Vikan


Vikan - 02.07.1964, Síða 18

Vikan - 02.07.1964, Síða 18
Síðari tilutí maður gæti haldið, að það væri eldra en það er, en það er byggt fyrir alþingishátíð- ina 1930. Einhvern veginn finnst mér, að þjóðgarðsvörð- ur á Þingvöllum ætti skilið, að yfir hann væri byggt betra hús, sem rúmaði betur en þetta gerir. Ég gæti trúað, að þarna væri einhvern tíma þröngt, þegar öll börn þeirra hjóna eru heima, 9 talsins. En þau hjónin kvörtuðu ekki, og þá er líklega óþarfi að ég geri það. Ég spurði frú Kristínu, hvemig henni líkaði veran á Þingvöllum, eftir áratuga dvöl á Núpi í Dýrafirði. Hún lét vel yfir því, og sagði sér standa að mestu á sama, hvar hún sýslaði við potta og pönnur. En verst þætti henni, hve stað- urinn væri einangraður á vetr- um. Vegaþjónusta er engin 9 mánuði af árinu, nema hvað starfsmenn vegagarðarinnar, undir forystu Eyvindar Jónas- sonar frá Stardal, væru ein- staklega almennilegir og hjálplegir við að ryðja snjó af veginum. En þá kemur það til, að ekki er áætlunarferð nema einu sinni í viku, úr bænum klukkan 10 og í bæ- inn klukkan 12. Að vísu er ferð austur aftur um kvöldið, ef einhverjir farþegar eru, en með því að fara í bæinn um hádegi, fást ekki nema 3—4 tímar til að verzla, og það er tæpast nóg, þegar heimilið er stórt. Á sumrin eru daglegar ferðir til Þingvalla, úr bæn- um kl. 1,30 og í bæinn klukk- an 8. Sem sagt, ef frú Kristínu eða eitthvert barnanna langar í bíó, verða þau að fara í bæ- inn, gista, hafa ofan af fyrir sér fram á kvöld, fara í bíó, gista, hafa ofan af fyrir sér til hádegis, en komast þá heim. Eða ef verzlunarferð er Séra Eiríkur á Þingvöllum og Krlstin kona hans, ásamt þrcmur barnanna: Ás- mundi, Aldísi og Ágústu. Hótel Valhöll er annars orð- in allra vistlegasti greiðasölu- staður, og þeir sem hafa sneitt hjá henni upp á síðkastið vegna myglulyktarinnar, sem allt ætlaði að kæfa í veitinga- salnum hér fyrir fáeinum ár- um, geta nú óhræddir gengið með þeffæri sín í húsið. Og þjónustan er ágæt. Hins veg- ar mætti beina þeim tilmæl- um til sumra starfsstúlkna hótelsins, að þær hefðu lokið við að greiða sér, áður en þær fara að sniglast um fyrir aug- liti gestanna. Rúllur eru leið- inglegur höfuðbúnaður, jafn- vel þótt skuplu sé skotið yfir, og hárþurrkur kosta ekki Gamli Þingvallabærinn og kirkjan fara vel að umhverfi sínu. Þar býr Þjóð- garðsvörður, og þar er sumaraðsctur ríkisstjórnarinnar. Við lukum yfirreiðinni um Þing- vallasveit síðast í maí á þessu ári. Veðrið var eins og það getur bezt verið, þegar á annað borð eru skúr- ir. Á milli var sólskin og breyskju- hiti. Við komum mátulega í mat í Valhöll; átum súpu Agnes Sorrell, og ég mæli með Agnesi. Svo feng- um við ristaðan silung í remúlaði- sósu og kaffi á eftir. Þetta kostaði 226 kr. fyrir báða. Og ég hef aldrei fengið betur matreiddan silung. nema nokkur hundruð krónur. Séra Eiríkur J. Eiríksson var ekki heima, þegar okkur bar að garði á Þingvöllum, en kona hans, Kristín Jónsdóttir, tók vel á móti okkur og sýndi okkur húsið, meðan við bið- um eftir séra Eiríki. Þau hjón- in hafa nyrðri enda hússins fyrir sig, en suðurendinn er stjórnarbústaður. Húsið er þokkalegt, en fremur lítið, og AFOAIASVEIT I ALFARAISO Efst er friðunarplaggið á Brúsastöðum. í miðju er kvenfólkið á bænum. Það er Gréta húsfreyja, sem heldur á yngstu heimasæt- unni, Kristínu. Neðst er Kristín með Gerði systur sinni, og hundum bæjarins. um að ræða, fara í bæinn, gista, verzla fram að hádegi, fara heim. Og það er jafn langt til Þingvalla og Keflavíkur. Hins vegar vegur það nokkuð upp á móti, að sérleyfishafinn er greiðvikinn og hugulsamur. Þau hjónin verzla tals- vert við Kaupfélag Kjalarnesþings, og fá það sent með áætlunarbílnum. Að vísu er bíll á svo að segja hverj- um bæ í Þingvallasveit. En það er oft erfitt með ferðalög á veturna, því Texti Sigurður Hreiöar - Liósmyndir Kristfán Magnússon 18 VIKAN 27. tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.