Vikan - 04.08.1966, Blaðsíða 27
Bára gengur frani í sundbol á
fegurðarsamkeppninni í Mi-
ami.
Nemendur í djassballettskóla Q
Báru á æfingu.
Bára i samkvæmiskjól á Miss
Universe-ksppninni.
•— Ber að skilja þetta sem svo, að tízkusýningarnar
ráði nokkuð þeim fegurðarsmekk, sem farið er eftir við
alþjóða fegurðarsamkeppnir?
— kað er nokkuð til í því.
— Hver er annars skoðun þín á fegurðarsamkeppnum,
almennt séð?
— tær eru alþjóðasamkomur, og stuðla sem slíkar að
kynnum og þar með auknum skilningi milli ólikra þjóða.
Þær hafa því að vissu levti áhrif i þá átt að efla frið-
samlega sambúð milli rikja heims.
Þátttökustúlkurnar í Miss Uni-
verse-keppninni. Bára cr fjórða
frá hægri í öftustu röð. Lengst
til vinstri í sömu röð er ung-
frú Thæland, sem var kjörin
Miss Universe.
Við vékum nú talinu að djassballettinum, sem er meg-
ináhugamál Báru. Hún upplýsti okkur um, að hún hefði
mikinn áhuga fyrir að komast í framhaldsnám í listgrein-
inni í New York, þar sem hún stendur með mestum blóma.
Bandaríkjamenn eiga líka tvo mestu snillinga í djass-
ballett, sem uppi eru, Jerome Robbins og Mörthu Gra-
ham.
— Jerome Robbins kannast flestir við vegna West Side
Story, en það verk er byggt á djassballett, sagði Bára.
Framhald. á bls. 43.