Vikan


Vikan - 04.08.1966, Side 49

Vikan - 04.08.1966, Side 49
Angelique átti svolítið erfitt með að kyngja því, en flaug í hug að sennilega væri það bezta lausnin, þegar allt kæmi til alls. — Ég varaði soldáninn við, að þér séuð villidýr. Og veit, hvernig ég get teygt þolinmæði hans ofboðlítið lengur, tii að þér fáið meiri tíma. — Tíma til hvers? Að láta undan ótt.anum? Að verða vejklundaðri? Eða, hugsaði Angelique, ef til vill til að flýja.... -— Yðar vegna þá, ég skal samþykkja það, sagði hún. E'n hún neitaði reiðilega fylgd tíu geldinga, sem hann hafði komið með. — Ég vil ekki láta leiða mig fram sem fanga eða eins og sauð til slátrunar. Osman Faraji lét undan henni. Þegar hér var komið, var hann reiðu- búinn til að gera hvað, sem var, til að örva hana. Hann ætlaði einn að fylgjast með henni, ásamt aðeins einum geldingi, til að taka við blæjunum, meðan hann sjálíur tæki þær af henni, eina eftir aðra. Mulai Ismail beið í lítilli herbergiskytru, sem hann leitaði oft til, þegar hann langaði að hugsa og vera í næði. Ilmefni brunnu á kopardiskum. Angelique fannst hún vera að sjá hann í fyrsta sinn. Hann rétti úr sér, þegar þau komu inn. Yfirgeldingurinn og aðstoðarmaður hans köstuðu sér flötum frammi fyrir honum. Síðan reis Osman Faraji á fætur og gekk aftur fyrir Angelique, tók um axlir hennar og ýtti henni mjúklega í áttina að soldáninum. Soldáninn hallaði sér ástríðufullur áfram.Gullin augu hans mættu smaragðsgrænum augum hennar. Hún leit niður. 1 fyrsta skipti i marga mánuði leit karlmaður hana girndaraugum. Þegar yfirgeldingurinn tók blæjuna frá andliti hennar, vissi hún, að á andliti hans myndi endur- speglast undrun og aðdáun yfir fögrum andlitsdráttum hennar, þéttum vörunum og alvarlegum, en þó stríðnislegum svipnum, samskonar endur- speglun og hún hafði séð hjá svo mörgum öðrum karlmönnum. Hún vissi, að víðar nasir Mulai Ismails myndu titra, þegar hann sæi gullið hár hennar flæða eins og silki yfir axlirnar. Hendur Osmans Farajis struku úr hári hennar, en hún sá ekki og ósk- aði ekki eftir að sjá hreyfingar hinna löngu, svörtu fingra hans, með skarlatsrauðu nöglunum og demantshringunum. Hún horfði enn niður fyrir sig. En samt — hún hafði aldrei fyrr tekið eftir því, hve bleikir lófar hans voru, næstum eins og þeir hefðu verið núnir með rósum. Hún reyndi að neyða sig til að hugsa um eitthvað annað, til að verða ekki gagntekin af þeirri hneisu að vera berháttuð frammi fyrir þeim húsbónda, sem hún varð að þýðast, hvort sem henni líkaði betur eða verr. Það fór ofurlítill hrollur um hana, þegar henni varð ljóst, að handleggir hennar höfðu verið afhjúpaðir. Hendur Osmans Faraji hreyfðust hratt yfir líkama hennar. Nú voru hendur hans á sjöttu blæjunni, sem myndi afhjúpa brjóst hennar og grannt mittið. Hún heyrði soldáninn segja á arabisku: — Hættu nú. Ekki gera hana vandræðalega. Ég get getið mér þess til, hve dásamleg hún er. Han reis upp af legubekknum og kom nær henni. — Kona, sagði hann á frönsku. —• Kona.... sýndu mér .... augu þín) Öll réttindi áskilin — Opera Mundi, Paris. Framhald i nœsta blaöi. Óskahljómsveitin Framhald af bls. 14. laga hans komiS á hljómplötu, lag- ið „Ef hún er nólægt mér". # Rúnar Júlíusson Bassagítar Hann er fæddur í Keflavík 13. apríl 1945 og heitir fullu nafni Guð- mundur Rúnar Júlíusson. Rúnar lærði á hljóðfæri sitt hjó Gunnari Þórðarsyni, sem hann segir vera listamann af guðs nóð. Rúnar er aðalsöngvari Hljóma og hlaut einn- ig allmörg atkvæði sem slíkur. Pétur Östlund. Trommur Péfur er fæddur í New York 3. desember 1943. Hann hefur leikið ó trommur fró því hann var 14 óra og er jafnvígur á hvaða teg- und tónlistar sem er. % Þorgeir Ástvaldsson Orgel Þorgeir er fæddur i Reykjavik 2. júní 1950 og er þannig yngstur þeirra sem skipa Óskahl jómsveitina. Hann hefur leikið með Tempó fró upphafi eða í fjögur ór. Þorgeir er einnig liðtækur píanóleikari og lék lengi framan af ó pianó með hljóm- sveit sinni. * Jón Trausti Her- varðsson. Saxófónn Jón er fæddur ó Akranesi 17. ógúst 1945. Fjögur ór eru liðin síðan hann nóði fyrst lagi ó hljóðfæri sitt og siðan hefur hann leikið með Dúmbó sextett. # Reynir Gunnarsson Saxófónn Reynir er fæddur ó Akranesi 24. febrúar 1948. Hann hefur leikið með Dúmbó sextett í tvö ór. & Rúnar Gunnarsson Söngvari Rúnar er fæddur í Reykjavik 10. marz 1947. Hann hefur leikið á rhythmagitar og verið aðalsöngvari með Dátum frá 18. júni 1965, en þá fóru Dátar fyrst á kreik. Söng- ur hans á hljómplötu Dáta hefur vakið mikla athygli. Rúnar hlaut einnig allmörg atkvæði sem rhyth- magitarleikarai. * Heklaður jakki Framhald af bls. 46. Saumið vasana frá hliðarsaum- um og fram og um 5 sm. frá neðstu brún. Gangið frá hnappagötunum með þynntum garnþræðinum og tungu- spori. Festið hnappa gengt hnappa- götunum og 1 á hvorn vasa. Hagsýnir velja PEERLESS eldhúsinnréttingar. Hentugar í eldhús af öllum stærðum, einnig tiivaldar fyrir sumarbústaði. Höfum nokkrar innréttingar tilbúnar til afgreiðslu strax. — Komið og skoðið uppsetta innréttingu. _ Húsmæður Nýtið geymsluna að fullu! Hentugar og ódýrar stálhillur fyrir hverskonar geymslur. Uppsettar hillur til sýnis á skrif- stofunni. Laugavegi 116. (hús Egils Vilhjálmssonar, 2. hæð) — Sími 16788. Má þynna . 30 sinnum, -Hœfilegt EPLI MANDARIN APPELSÍN Sunsip Elmaro, sími 23444 i 6 litra blöndu. Hin hentuga Sunsip dcela fœst auhalega OPTIMA VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.