Vikan


Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 46

Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 46
BLAUPUNKT sjónvörp 10 MISMUNRNDI GERÐIR BLAURUNKT sjónvörp eru m. a. þekkt fyrlr: • ERU FYRIR BÆÐI KERFIN • SKARPA MYND • FRÁBÆRAN HLJÖMBURÐ • LANGDRÆGNI • • NÝTfZKULEGT ÚTLIT Söluumboð: RflDIOVER Skólavörðustíg 8 / unnM c9w£áibbon Lf. Suðurlandsbraut 16 - Reykjavík komizt að því, sem hann vildi vita. Honum höfðu verið sögð leyndar- mólin. Og nú? Nú var honum vísað til grafar með leyndarmálin og flækingsstúlkuna, sem hann hafði dregið með sér í þetta brjálæðis- lega ævintýri. Stundarkorn fannst Bond, að hann mundi ekki komast hjá því að kasta upp. Hann teygði sig í kampavínið og tæmdi úr glas- inu. Hann sagði hásum rómi: — Allt í lagi, dr. No, þá skulum við halda áfram með kabarettinn. Hver er áætlunin — hnífur, kúla, eitur, heng- ing? En verið fljótur. Ég er búinn að fá nóg af yður. Varir dr. Nos drógust saman í þunna, rauða línu. Augun voru hörð eins og tinna undir kúlulaga enninu. Kurteisisgríman var horfin. Það var hinn mikli dómari, sem sat þarna í bakháa stólnum. Stundin var komin fyrir peine forte et dure. Dr. No sagði eitthvað á kínversku og lífverðirnir tveir stigu eitt skref áfram, gripu um fórnarlömbin fyrir ofan olnboga og héldu handleggj- um þeirra niður með stólbökunum. Þeim var ekki veitt mótspyrna. Bond einbeitti sér að því að halda kveikj- aranum ( handarkrikanum. Hanzka- klæddar hendurnar héldu um hann eins og tengur. Hann brosti enn einu sinni til stúlkunnar: — Mér þykir þetta leitt, Honey. Ég hugsa að við getum ekki leikið okkur sam- an, þegar allt kemur til alls. Blá augu stúlkunnar í fölu andlit- inu endurspegluðu ekkert nema ótta. Varir hennar titruðu. Hún sagði: — Verður það sárt? — Þögn! Rödd dr. Nos skall eins og svipuhögg. — Það er komið nóg af þessum fíflaskap. Auðvitað verð- ur það sárt. Ég hefi ánægju af sársauka. Mig langar einnig að komast að því, hversu mikið mann- legur líkami getur þolað. Endrum og eins geri ég tilraunir með þá mína menn, sem þarfnast refsingar. Og á þeim, sem gerast boðflennur eins og þið. Þið hafið valdið mér miklum óþægindum. I staðinn ætla ég að valda ykkur miklum sárs- auka. Og ég mun fylgjast með hversu lengi þið þolið við. Stað- reyndirnar verða skráðar. Dag nokkurn verða niðurstöður mínar kynntar heiminum. Dauði ykkar mun þjóna tilgangi vísindanna. Ég læt aldrei mannlegt efni fara til spillis. Tilraunir Þjóðverja með líf manna, sem þeir gerðu í stríðinu, voru mikill ágóði fyrir vísindin. Það eru nokkur ár síðan ég hefi látið kvenmann deyja á þann hátt, sem ég hefi nú hugsað mér að láta yður deyja, stúlka. Það var negrastúlka. Hún entist í þrjá klukkutíma. Svo dó hún úr skelfingu. Mig langar að bera þetta saman við hvíta stúlku. Ég var ekki hissa, þegar ég frétti um komu yðar. Ég fæ alltaf það sem ég vil. Dr. No hallaði sér afturábak í stólnum. Augu hans störðu nú á stúlkuna, til þess að taka eftir viðbrögðum hennar. Hún starði á hann til baka, næstum dá- leidd eins og mús, sem stendur framan við iðandi snák. Bond beit á jaxlinn. — Þér eruð frá Jamaica, svo þér munuð vita hvað ég er að tala um. Þessi eyja er kölluð Crab Key. Hún hefur hlotið þetta nafn vegna þess að hér er mikið um krabba, land- krabba — það sem þeir á Jamaica kalla svarta krabba. Þér hljótið að þekkja þá. Þeir eru um pund á þyngd hver og stórir eins og disk- ar. A þessum tíma árs koma þeir þúsundum saman upp úr holum sínum niðri við ströndina og klifra í áttina upp á fjallið. Þar skríða þeir aftur inn í holur í klettunum og tímgast. Þeir fara gegnum allt og yfir allt. Á Jamaica fara þeir í gegnum hús, sem eru á leið þeirra. Þeir eru eins og læminginn í Noregi. Dr. No þagnaði og bætti svo við mjúklega: — En þeir eru fráburgðnir að einu leyti, þeir rífa allt í sig, sem fyrir þeim er. Og núna, stúlka, eru þeir á uppleið. Þeir koma þús- undum saman upp fjallshlíðina, stórir, rauðir, appelsínugulir og svartir og fara yfir, undir og í gegn- um hvað sem fyrir verður. Á þess- ari stundu tifa þeir upp klettana hér yfir okkur og í nótt finna þeir á leið sinni naktan stúlkulíkama, bundinn með alla útlimi teygða frá sér — þeir munu finna heitan lík- amann með fálmurum sínum, sá fyrsti mun kroppa í líkamann í til- raunaskyni . . . og svo . . . Stúlkan stundi. Höfuð hennar féll áfram og niður á brjóstið. Það hafði liðið yfir hana. Llkami Bonds lyftist í stólnum. Röð ókvæðisorða þeyttist út milli samanbitinni tanna hans. Stórar hendur lífvarðarins voru eins og eldur um handleggi hans. Hann gat ekki fært stólinn á gólfinu. Eftir stundarkorn hætti hann. Hann beið eftir því, að rödd hans róaðist. Svo sagði hann með öllum þeim viðbjóði, sem hann gat lagt í orðin: — Manndjöfull. Þér verðið steikt- ur í helvíti fyrir þetta. Dr. No brosti þurrlega: — Herra Bond, ég trúi ekki á tilvist helvítis. Þér huggið yður við það. Kannske að krabbarnir byrji strax á háls- inum eða hjartanu. Þá mun blóðið hætta hringrásinni. Þá tekur þetta ekki svo langan tíma. Hann sagði eitthvað á kfnversku. Vörðurinn aft- an við stól stúlkunnar hallaði sér — VIKAN 29. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.