Vikan - 28.09.1967, Blaðsíða 26
FRÁ LIBNU SUMRI
Sumarið er liðið, og sólskinsstundirnar voru fleiri en oft áður á okkar mælikvarða — að
minnsta kosti hér sunnanlands. Þótt haustið ráði ríkjum þessa dagana með litbrigðum sínum
og angurstemmingu og vetur sé á næstu grösum, skulum við bregða upp nokkrum sólskins-
myndum frá liðnu sumri. Ljósmyndari Vikunnar tók þær allar sama daginn: fyrst í fjör-
unni vestur á Seltjarnarnesi, sem eflaust mætti gera að hinni myndarlegustu nauthólsvík
með ofurlitlum kostnaði, síðan í garðinum við gróðrarstöðina gömlu og loks stanzaði hann
í Grænuborg, þar sem krakkarnir fengu að drekka úti í garðinum.
LJÓSM.: KRISTJÁN MAGNÚSSON
Hér eru nokkrir Bretar að fá sér hressingu í jeppanum sínum, áður en þeir leggja af stað
út á land til þess að skoða hina margrómuðu náttúrufegurð okkar.
MBJMfo-/.--.................... c>
Hann svaf vært á
hörðum beltk undlr
steinvegg í garSin-
um, þar sem hún
Pomona stendur með
eplið sitt.
Það er sjaldgæft að
sjá fólk svona létt-
klætt úti á götu á ís-
landi — en þó kom
það fyrir f góðviðr-
inu á liðnu sumri.
£ Gæta þarf þcss
vel að taka ekki of
stóran hita í einu.
Þá vcrður manni kalt
í háisinum.
Síðan settust þau öll
við borð til þess að
gæða sér á ís. ^
26 VIKAN 39- tw-