Vikan - 21.07.1966, Blaðsíða 49
FegurSardrottning
á ferðalagi
„Austin MiniM
sendifepðabíffreiðin
Hefur sýnt yfirburði sem lang heppileg-
asta snúningabifreiðin fyrir hverskonar
atvinnurekstur.
GARÐAR GfSLASON H. F.
Bifreiðaverzlun
Framhald af bls. 11.
,,Þarna voru stúlkur frá öllum
Vestur-Evrópulöndum, alls átján",
sagði hún, þegar Vikan spurði hana
frétta úr ungfrú-Evrópu-keppninni.
,,Og ungfrú Frakkland varð sigur-
vegarinn. Hún var stór og Ijóshærð
og hafði ákaflega góða framkomu".
„Hvernig stóðu Norðurlanda-
stúlkurnar sig yfirleitt"?
„Engar þeirra komust í úrslit,
nema sú finnska. Hún er þriðja syst-
irin úr sömu fjölskyldu, sem ég hitti,
og allar hafa þær tekið þátt í feg-
urðarsamkeppni fyrir land sitt á
alþjóðavettvangi. Þær eiga eina
systur í viðbót, og kannski fetar
hún líka í fótspor þeirra".
Við spurðum nú Rósu, hvaða
starfssvið hún hyggðist velja sér í
framtíðinni, en hún kvað allar slík-
ar áætlanir enn ómótaðar. Þessa
stundina vinnur hún á skrifstofu hjá
Trésmiðju Birgis Agústssonar. Tóm-
stundaáhugamál hefur hún mörg,
en einna mest gaman þykir henni
að hlusta á tónlist, einkum klass-
íska, „annars fer það töluvert eftir
í hvaða skapi ég er", sagði hún.
„Að lokum", sagði Rósa, „vildi
ég ráðleggja hverri einustu stúlku,
sem á þess kost, að taka þátt í
fegurðarsamkeppninni. Ef þær hafa
heppnina með sér, fá þær að fara
í ferðalög, sem þær ættu ekki kost
á annars, og auk þess tækifæri til
að kynnast frægu og skemmtilegu
fólki, sem þær ættu aldrei kost á
að hitta, þótt þær færu sem venju-
legir ferðamenn. Og ekki þurfa þær
að vera smeykar um, að þær lendi
út í neinn soll, því að meðan á feg-
urðarsamkeppnunum stendur, er
þeim harðbannað að hafa samband
við nokkuð utanaðkomandi fólk, og
ef þær dvelja eitthvað erlendis að
keppninni lokinni, verða þær að
hafa ábyrgðarmann, sem er reiðu-
búinn að svara fyrir allar þeirra
gerðir. Já, fegurðarsamkeppnin er
tækifæri, sem engin stúlka ætti að
láta framhjá sér fara, sé annars
kostur.
dþ.
The Mindbenders
Framhald af bls. 14.
Því er spáð, að The Mindbenders
eigi bjarta framtíð fyrir sér. Ber
þar marg til: Músikin þeirra er ó-
venju fáguð, söngurinn betri en í
meðallagi og svo eru þeir óvenju
myndarlegir piltar!
☆
Við skrifum
Framhal daf bls. 15.
leika á tiltekin hljóðfæri í hljómsveit-
um. Einhverja tónlistargáfu verðið þið
auðvitað að hafa. Það er heldur eng-
in ástæða fyrir algera byrjendur að
kaupa sér rafmagnshljóðfæri þegar í
stað. Konsertgítarar (þetta sem þið
kallið venjulega gítara) duga, þar til
þið hafið fengið úr því skorið, hvort
þið hafið hæfilcika eða ekki.
Kæri þáttur!
Ég þakka ykkur fyrir mjög skemmti-
legan þátt, en þið ættuð að fara út á
landsbyggðina og hafa samtöl við
hljómsveitir. — Guðmundur Bjarna-
son, Smáratúni 16, Selfossi.
Sammála.
Kæra Vika!
Vilduð þið vera svo vænir að kynna
Tempó og segja um leið, hvaða daga
þeir eru fæddir. Eftir eyranu er bezti
þátturinn í blöðunum.
Við áttum fyrir nokkru samtal við
strákana í Tempó og birtist greinin
innan skamms.
SÚTAÐAR
GÆRUR
TRIPPASKINN
KALFSKINN
*
Mikið
úrval
•k
Hagkvæmt
verð
Sútunarverksmiðja
SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Grensásvegi 14
Sími 31250
Einnig
Laugavegur 45
Sími 13061
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá NÓA.
HVAR E R ÖRKIN HANS NOA?
I*að er alltaf sami lcikurinn i hcnni Ynd-
isfríð okkar. llún hcfur falið örkina hans
Nóa einhvers staðar i blaðinu or hcitir
Róðum verðlaunum handa þeim. sem gctur
fundið örkina. Vcrðlaunin cru stór’kon-
fcktkassi, fullur af bezta konfckti, og
framleiðandinn er auðvltað Sælgætisgcrð-
in Nói.
Nafn
flcimili
Örkin er á bls.
Siðast er dregið var hlaut verðlaunin:
SÓLVEIG SKÚLADÓTTIR „ ,
Vinmnganna má vitja í skrifstofu
Hlíðarbraut 9 — Hafnarfirði vikunnar. 29. tbi.
VIKAN 49