Vikan


Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 31

Vikan - 16.07.1964, Blaðsíða 31
MYNDARLEGT GAT Á Miami var maður nokkur settur inn, grunaður um að hafa rænt svo og svo miklu af pen- ingum. Hann viðurkenndi fljót- lega, og kvaðst hafa falið pen- ingana undir ákveðnu gólfi í ákveðnu húsi, sem hann vildi ekki tala nárnar um, en lofaði að vísa á þá, ef hann fengi að fara ferða sinna. Tveir menn tóku að sér að borga 2500 dollara trygg- ingu fyrir hann, og fóru svo með hann í þetta ákveðna hús. Hann náði sér í kúbein og gerði mynd- arlegt gat á gólfið. Svo hoppaði f hann ofan í gatið, og síðan hefur ekki til hans spurzt. Það er allt útlit fyrir, að mennirnir tapi » tryggingarfénu. VIÐ GULLFOSS OG f PJAXA Framhald af bls. 27. sem fóru þar um. Hann er fr'emur varasainur á köflum, en verður þó að teljast hættu- laus, sé varkárni við höfð. í endurreisn Gullfoss sem ferða- mannastaðar, ætti Pjaxi að vera einn liðurinn. Þó þarf raunar ekki að gera annað en lagfæra stíginn niður i gljúfrið og koma upp vegvisum. Hinsvegar fer bezt á því að engin mannvirki verði sett upp í Pjaxa. Þar er svo fjölbreytilegur gróður, að dáindi er á að liorfa; þar er afar skýlt eins og að líkum lætur og maður veður blágresið i liné inn á milli bjarkanna. Ég gæti hugsað niér, að einliverntíma hafi verið foss i ánni, þar sem nú er hvammurinn Pjaxi. Siðan virðist áin liafa'breytt um far- veg. Engar skepnur fara niður i gljúfrið þarna og það er meðal annars ástæðan fyrir gróður- sældinni. Ekki veit ég um upp- runa nafnsins, en margir hafa velt þvi fyrir sér og komizt að ýmsum niðurstöðum, sem ég hirði ekki um að rekja hér. Eitthvað mun það hafa komið til umræðu að virkja Gullfoss. Þá mun hafa verið lagt til, að áin yrði stifluð talsvert ofan við fossinn og vatnsmagnið leitt í jarðgöngum allar götur fram | fyrir hálendið, þar sem gljúfr- in þrýtur. Þá yrði í engu hrófl- að við Gullfossi, en síðan mætti f á ákveðnum timum hleypa vatn- inu á fossinn fyrir ferðamenn. Vonandi verður þetta ekki gert fyrr en hver spræna landsins er fullvirkjuð. ÞUNGAVÖRUIÐNAÐUR TÉKKÖSLÖVAKÍU ER VIÐUR- KENNDUR í VESTRI SEM AUSTRI. GRJÓTMULNINGSVÉLAR á tijóium og beltum knúðar SKODA vélum, eru tæki sem reynzt haf framúrskarandi hér á landi sem annarsstaðar. Örugg og auðveld í notkun. Sterkbyggð og sparneytin. Hagstæð verð og greiðsluskilmálar. Einkaumboð fyrir: STROJEXPORT PRAHA, deild 305 ÞORSTEINN BLANDON, Umboðs- & heildverzlun ÞINGHOLTSSTRÆTI 11 - SÍMI 13706 Frá Gullfossi er ekki löng leið vestur að Jarlshettum og Einifelli, þar sem sæluhús Ferða- félags íslands er. En á þeirri leið er óbrúuð á og vegurinn auk þess vafasamur fyrir aðra bíla en jeppa og fjallabíla. En leiðin er eins fögur og íslenzkar öræfaslóðir geta orðið, auðn og grjót, egghvassir tindar Jarls- liettanna og jökullinn á milli þeirra. Það kostar tiltölulega litið að brúa Sandá og gera veg- inn í Einifell ökufæran öllum bílum. Einhverntíma verður svo vafalaust Farið brúað og lagður fjallabaksvegur á Þingvöll eða Uxahryggjaleið. En það heyrir til framtíðinni. Fyrst er að byrja á því, sem liefði átt að vera búið fyrir mörgum árum: Vegalagn- ingu að Gullfossi og skálanum þar. GS. VIKAN 29. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.