Vikan - 28.09.1967, Qupperneq 15
SÍÐAN SÍÐAST
Óvitlaus hugmynd
Á sjúkrabílum í Eng-Iandi, nánar tiltekið í Hampshire, hafa þeir
tekið upp á því að láta orðið „ambulance“ (sjúkrabíll) standa með
spegilskrift framan á bílnum. Þetta er vissulega til þess að bílstjór-
ar í bílum fyrir framan geti lesið í speglinum hjá sér, hvaða bíll sé
fyrir aftan þá, en þurfi ekki að líta við.
Það hefur nefnilega verið hálfgert vandamál i Englandi, að þeg-
ar „ambulance“ stendur skrifað venjulegri letri, hafa bílstjórar
margir farið að dunda við það að stafa orðið, gleymt að líta fram
og lent í árekstri. Og undir slíkum kringumstæðum hefur oft ekki
verið vanþörf á að hafa sjúkrabíl fyrir aftan sig.
--------------------•--------------------
HVAD VERDUR ÞÁ
DM TANNLÆKNANA?
CETUR 3ÚLUEFNI KOMID
I VEG FVDIB TANNSKEMDIR
Víða um heim er nú leitað að þeim sýklategundum, sem orsaka
tannátu. Keppikeflið er að finna lyf eða bóluefni, sem kemur í veg
fyrir eða stöðvar tannátuna.
Tannskemmdir eru gífurlega algengur sjúkdómur í öllum iðnað-
arlöndum, — aðeins örfá prósent losna við að lenda í bornum óvin-
sæla. í barátlunni við tannátu er nú verið að reyna nýjar leiðir.
Þeir menn, sem hafa forystu um að finna nýtt og áhrifaríkt bólu-
efni gegn þeim sýklum, sem orsaka tannátu eru dr. Morris Wagner
við Notre Dame-háskólann í Indiana í Bandaríkjunum og Bo Krasse
við tannlæknaháskólann í Malmö.
Dr. Wagner hefur nú þegar fundið bóluefni, sem hefur stöðvað
tannátu í rottum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að það er beint sam-
band á milli vissra sýkla og tannátu. Svipaður árangur hefur feng-
izt í öðrum löndum. Eins og Krasse hefur dr. Wagnar heppnazt að
einangra vissar sýklalegundir (streptokokka), sem hægt er að rekja
tannátuna til. Það er álitið að þessum sýklategundum sé hægt að
fækka niður í fimm eða sex, en það gefur möguleikana til að fram-
leiða bóluefni gegn sýklinum sjálfum.
Dr. Wagner’ gerði tilraun með að gefa rottum jurtafæðu undir
tvenns konar kringumstæðum. Annars vegar í venjulegu umhverfi,
en hins vegar í sótthreinsuðu umhverfi. f fæðunni var mikið af
kolhydrötum, sem orsaka tannátu. En það voru aðeins þær fyrr-
nefndu sem fengu göt í tennurnar. Hinar rotturnar fengu líka tann-
skemmdir, þegar þær fengu sömu fæðu, blandaða venjulegum sýkli
(streptococcus faecalis). Aðrar rottur fengu ónæmissprautur, þ. e.
innspýtingu af dauðum sýklum. Árangurinn varð sá, að þær sluppu
nær alveg við tannskemmdir.
En þrátt fyrir þetta verður áreiðanlega löng bið eftir slíku undra-
lyfi handa mannfólkinu, því að það verður líka að taka það með í
reikninginn, að það er fleira en sýklar sem orsaka tannskemmdir.
Hrakfirir feourðar-
innar
Það er ekki langt síðan að ung stúlka á Long Beach í Bandaríkjunum
gekk Ijóshærð til sængur og átti sér einskis ills von. En það er heldur
ekki langt síðan, að þessi sama stúlka vaknaði með grænt hár. Það var
nefnilega morguninn eftir. Einhver snuðra hafði semsagt hlaupið á þráð-
inn á hárgreiðslustofunni, — og nú krefst sú grænhærða svo sem eins
og 450.000 ísl. króna í skaðabætur fyrir sitt dökka hár.
39. tbi. YIKAN 15