Vikan


Vikan - 04.08.1966, Síða 11

Vikan - 04.08.1966, Síða 11
Tokaido-hraðlestin í Japan gefur einhverja hugmynd um hraðlestir næstu ára- tuga. Þær verða rafknúnar eða þrýstiloftsknúnar einteinungsbrautir, sem ná a.m.k. 700 km. hraða. Samgöngutæki næstu tíma að komast út á sjálían flug- völlinn og þar upphefst bið, sem sjaldan stendur skemur en klukkustund. Sama sagan endur- tekur sig svo að fluginu loknu á aðfangastað. Þessi óþægindi verða miklu minni í framtíðinni, kannski strax eftir áratug og samgöngu- sérfræðingar telja, að tvennt muni enkum stuðla að því: Sér- stök samgöngutækni úr borginni og út á flugvöllinn sem jafnist að sínu leyti við hraða þotunn- ar. Xalið er að til þessa verði einkum notaðar flugvélar, sem hafa lóðrétt flugtak og lendingu; einskonar svífandi strætisvagnar, sem fara frá flugumferðarmið- stöð í miðju borgar skömmu áð- ur en að þotan á að Ieggja af stað. Ferming og afferming mun áratngina Hjá Bosing flugvélaverksmiðjunum er nú unnið að því að smíða þotu, sem gert er ráð fyrir að nái allt að þre- földum hraða hljóðsins. Sú þota verð- ur væntanlega komin í notkun árið 1975. Hún á að geta flogið vegalengd- ina milli Stokkhólms og New York á tveimur og hálfum tíma og þá vænt- anlega á hálfum öðrum tima héðan til New York. Nokkru hæggengari er hin ensk-franska Concord, sem verður þrjá tíma á leiðinni frá New York til Stokkhólms. 50 Concord þot- ur hafa nú verið pantaðar af ýmsum flugfélögum og er gert ráð fyrir, að þær veröi komnar í notkun kringum 1970. Þessar hraðskreiðu þotur verða firna dýrar, ein til tvær billjónir kr. Mikla gát verður að viðhafa til þess að hljóðbylgjurnar frá þeim valdi ekki eyðileggingum á mannvirkjum. Umíerðarstjórn öll, hvort heldur hún fer fram á flugvöllum á götum eða þjóðvegum, verður nákvæmari en nú þekkist og til þess nota menn tæki líkt og sést hér á myndinni: Smáfar- artæki með þotuhreyfli, sem stjórn- andinn getur beint þannig, að hann ræður nákvæmlega hvar hann situr í loítinu til þess að hafa sem bezta yfirsýn. Vel getur hugsazt að þess- konar farartæki verði fuilkomnuð svo að þau eigi eftir að koma í stað bíla að einhverju leyti.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.