Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.07.1964, Qupperneq 12

Vikan - 02.07.1964, Qupperneq 12
EINKAUF efftip Nicolas Monsarrat — Ég skil aldrei við þig, James, sagði Marjorie Howgill. Það var einhver sjúkleg þreyta, sem ein- kenndi hjónaband þeirra, hugsaði James How- gill önugur; svo sjúkleg þreyta, að jafnvel þessi orð hennar, sem eðli sínu og aðstæðum sam- kvæmt, hefðu átt að vera þrungin tilfinninga- hita og viljafestu, létu ósköp og skelfing hvers- dagslega í eyrum. Marjorie, hugsaði hann enn, hún gæti þulið upp dauðasyndirnar sjö, rétt eins og hún væri að lesa garðyrkjuverðlista. James Howgill opnaði umslagið, sem hinn sérlegi boðberi færði honum. Fyrsta setningin, og karlmannsnafnið, sem blasti við augum í henni miðri, sló hann eins og háspennuraflost. Þau.sátu gegnt hvort öðru í þægilegri, kannski eilítið nosturslegri en einkar vingjarnlegri íbúð sinni í Lundúnum. Það hljómaði róleg dans- tónlist frá viðtækinu, valsstef; kötturinn lá við arininn og malaði; gangstéttirnar úti fyrir voru gljávotar af rigningarúða. Þannig hafði það verið í fullan áratug, hugsaði hann; „fyrirmynd- ar-hjónaband" þeirra hafði breytzt í elliheimilis- hjónaband, áratugum á undan áætlun. Og nú vildi hann, eins og hann var að enda við að segja henni, losna úr þessum leiðinda- viðjum, ekki af neinum sérstökum ástæðum — þar var ekki um neina aðra konu að ræða í eiginlegum skilningi — hann mundi einungis steindrepast úr leiðindum, ef hann ætti að búa við þetta stundinni lengur. Væri hann ekki kvæntur Marjorie, hugsaði hann — Marjorie, sem hafði breyzt úr ástríðu- heitri brúði í makráða ektakvinnu strax á fyrstu mánuðum hjónabandsins og ekki tekið neinum breytingum eftir það — ef hann væri ekki kvæntur henni, þá gæti svo farið að hann freistaði hamingjunnar með annarri, áður en það væri um seinan. Hann var þó ekki nema þrjátíu og fimm ára. En ef hann gerði ekki alvöru úr að losa sig úr viðjunum fyrr en seinna . . . Rödd hennar vakti hann af heilabrotunum. — Ertu í rauninni að segja mér satt, Jim? spurði hún. — Er ekki um neina aðra konu að ræða? Hann yppti öxlum, nennti varla að svara spurningunni. — Nei, var ég ekki að enda við að segja þér það? — Hvað á þá þessi vitleysa að þýða? Vitleysa, hugsaði hann, það var þá orðið yfir tærandi óánægju hans . . . — Ég vil einungis verða frjáls aftur, mælti hann. — Þetta er svo þrautleiðinlegt, að engu tali tekur. Við erum hvort öðru ekki neitt framar. — Það mundi ég ekki vilja fullyrða, maldaði kona hans í móinn. — En ég fullyrði það, sagði hann hranalega með vaxandi gremju í rómnum. Jafnvel á slíkri stundu hafði hún gersamlega vald á sér. Falleg, jú, það var hún, en leiðinleg, leiðinleg, leiðin- leg. Þau höfðu ekki skipzt á orðum, nema um hversdagslegustu hluti, árum saman, og hvað ástina snerti. — Það er ekkert eftir orðið af hjónabandi okkar. og þú veizt það, hélt hann áfram. — Þú þarft að taka þér gott sumarleyfi, það er það, sem þú þarft með, sagði hún skyn- samlega. — Eg þarf ekki á neinu sumarleyfi að halda, hvorki góðu né hinsegin, og það lá við að — Ég hef verið að heiman, James, svaraði Marjorie. — Ég var svo einmana hérna, að ég fékk mér dálítið sumarleyfi, þó að í seinna lagi væri.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.