni, Helgu Jóhanns- dóttur. Jónína, sem kölluð er Ninna heima fyrir, leiddi mig beint til svefnherbsrgis og sýndi mér bróður sinn, Ragnar, 8 mánaða gamlan, rauðhærðan og að flestu leyti lík- an föður sínum. Hann brosti hýrlega og var ekkert feiminn. Jónína var hins vegar ekki alveg laus við feimni. Hún er líkari mömmu sinni, er Ijóshærð. — Það var orðið of þröngt um okkur inni á Austurbrún, sagði Ómar, — svo við leigð- um þá íbúð og tókum þessa á leigu í stað- inn. Og ég kann bara prýðilega við mig i kjallara. Maður sér vel tii krakkanna úti. Það gekk bara ekki nógu vel að teygja úr húsgögnunum, svo þau dygðu í þessa íbúð. ■O — Þetta verður um leið brúðkaupsmynd, sagði Ómar. — Hún gleymdist, nefnilega. Það er aðeins eitt, sem ekki stenzf: Þá voru börnin ekki fædd. Það er Ragnar litli, sem ekki er smeykur við þríhjólið. Það er gaman að fá að sitja fyrir framan systur, ekki hvað sízt, ef pabbi er nú kominn niður á gólf líka og geltir eins og hundur. 0 g — VIKAN 27. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.