Vikan


Vikan - 15.02.1968, Blaðsíða 6

Vikan - 15.02.1968, Blaðsíða 6
r á tvSV^sRAM Superlux® POSTURINN r STOR OG LINLEGUR. Góði Póstur! Þú færð nú ýmis vanda- mál og ólík að glíma við. Mitt vandamál er til d^em- is það, að ég hef svo stór- an og .linlegan sitjanda. Ég hef reynt að fara í matar- kúr, en þá fer andlitið á mér að slappa og barmur- inn líka. Hvað get ég gert ég er í þann veginn að fá komplex út af þessu? Þetta vandamál er ekkert einsdæmi. Margar konur hafa tilhneigingu til að verða dálítið miklar um sig að aftan, ekki hvað sízt þegar við bætist hreyfing- arleysi, sem nú er svo al- gengt meðal kvenna. En til þess að bæta úr þessu eða draga úr því, dugir ekkert hálfkák. Það er nauðsyn- legt að fá sem mesta hreyf- ingu, já, meira að segja áreynslu, án þess að föt þrengi um of að. Reyndu að ganga í kjólum, sem eru nægilega víðir til þess, að þú þurfir ekki að nota þröng mjaðmabelti, gott er, ef þú gætir látið þér nægja sokkabuxur. Notaðu síðan þetta fatafrelsi til að hreyfa þig eins og þú getur. Mörg- um hefur reynzt vel að beita sig hörðu og gera sömu æfinguna á hverjum morgni: Setjast flötum beinum á gólfið, rétta fram hendur í axlarhæð, lyfta fótunum beinum frá gólfi og — jú, það er alveg satt — hoppa á rassinum, þrisv- ar til fimm sinnum fram og jafn oft aftur á bak — nokkrum sinnum. Þessi æf- ing hefur góð áhrif á um- rædda vöðva og mittið líka. Hins vegar skaltu vara þig á að fara of geyst í kúrinn, snöggur sveltikúr gerir ekkert gagn, heldur þvert á móti. Alhliða Ieikfimi eða hóflega stundaðar íþróttir eru mjög til bóta, sömuleiðis að iðka sund ekki sjaldnar en cinu sinni viku. ÁSTAMÁL OG ÓSKA- HLJÓMSVEIT. Kæri Póstur! Ég vil biðja þig, sem úr öllum ástarmálum og vand- ræðum leysir, að svara einni spurningu. Ég er 16 ára og sit á skólabekk. Fyrir einu ári kynntist ég stelpu, sem er einu ári eldri en ég, og var ég með henni þangað til nú fyrir áramótin. Þá kom bobbið í bátinn, hún var þunguð og ég hætti að vera með henni af því að hún kenndi mér um þetta allt og sagði að ég væri búinn að eyðileggja lífið fyrir sér. Ég hef verið að íhuga þetta mikið síðan og kom- izt að raun um að þetta (ekki einsdæmi) stafar af vankunnáttu í kynferðis- málum, ekki bara hjá mér og henni heldur hjá mörg- um fleirum sem eru í sömu vandræðum. Ég spyr þig þá: Er ekki fræðsla um kynferðismál æskileg í skólum? Hefur aldrei verið rætt um þá hluti á fundum iækna? Svo vil ég spyrja þig spurninga sem ekki kemur ofangreindu við. í fyrra var kosin svonefnd óskahljóm- sveit í Vikunni. Hverjir voru í henni og hvenær verður sú kosning endur- tekin? Vonast eftir svari bráðlega og þakka allt gott. P. S. „Lengi lifi Vikan með Póstinum í.“ Lausaleikur. Þetta eru nú ljótu vand- ræðin, ef stúlkan er ófrísk vegna vankunnáttu fjölda manns! En það sannar bara hið fornkveðna, að það er hættulegt að leika sér með eldinn og að enginn skyldi hætta sér um of út í það, sem hann alls ekki kann. — Fræðsla um kynferðismál væri sjálfsagt æskileg, enda hefur mikið verið um hana rætt að undanförnu. — f óskahljómsveitinni voru þessir menn: Gunnar Þórð- arson, sólógítar, Erlingur Björnsson, rythmagítar, Gunnar Júlíusson, bassi, Pétur Östlund, trommur, Þorgeir Guðmundsson, org- el, Reynir Gunnarsson, saxófón, Jón Trausti Her- varsson, saxófón og Rúnar Gunnarsson, söngvari. — Endurtekning hefur ekki verið ákveðin. 6 YTKAN 7. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.