Vikan


Vikan - 02.07.1964, Síða 24

Vikan - 02.07.1964, Síða 24
Þ»ÓR GUÐJÓNSSON, veic^,iálasfj6ri, 8Ék sai.istn Helztu silungsvötn í námunda við Reykjavík. Silungsvötn eru mörg á landinu. S.kulu nokkur vötn í nágrenni Reykjavíkur nefnd hér: Elliðavatn er nálægt 15 km suðaustur frá Reykjavík. Það er 1,8 km2 að flatarmáli og er í 74 m hæð yfir sjó. Falla Elliðaárnar úr því norðanverðu. í vatninu er urriði og bleikja. Eigendur vatnsins eru Reykjavíkurbær og jörðin Vatnsendi. Veiðileyfi fást hjá veiðieig- endum. Hafravatn er nálægt 15 km austur frá Reykjavík, í kvos suðvestan við Hafrahlíð 68 m yfir sjó. Það er 0,9 km2 að flatarmáli. Er það skálarmyndað og alldjúpt. Úlfarsá rennur úr vatninu að vestan. f því veiðist urriði, bleikja og lítils háttar af laxi. Hafravatn er hluti af félagssvæði Veiðifélags Úlfarsár. Áburðarverksmiðjan hefur veið- ina í Hafravatni á leigu. Leirvogsvatn er nál. 25 km norðaustur frá Reykjavík við þjóðveg- inn til Þingvalla. Það er nál. einn km2 að flatarmáli og er í 211 m hæð yfir sjó. Úr því fellur Leirvogsá. Vatnið er alldjúpt og dýpst 24 — VIKAN 27. tbl. austan til. Urriði er í vatninu og bleikju hefur verið sleppt í það fyrir nokkrum árum. Eigendur vatnsins eru Stardalur og Kirkju- jarðasjóður. Meðalfellsvatn er í Kjós, nál. 50 km norður frá Reykjavík í kvos norðan við Esjuna, og er það í 46 m hæð yfir sjó. Það er 1,9 km2 og er mikill hluti vatnsins undir 5 m að dýpt, en mesta dýpi í því er 18,5 m. Er það í austurhluta vatnsins í skál allvíðáttumikilli, sem þar er. Bugða rennur úr vatninu að vestan og felur norðvestur í Laxá í Kjós. Urriði og bleikja veiðast í vatninu og auk þess nokkrir tugir laxa árlega. Meðalfellsvatn er á vatnasvæði Laxár, og starfar Veiðifélag Kjósarhrepps þar. Veiðin í vatninu er leigð Stangaveiði- félagi Reykjavíkur, sem selur veiðileyfi í því. Hvalvatn er í kvos austur við Hvalfell og norðan við Botnssúlur. Akfært er að vatninu að norðan. Liggur vegurinn að því vestur frá Uxahryggjavegi, skammt norðan við Tröllháls. Vatnið er í 378 m hæð yfir sjó og er 3,4 km: að flatarmáli. Það er skálarmyndað og djúpt. Mesta dýpi, 160 m, og er suðvestan til í því. Er þetta mesta dýpi í

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.