Vikan


Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 7

Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 7
ár á jörðu niðri) túr, því ég er svo mikið fyrir að flakka. Eitt þætti mér þó verst við það, að ef ég færi t. d. í dag, þá væri konan mín orðin fimmtug, þegar ég kæmi aftur til baka, en ég aðeins 33, og bóðar dætur mínar farnar að nálgast þrítugt. Nú heyrði ég, í útvarpinu um daginn, talað um það að líkleg- ast yrði hægt að djúpfrysta fólk með góðum árangri og þíða það svo upp aftur með góðum árangri eftir t. d. fjölda ára, og væri það þá jafn gamalt og þegar það var fryst. Væri nú ekki hægt að frysta konuna mína og krógana, meðan ég fer í túrinn og þýða þau svo upp aftur, þegar ég kem heim? Ef ég brygði mér nú til Andró- meda og yrði 55 ár (3.000.000 ár á jörðu niðri) í burtu og konan væri fryst á meðan og væri svo þídd upp, þegar ég kæmi til baka, þá má búast við að hún yrði ekkert ánægð með mig 85 ára gamlan karl, en hún þá að- eins 29 ára. Til þess að ,,redda“ því, mætti þá ekki frysta mig áður en ég fer af stað, og þýða mig svo upp nokkrum dögum, áður en ég kem til Andrómeda svo ég gæti heils- að upp á þá, sem þar búa. Ég ætti svo að geta fryst mig aítur, þegar ég er lagður af stað heim og svo yrði ég þýddur upp aftur, þegar ég kæmi til jarðarinnar og þá væri ég jafn sprækur og þeg- ar ég fór af stað. Ferðalangur. Kvusslags er þetta mað'ur! Til hvers ætlarðu að þíða kerling- una aftur, ef þú hefur komið henni í frystinn á annað borð? Nei. í þinum sporum mundi ég alveg sleppa ferðinni til Andró- meda í bili, en láta frysta mig í 55 ár, og giftast svo dóttur-dótt- ur-dóttur minni, sem væri þá á likum aldri. Þú mundir verða langa-langa-Iangafi barnanna ykkar, en tengdasonur þinn yrði langa-langafi konunnar þinnar. Konan þín (sem ennþá væri í frystikistunni) væri þá Ianga- langa-langamma konunnar þinn- ar, og ég er viss um að þig mundi ekkert langa til Andrómenda. Enda mundi það ekkert þýða. Megi friður ríkja á Mógilsá í 15. tölublaði Vikunnar 1961, birtist grein undir nafninu: „Úr kotinu í kauphöllina, — Aron Guðbrandsson í aldarspegli". f aldarspegli þessum var greint frá viðskiptum Arons við bónda nokkurn á Mógilsá, en þau hafa ekki verið með sem friðsömust- um hætti og hefur komið til málaferla, sem Aron hefur unnið. í aldarspegli þessum voru nokkr- ar setningar, sem bóndi þessi á Mógilsá taldi meiðandi fyrir sig; „Bóndinn sonur gamla bóndans er fullur öfundar og úlfúðar og gerir alla þá bölvun sem hann má og raunar ekki má. Hann klippir sundur girðingar, sprengir lása, breytir farvegi læksins, rekur nautpening sinn á land Arons. Allt logar í úlfúð og málaferlum .... og þrjú mál gegn vesölum hrekkjabóndanum, sem líkist einna helzt Mikkjál frá Kolbeins- brú eða Bjarti í Sumarhúsum.. “ Nú hefur þessi bóndi talsverða revnslu af málaferlum, að vísu ekki góða en nú mun hann hafa vitað, að meiðyrðamál vinnast alltaf eða mjög undantekningar- lítið. Sum meiðyrðamál hafa iafnvel unnizt, enda þótt kunn- ingjar vissu, að hvert orð væri satt og rétt. Gerði Mógilsárbóndi allmiklar kröfur, en dómurinn leit hinsvegar svo á, að hæfilegt væri að Vikan greiddi bóndanum fjögur þúsund krónur og tvö þús- und og fimm hundruð í máls- kostnað, en eitt þúsund til ríkis- ins. Auk þess ber eins og alltaf þegar meiðyrðamál er höfðað að taka aftur ummæli og er Vikunni mikil ánægja að því að taka það skýrt og greinilega fram, að um- ræddur bóndi á Mógilsá er ekki minnstu vitund likur þeim Mikkiáli á Kolbeinsbrú eða Bjarti í Sumarhúsum. Hann hef- ur aldrei klippt girðingar, sprengt lása, breytt farvegi lækja, né rekið nautpening á land Ar- ons. (Ekki satt, Aron?) Ummæl- in: „Allt logar í úlfúð og mála- ferlum“, sem þóttu meiðandi, eru hérmeð tekin aftur, það þýð- ir að allt hefur verið með friði og spekt og engin málaferli. (Hvað sem allir Hæstaréttardóm- ar segja). Öll önnur meiðandi ummæli í téðum aldarspegli eru með stakri ánægju aftur tekin og vonum vér, að friður megi svífa yfir vötnum Mógilsár og lækir haldast í farvegum sínum. 'l&mmgo Nýtfzku straujárn ar látt - sem allra léttast — |>vf að j>«8 ar hltfim — réttur hiti — an akki þyngdin, sem straujar. FLAMINGO straujámið er fislátt — aðeins 800 grömm — hitnar og kálnar fljétt og hefur hárnákvseman hitasb’lll, ásamt hitamsall, sem alltaf sýnir hita* stigið. Stilling fyrir "straufrí" efni. Truflar hvorki útvarp ná sjónvarp. Inn- byggt hitaöryggi. Lögun og láttleiki FLAMINGO gerir það leik einn að strauja blúndur, leggingar, kringum tölur og annað, sem hingað til hefur þótt erfitt. FLAMINGO straujárn eru falleg — hreint augnayndi — og fást krémuS, Uá, gul og rauðbleik. Einnig fyrir vinstri hönd. FLAMlNGO úðarinn úðar tauið svo fínt og jafnt, að h«gt er að strauja |>að jafnéðum. Sem sá: gamaldags steink- un og vatnsblettir eru úr sögunni. Úðaranum fylgir hanki fyrir glas og úðabyssu. Litir: svartur, Uár, gulur, rauðUeikur. FLAMINGO snúruhaldari heldur straujámssnúrunni á lofti, sve el hún flsakist ekki fyrir. FLAMINGO gjafakassh stieujám og úðari. FLAMINGO straujám, úðari og snúruhaldari eru hvert f sínu lagi — of aidd sfður saman — kjðrgripir, sem vekja spuminguna: Hvemig gat ág verið áe þeirra? FLAMINGO: fyrir yðurl — FLAMINGO: faHeg gý&fI ÁBYRGÐ- Varahluta- og viðgerða|>jénusta. O. KORHLE RU P-H4MIE1 SÍMI 12606 - SÚÐURGÖTU R E V K J A V i K PÖNTUN Sendið undirrit. i póstkröfu: .... stk. FLAMINGO straujárn............litur: .... stk. FLAMINGO úðara................litur: .... stk. FLAMINGO snúruhaldara kr. 498,00 kr. 266,00 kr. 82,00 ..... stk. FLAMINGO gjafakassa................litur: ........... kr. 754,00 Nafn ..................................................................... Heimili ..................................................................' Til: FÖNIX s.f., Suðurgötu 1«, Reykjavík. «11k

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.