Vikan


Vikan - 02.07.1964, Page 22

Vikan - 02.07.1964, Page 22
Lítill hópur verkfræðinga starfaði sleitulaust í S-flugskýlinu ó Cape Kennedy. Sterkir lióskastarar helltu skæru Ijósi yfir þá, og glitraði á málmflötum verkfæranna. Þeir unnu með ótrúlegum hraða í keppni við tímann, við að taka í sundur þykka stálveggi og flóknar rafleiðslur í geysistór- um tilraunageymi. Inni í geyminum, þar sem margir menn unnu sveittir og tauga- óstyrkir, var stórt geimfar. Við fyrstu sýn leit það út fyrir að vera nákvæm eftirlík- ing þess, sem á þessu augnabliki þaut umhverfis jörðina. En það var aðeins við fyrsta augnatillit ókunnugs manns. Geimfarið var skylt Mercury, en alls ekki sama tækið. Það var dýpra, breiðara, hærra, rúmbetra. Tíminn var svo naumur! Að taka geimfarið úr tilraunahylkinu og gera það tilbúið til hættulegrar, fIjótrar farar — það hafði aldrei verið gert áður. Allar líkur voru á móti. Jafnvel þeir bjart- sýnustu mannanna á staðnum álitu, að tilraunin hlyti að mis- heppnast. Tæknisérfræðingar og verkfræðingar köstuðu öllum há- tíðlegum reglum til hliðar, sem ákváðu endalausar og nákvæmar ráðstafanir og ítrekaðar tilraunir með hvern einstakan hlut. Ef nokkur von ætti að vera til að þessi tilraun gæti tekizt, að mað- urinn í geimnum ætti að hafa nokkra von um björgun, varð hið ómögulega að gerast. Það varð að losa geimfarið úr hylkinu með geypihraða og koma því á ræsistæði 19 á Cape Kennedy. Geimskipið, sem stóð inn í hylkinu, hét Gemini. — Þetta er George Keith í Mercuryumsjón. Hafið þið getað losað geimfarið úr hylkinu? — Núna á hverri mínútu . . . — A hverjum andskotanum stendur? — Þú veizt fjandans vel hvaða tíma þetta tekur. Þetta hefur aldrei nokkurntíma verið gert áður. Við höfum enga reynslu. ( guðanna bænum reyndu að skilja að við þurfum tíma til þess! — Við höfum engan tíma. Við höfum ekki sekúndu afgangs. Hevnær eruð þið tilbúnir? — Ef þú heldur sönsum og lætur okkur í friði, þá gengur það fyrr. Við hringjum strax og eitthvað skeður . . . Símanum var hent á. Tíu mínútum síðar hékk geimfarið í sterkum stálköplum. I geimrannsóknarstöð handan Uralfjallanna, lengst inni í Sovét- ríkjunum, titraði loftið af spennu. Maður í einkennisbúningi rússn- esks yfirmanns loftflotans óð um gólfið og veifaði höndunum. — Haldið símalínunni opinni. Mig varðar ekkert um hverjir vilja komast að! Línan verður opin þangað til ég þarf á henni að halda. Skilið? — Já, yfirforingi. — Gott! Nú, hafa komið nokkrar nýjar upplýsingar frá raf- eindaheilanum í Moskvu? — Nei, yfirforingi. En við búumst við að heyra frá þeim hvenær sem er. Þeir segja . . . afsakið, yfirforingi, Ogorodnikov prófessor vill tala við yður. Samtalið bíður. — Fljótur þá. Gefðu mér strax samband. — Karpenko yfirforingi? — Já, prófessor. Hvað er nýtt? — Það er eins og við héldum, yfirforingi. Það er enginn vafi á því að bandaríski geimfarinn er í alvarlegum vandræðum. — Eru það bremsuraketturnar, eins og við héldum? — Alveg rétt, yfirforingi. Geimfarið átti að hemla um leið og það fór yfir norðausturströnd Nýju-Guineu. Á þvf augnabliki átti geimfarinn að Ijúka fertugustu og sjöundu umf . . . — Já, já, ég veit. — Verið þolinmóður, Karpenko yfirf.oringi. Við viljum vera viss- ir um að þær upplýsingar, sem við gefum ykkur, séu réttar. — Afsakið, Ogorodnikov prófessor. Gjörið svo vel að halda áfram. — Bandaríska geimfarið heldur þessum hraða í um sex sólar- hringa og átta tíma. Að þeim tíma loknum fer það að mæta auk- inni mótspyrnu frá efri lofthjúpnum. Þá fer það að minnka hrað- ann smátt og smátt. — Sex sólarhringa og átta tíma. En þér sögðuð ,,um". Getið þér ekki verið nákvæmari? — Nei, það er ómögulegt. Útreikningar okkar eru eins nákvæm- ir og hægt er, yfirforingi. — Hve lengi getur geimfarinn lifað? — Það getum við ekki sagt með vissu, yfirforingi. Flestar okk- ar upplýsingar eru byggðar á því, sem Bandaríkjamenn sögðu okk- ur um aðstæður í hylkinu. Það er mögulegt að minnka þrýsting- inn í hylkinu og jafnvel minnka hann einnig í búningi geimfar- ans. En hann getur ekki minnkað þrýstinginn nema að vissu marki, án þess að súrefnisinnihald blóðsins verði of lítið. Við höfum „Nú er um sekúndur að ræða“ Öll starfsemi stöðvast snögglega á Cape Kennedy, geim- fferðarstöð Bandaríkjanna. Verkfræðingar tiefja taugaæsandi starfsemi f einu flugskýlinu þar, því uppi í geimnum er geimfari dauða- dæmdur f gelmfarí sínu, vegna þess að hemlarakettur þess brugðust! Og nú bíða allir meö öndine f halsinum eftir svari viO spurningunni: VerOur hægt aO senda annan mann upp tíl aO bjarga honum áður en súrefniO f geimfari hans er búiö? 2. HLUTI NEYÐAR- KALL ÚR GEIMNUIV 22 — VIKAN 27. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.