Vikan


Vikan - 02.07.1964, Side 11

Vikan - 02.07.1964, Side 11
húsgögnin. Sloppurinn lá í hrúgu á gólfinu. Hún var steinsofandi, nak- in undir aðeins einu teppi. Bond horfði eins og f draumi á auðan koddann við hliðina á henni. Nei! Hann þreifaði eftir rofanum og slökkti Ijósin. Nú þurfti hann aðeins að skríða eftir gólfinu og inn í sitt eigið herbergi. Hann komst að rúm- inu og dróst upp á það. Hann rétti út blýþungan handlegginn og skellti honum á rofann við rúmið. Hann hitti ekki. Náttlampinn datt á gólf- ið og peran brotnaði. Með síðustu kröftum velti Bond sér á hliðina og lét svo svefnöldurnar lokast yfir höfði sér. Sjálflýsandi vísar klukkunnar í herberginu stóðu á hálf tíu. Klukkan tíu opnuðust dyrnar hægt. Háan líkama bar sem skugga- mynd móti upplýstum ganginum. Þetta var karlmaður. Hann hlaut að vera hátt f tvo metra. Hann stóð á þröskuldinum með kross- lagða handleggi og hlustaði. Þegar hann hafði hlustað nægju sína gekk hann hægt inn í herbergið og að rúminu. Hann rataði mjög nákvæm- lega. Hann laut áfram og hlustaði á rólegan andardrátt stúlkunnar. Eftir andartak lyfti hann hendinni upp að brjóstinu og þrýsti á rofa. Ljós með breiðum, mjúkum geisla kviknaði. Það var fest á manninn með belti yfir bringuna. Hann hall- aði sér áfram, svo að dauft Ijósið lýsti á andlit stúlkunnar. Aðkomumaðurinn rannsakaði andlit stúlkunnar í nokkrar mínútur. Með annarri hönd tók hann teppið frá höku hennar og dró það hægt niður að fótagaflinum. Höndin, sem tók af henni teppið, var ekki hönd. Þetta var stálkló á stálarmi, sem hvarf inn í svarta silkiermi. Þetta var gervihönd. Maðurinn horfði lengi á nakt- an líkamann og hallaði sér til og frá, þannig að Ijósið skein á all- an líkamann. Svo kom klóin fram aftur, lyfti teppinu upp af fótagaflinum og lagði það yfir stúlkuna. Stundarkorn stóð mað- urinn enn og horfði á sof- andi andlitið, svo slökkti hann á luktinni á brjóstinu og gekk hægt yfir herbergið í áttina þangað sem Bond svaf. Maðurinn eyddi lengri tíma við rúmið hjá Bond. Hann rannsakaði hvern drátt, hvern skugga á dökku, fremur ruddalegu andlitinu, sem lá, næstum í dauðadái, á koddanum. Hann horfði á æðarslögin í háls- æðinni og taldi þau og þegar hann hafði tekið teppið ofan af mannin- um, gerði hann það sama með svæðið umhverfis hjartað. Hann tók á handleggsvöðvum Bonds og lær- vöðvum og horfði hugsi á hulinn kraftinn í flötum kviðvöðvunum. Hann hallaði sér jafnvel áfram til þess að rannsaka líf og örlagalín- urnar í opinni hægri höndinni. Að lokum dró stálklóin teppið aft- ur upp að hálsi Bonds. Eina eða tvær mínútur stóð þessi hávaxna vera yfir sofandi manninum, svo sneri hún hægt við og hvarf út á ganginn og dyrnar lokuðust með daufum smelli. 14. KAFLl. - GERIÐ ÞIÐ SVO VEL. Rafmagnsklukkan í svölu, dimmu herberginu, inni í miðju fjallinu, sýndi hálf fimm. Útifyrir var annar kæfandi dagur á Crab Key. Á aust- urenda eyjarinnar héldu fuglarnir áfram að reisa hreiður sín eða veiða í grunnu vatninu. Flestir fugl- anna höfðu verið truflaðir svo oft á þessu ári, að þeir voru hættir við að gera sér hreiður. Á síðustu fá- einum mánuðum, hafði ófreskjan eyðilagt hreiðurbyggingar þeirra á hverri nóttu og brennt aðsetursstað- ina. Á þessu ári yrði ekki mikil fjölgun. Sumir fuglanna voru með hugleiðingar um að flytja til nýrra landa og margir höfðu dáið úr taugaóstyrk, sem grípur fuglaný- lendur, þegar þar rtkir ekki lengur ró og friður. Á hinum enda eyjar- innar, þar sem dritið á fjallinu leit út eins og jökultindur, höfðu skarf- arnir eytt deginum eins og vant var, með því að veiða fisk og borga eiganda sfnum og verndara hina daglegu únsu af dýrmætum áburði. Ekkert hafði truflað þeirra hreiðurgerð. Skarfarnir voru önn- um kafnir við að útbúa hreiður sfn. Bráðlega myndu kvenfuglarnir byrja að verpa þremur eggjum hver, og að meðaltali myndi fjölga f hverju hreiðri um tvo litla skarfa. Undir tindinum þar sem drit- vinnslan hófst, voru um hundrað svertingjar, menn og konur, að Ijúka dagsverkinu. Enn einu sinni höfðu fimmtíu rúmmetrar af driti verið grafnir út úr fjallshlíðinni og öðrum tuttugu fermetrum bætt við vinnusvæðið. Þar fyrir neðan leit fjallshlíðin út eins og vínekrur í fjallahlíðum Ítalíu, nema hvað hér var enginn vínviður, aðeins djúp- ar hillur í fjallið. Og hér var f stað- inn fyrir fenjauppgufunina annars staðar á eynni, sterk amoníakslykt og andstyggilegur, heitur vindur- inn þyrlaði stöðugt Ijósgulu rykinu í augu, eyru og nef þeirra, sem unnu að greftrinum. En verkafólkið var vant lyktinni og rykinu, þetta var auðvelt og heilsusamleg vinna. Þeir höfðu engar kvartanir fram að færa. Síðasti vagninn lagði af stað eftir teinunum niður hlíðina í átt- ina að kvörninni og skilvindunni. Það heyrðist í vælu og verkafólk- ið axlaði verkfærin og lallaði af stað niður að kofunum, sem var aðsetur þeirra. Á morgun kæmi hið mánaðarlega skip upp að fjallinu hinum megin, inn í höfnina, sem þetta fólk hafði hjálpað til við að byggja tíu árum áður, en hafði síðan ekki augum litið. Skipið þýddi nýjar vörur og ódýra skartgripi og þá yrði líka frídagur. Það myndi verða fljótandi romm, dans og ágæt slagsmál. Lífið var mjög gott. Yfirmennirnir voru líka ánægðir með tilveruna. Þeir voru allir Kín- negrar, eins og þeir, sem höfðu veitzt að Bond, Quarrel og stúlk- unni. Þeir hættu vinnu sinni og lögðu af stað til yfirmannabúðanna. Þeir þurftu aðeins að standa vakt- ir og sjá um útskipunina á morg- un, að öðru leyti væri frí. Einnig þeir mundu drekka og dansa og svo færu fram hin mánaðarlegu kvennaskipti. Nokkur „hjónabönd" frá síðasta frídegi myndu halda áfram í nokkra mánuði eða vikur, eftir smekk „eiginmannsins", en flestir hefðu frjálst val. Þeir gætu valið úr nokkrum af eldri stúlkunum, sem höfðu eignazt sín börn og voru nú komnar aftur „á markað- inn", en svo myndu einnig koma nokkrar nýjar, sem höfðu náð til- skildum aldri og væru nú í „fram- boði" í fyrsta sinn. Um þær yrði slegizt og blóð myndi renna, en að því loknu yrði lífið eins og vant væri næsta mánuð og hver maður hefði konu til þess að annast sig. Djúpt inn undir f jallsrótunum, fjarri lífinu á yfirborðinu, vaknaði Bond í sínu þægilega rúmi. Fyrir utan höfuðverk leið honum vel og fannst hann var vel hvíldur. Það var kveikt [ herbergi stúlkunnar og hann heyrði hana sýsla. Hann sveiflaði sér framúr, forðaðist að stíga ofan á brotin af lampanum, gekk yfir að klæðaskápnum og fór [ fyrsta sloppinn, sem hann festi hendur á. Hann gekk að dyrunum. Stúlkan hafði staflað sloppunum á rúmið og var að máta þá fyrir framan veggspegilinn. Hún var í mjög fallegum slopp úr himinbláu silki. Hann fór mjög vel við hörund hennar. Bond sagði: — Þetta er sá rétti. Hún snerist á hæl og greip fyrir munninn. Svo lét hún höndina síga. — Nú, það ert þú! Hún brosti við honum: — Ég hélt að þú myndir aldrei vakna. Ég hef mörgum sinn- um komið að líta á þig. Ég hafði ákveðið að vekja þig klukkan fimm. Hún er hálf fimm og ég er svöng. Getum við fengið eitthvað að éta? — Hvers vegna ekki? Bond gekk yfir að rúminu. Um leið og hann gekk framhjá henni tók hann um mitti hennar og dró hana með sér. Hann rannsakaði bjöllurofana. Hann þrýsti á hnappinn sem merkt- ur var herbergisþjónusta. — En hvað með hina hnappana? spurði hann. — Við skulum nota okkur þetta allt. Hún flissaði: — En hvað er „mani- curist"? — Það er handsnyrting. Það kem- ur maður og lagar á þér neglurnar. Við verðum að líta eins vel út og við getum, þegar við hittum dr. No. En það sem í rauninni vakti fyrir Bond, var nauðsyn þess að komast yfir einhverskonar vopn, og skæri væru betra en ekki neitt. Alit var betra en ekkert. Hann þrýsti á tvær bjöllur í við- bót. Hann sleppti stúlkunni og svip- aðist um í herberginu. Á meðan þau sváfu hafði einhver komið og fjar- lægt leifarnar af morgunverðinum. Á hliðarborðinu út við vegginn var bakki með drykkjum. Bond fór þangað og rannsakaði hann. Þar var allt. Milli flasknanna voru tveir matseðlar. Þeir gætu hafa verið frá Savoy Grill eða Tuttugu og eitt eða Tour d'Arugent. Bond renndi aug- unum yfir annan þeirra. Hann byrj- aði með Caviar double de Beluga og endaði með Sorbet a la Champ- agne. Og milli þessara tveggja rétta var hópur af réttum, sem geymd- ust mjög vel djúpfrystir. Bond henti frá sér matseðlinum. Það var ekki hægt að kvarta undan gæðum osts ins í þessari gildru! Það var barið að dyrum og May kom inn. Henni fylgdu tvær aðrar kínverskar stúlkur. Bond pantaði te og ristað brauð fyrir Honeychile og sagði þeim að laga hár henn- ar og neglur. Svo fór hann inn f baðherbergið og fékk sér fáeinar aspiríntöflur og fór í kalt steypibað. Svo fór hann aftur í kímanóinn, fann að hann var asnalegur ( honum og fór aftur inn [ herbergið. May spurði hann hvort hann vildi ekki vera svo vænn að velja það sem hann og frú Bryce vildu fá í kvöldmat. Hrifn- ingarlaust pantaði Bond kaviar, glóðarsteikt lambakjöt og salat. Þegar Honeychile neitaði að velja fyrir sig, valdi hann melónu, steikt- an kjúkling, á l'Anglaise og van- illuís með heitri súkkulaðisósu fyrir hana. Um leið og May fór sagði hún: — Doktorinn bað mig að spyrja, hvort korter fyrir átta væri heppi- legur tími fyrir ykkur? Bond svaraði kurteislega að það hentaði þeim prýðilega. — Þakka yður kærlega fyrir, herra Bryce. Ég kem þá að sækja ykkur korter fyrir átta. Bond gekk þangað, sem verið var að snyrta Honeychile við snyrti- borðið. Hann horfði á fingurna, sem voru önnum kafnir við hár hennar og neglur. Hún brosti ánægð [ spegilinn. — Láttu þá ekki gera þig alveg að fífli, sagði Bond og sneri sér svo að bakkanum með guðaveigunum. Hann blandaði sér sterka blöndu af visky og sóda og fór inn í sitt eigið herbergi. Þar fór von hans um að ná [ einhver vopn. Allt nýtilegt, skæri, þjalir og slíkt var fest við snyrtifólkið með keðju. Bond settist niður á óum- búið rúmið og gleymdi sér við drykkinn og drungalegar hugsan- ir. Snyrtifólkið fór. Stúlkan kom til hans. Þegar hann reisti ekki höfuð, fór hún aftur inn í sitt herbergi og skildi hann eftir. Þegar Bond fannst Framhald á bls. 48. VIKAN 27. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.