Vikan - 04.08.1966, Síða 10
Flestir sem eitthvað hafa ferð-
azt milli landa á síðustu ár-
um, hafa fengið af því
reynslu að fljúga með þot-
um. Öll stóru flugfélögin
hafa í notkun þotur, sem fljúga
með 700 kílómetra hraða og jafn-
vel upp undir 1000. Á hinum
skemmri flugleiðum, svo sem
milli Parísar og London hafa far-
þegar rétt tíma til þess að fá sér
hressingu, frá því þeir losa um
öryggisbeltin og þar til þeir eru
beðnir að festa þau á sig aftur
fyrir lendingu. Er þessi hraði
ekki nægilegur, er beinlínis þörf
á miklum framförum í því að
komast milli landa og staða?
Vissulega lítur það glæsilega út,
þegar einungis er hafður í huga
sá tími, sem flugfarþegar þurfa
að eyða í loftinu. En það segir
ekki söguna nema hálfa og varla
það. Sannleikurinn er sá, að það
er mikil brotalöm á nútíma sam-
göngutækni og virðist ólíkt
meira aðkallandi að bæta úr því
en að auka enn til muna flug-
hraða flugvélanna. Loftferða-
tæknin er þrátt fyrir allt á frum-
stigi. Brotalömin er fólgin í því,
að það tekur allt upp í tvöfalt
lengri tíma en flugferðin að kom-
ast á sjálfan flugvöllinn og bíða
þar eftir því að geta gengið um
borð í vélina. Það sjá auðvitað
allir að mikið misræmi er í þessu
tvennu, enda fráleit samgöngu-
tækni að þurfa að mæta á „ter-
minal“ eða flugmiðstöð borgar
allt að tveim klukkustundum áð-
ur en flugvélin á að fara í loft-
ið. Það tekur ef til vill allt frá
hálftíma og allt upp í klukku-
Samgöngutæki næstu áratuga. Þota
sem flýgur hraðar en með hraða
hljóðsins og nær ef til vill allt að
tvöföldum hljóðhraða hefur sig á loft.
Farþegar úr annarri flugvél ganga um
borð í flugvagninn, einskonar fljúg-
andi strætisvagn, sem flytur farþeg-
ana' á örfáum mínútum frá flugvell-
inum og inn til borgarinnar. Vagninn
er útbúinn hreyflum fyrir lóðrétt flug-
tak, og er eingöngu notaður til fólks-
flutninga að og frá flugvellinum. Þeg-
ar vagninn er kominn á loft, er hreyfl-
unum snúið í lárétta stöðu þannig að
þeir beina farartækinu áfram í stað
þess að lyfta því. Verkfræðingar og
vísindamenn, eru nú að gera tilraun-
ir með ýmsar gerðir af farartækjum
þessu líku.
: jjj > T 7| ||p|
!>. ;.WM r lii IL ' vl