Vikan


Vikan - 04.08.1966, Side 33

Vikan - 04.08.1966, Side 33
 NEW Portrait Make up X FILM BY DOROTHY GRAY Algerlcga nýtt make-up, sem gefur eðlilegt útlit og mjúlta húð — MÝKRI EN SILKI. Strikar ekki né breytir lit og þurrk- ar ekki húðina. Portrait Make-up á við alla húð og endist bezt ER UNDURSAM- LEGT. Notað með eða án púðurs. Reykjavík, INGÓLFS APÓTEK. DOROTHY GRAY NEWYORK ' LONDON • PARIS temur“. — Svo sem fyrr er að vikið, mun þessi aldagamla kennarastétt gamla jólkiS, svo sem það var oft nefnt, vera orð- in of þunnskipuð. Þessir þjóðar kennarar, er lítilla, oftast engra launa kröfðust, en glöddust yfir unnu verki, þegar áhugi og eftir- vænting lýstu úr augum nem- andans, og bað um meira. Það, sem hér hefur verið sagt, um nokkuð það, sem margt af gamla fólkinu á fjölda heimila í landinu, fræddi börn og ung- linga um áður á tímum, má eng- inn taka þannig, að þar sé verið að gera hlut mæðranna lítinn í þessu efni, jafnvel bera hann fyr- ir borð. Þvert á móti hefi ég á- vallt litið á þetta mál þannig, að móðirin hafi í langflestum tilfellum, verið yfirkennarinn- og skólameistarinn. Allir aðrir voru stunda- eða aðstoðarkenn- arar. í þeirra hópi voru ömmur jafnvel langömmur, sem þekktu flestar vel hvers virði það starf var, sem nú voru þær þátttak- endur í og vissu hve fræðsla þeirra stuðlaði að náms og fróð- leikslöngun barnanna. Að þessari fræðslu bjó margt hinna ungu nemenda, oft langa ævi. Hinn há- leitari lærdóm barnsins, trú og siðfræði, má segja, að mæðurnar önnuðust að mestu á flestum heimilum. Móðirin mun, hvort heldur var í auga eða huga barnsins ,hafa verið algjörlega hafin yfir allan samanburð. Þetta vissi móðirin, og þess vegna lét hún sér vel Hka, það sem börn hennar námu og fræddust af hinum öldnu aðstoðarkennurum. Ég hugsa, að flestir taki, með diúpri lotningu, undir það, sem margir af ágætustu mönnum þjóðarinnar fyrr og síðar segja, er þeir minnst mæðra sinna í ljóðum, er trauðla gleymanst. Ég nefni hér aðeins fjögur nöfn í þessu sambandi, þá Matthías Jochumsson, Einar Benediktsson, Davíð Stefánsson og Benedikt Gröndal, sem segir um móður sína, þar sem hann minnist for- eldra sinna: „Mér kenndi móðir mitt að geyma trútt, þó heimur brygðist", o. s. frv. Einar segir um móður sína: „Þú gafst mér þinn streng og þinn boga“. Og svona mætti lengi telja. Ef til vill finnst einhverjum, að megnið af því, sem að framan er sagt um fræðslu barna og ung- linga í heimahúsum áður á árum, sé lítt viðkomandi aðalefni þessa þáttar. Um það vil ég segja, að minning Úlfhildar í þessu máli sem öðru í þætti þessum, er, frá mínu sjónarmiði, uppistaðan, en ívaf fjölda hennar líka, þótt nöfn séu ekki nefnd í þessu sambandi, enda mætti þá lengi telja. Ég tel, að íslenzka þjóðin eigi þessum heimafræðurum, sem sumir lifðu á náðarbrauði, mikla þökk að gjalda. Þau fátæklegu orð, sem að framan eru sögð, í garð þessa fólks, vildi ég leggja sem þakk- lætisvott, í þann viðurkenningar- sjóð. Frásögu minni um bernskuvin- konu mína, Úlfhildi, er brátt lok- ið. Sú saga, er að mestu bundin við síðustu átta til tíu ár ævi hennar, en þó má segja, að saga þessarar merku konu sé í raun- inni ósögð, og verður aldrei sögð. Hún er því ein í þeim mikla hópi alþýðumanna og kvenna fyrri alda og ára, sem liggja lítt bætt hjá garði. Vel veit ég, að það litla, sem ég hefi hér tilfært úr lífi Úlfhildar í Ási, er aðeins brotabrot af öllu sem hún hefur reynt og fyrir hana hefur borið, þau áttatíu ár af lífi hennar, sem ég, af gildum ástæðum, get ekki sagt frá hér. Ung fór Úlfhildur í vinnumennsku, og vár sam- fleytt nær tveim áratugum þjón- ustustúlka á hinu fornfræga höfuðbóli og höfðingjasetri, Skál- holti. Þangað kom hún röskum tuttugu árum eftir dauða Hann- esar biskups Finnssonar, síðasta biskups er sat Skálholtsstað. — Úlfhildur hefur því þekkt margt samtíðarmanna Hannesar bisk- ups, síðari hluta ævi hans. Oft heyrði ég hana segja eitt og ann- að, frá Skálholtsárum sínum. Einnig frá biskupsárum Hann- esar, er hún hafði frá fólki, sem var honum þar samtímis. Þessar sögur Úlfhildar hefur fyrir löngu móða áranna fallið svo á, enda sjálfsagt fallið þá í svo ófrjóan jarðveg sökum æsku minnar, að fyrir flestum þeim sé ég nú að- eins djarfa ,en svo óljóst, að ekki er viðlit að endursegja þær, þótt enn sjái ég sögukonuna fyrir innri augum, þegar hún sagði nokkrar þeirra. Ég veit nú, að með Úlfhildi hefur í þessu efni sem mörgu öðru, margt farið forgörðum, sem fróðlegt væri að vita í dag. Úlfhildur véiktist af heiftugri lungnabólgu þ. 30. jan. 1897, og andaðist úr þeirri sótt þ. 6. febr., eftir sjö daga legu, 91 árs að aldri. Þetta var hennar fyrsta og síðasta lega á hennar löngu ævi. Allt heimilið saknaði Úlf- hildar. Það urðu allir einhvern- veginn fátækari við burtför hennar. Af því fólki, sem þá var á heimilinu, er nú lifandi aðeins ég og systir mín Vilborg, búandi í Hafnarfirði, hinir allir löngu horfnir okkar sjónum. NOKKUR NIÐURLAGSORÐ Þáttur þessi hefur til orðið í mörgum áföngum, mislöngum, flestum stuttum. Orsakir þessa míns seinagangs, verða ekki raktar hér. En vegna þessa vinnubragðs, er ég varð hér við VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.