Vikan


Vikan - 15.02.1968, Blaðsíða 40

Vikan - 15.02.1968, Blaðsíða 40
V ' '\ mfm&sm __________/i J WímMi immm IV í ! nieð vir] . X-?Kí*5sáíi-í Philip Morns eins og persóna í Hitchcock kvikmynd, en ég skal skýra þetta nánar fyrir þér, eftir að allt hef- ur jafnað sig aftur. Barbara leit í vörn á Bart Breckenridge. — Það verður að bæta innihaldi þessa bréfs við annað. Hvernig hún var í vatni. Hún var eins og hún ætti heima þar. Krampi drekkir ekki fólki, nema það fái hræðslukast. Lucee var ekki þannig. — Lungu hennar voru full af vatni og það var ekki svo mikið sem skráma á henni. — Ætlið þér að láta yður nægja það, herra Breckenridge. Hann horfði fast á hana og henni fannst það óþægilegt. Hún fann þetta gegnum þrengjandi og ofurlítið stríðnislega augnaráð og smátt og smátt. Nánustu skyld- menni, beggja megin frá reyttu til okkar ölmusur við og við, en kölluðu þær alltaf eitthvað annað. Það rétt hrökk til að koma okkur systrunum í gegn- um miðskóla, en það varð að halda vel á spöðunum. Við urð- um að halda okkar stétt, vera félagar í réttum félögum. Það var stórmál, ef brotnaði bolli úr betra stellinu. Við vorum alltaf að skipta um líningar og lita fötin upp á nýtt. Fjórar kven- verur í einni íbúð. Það er staðn- að líf, herra Breckenridge. Lucee var sú fallega. Hún hafði mögu- leika til að komast undan. Það er jafnvel ekki laust við að hún hafi orðið fyrir þrýstingi heim- an frá. Mildum þrýstingi þó. Kelsey Phelps var afar aðgengi- legur, glæsilegur, kurteis og til þess að gera auðugur. Brúðkaup- ið setti okkur næstum alveg á hausinn, en við klóruðum í bakk- ann. Við höfum sennilega hrint henni í vont hjónaband. Ég vinn á veðmangaraskrifstofu. Ég fer beint til vinnunnar og beint heim. Ég gæti verið tuttugu og fimm ára eða fimmtíu og fimm, það skipti ekki miklu.... Hún snöggþagnaði og greip um hálsinn. — Ég ætlaði ekki að vera svona ... Tárin voru hræði- lega nærri. Hún marði sígarett- una í grunnum öskubakkanum, stóð snöggt upp og gekk yfir i hinn endann á herberginu og reyndi að ná stjórn á sér. — Ég vænti þess ekki að þér séuð köld eins og ís, varðandi þetta? — Reynið ekki að vera föður- legur! — Þú ert of mikið á verði. Ég stend þín megin. Reyndu ekki að hafa sérstök áhrif á mig, Bar- bara. Við verðum að vinna sam- an að þessu. Og við skulum segja Bart og Barbara. Hún kom nær. — Svo ég eigi auðveldara með að tala frjáls- lega? — Að nokkru leyti. — Þú skalt ekki misnota snilli þína á mig. Ég var bara að fá sjálfsmeðaumkunarkast. Þegar ég græt, vil ég að það verði fyr- ir Lucee, ekki fyrir mig. — Setztu. Lítlu á þetta. Þetta er dulargervið mitt. Hún settist og virti fyrir sér skjölin frá tryggingarfélaginu. — Þetta er snjallt! — Ekki sérlega. Þetta er mjög algengt. Fólk talar ef maður get- ur borið eitthvað á borð fyrir það sem það skilur. Við reyn- um að halda þessu eins og venju- legu og mögulegt er. Hún hallaði höfðinu út í aðra hliðina og brosti ofurlítið. — Reynir þú að líta út og haga þér eins venjulega og mögu- legt er, Bart? — Það er auðvelt, þegar mað- ur er venjulegur frá upphafi. Framhald í næsta blaði. skynjaði þessi skæru, djúpu, bláu augu. — Þegar ég er ánægður, ung- frú Horne, skal ég segja yður það. Ég var að fara með stað- reyndir. Ég fékk þetta staðfest í dag. Ég ætla að komast að fleiri staðreyndum. Þegar ég hef nóg af þeim getum við séð hvort það er skapað eitthvert ákveðið munstur. Þetta er ekki sorgar- leikur á sviði. Þar þarf bara að grafa og hnýsast, skoða og spyrja spurninga og oftast nær finnur maður ekki neitt munstur, sem neitt vit virðist í. Tilgangur, að- ferð, tækifæri. Annaðhvort snerta staðreyndirnar þessa þrjá þætti eða ekki. — Fyrirgefið. Ég vildi bara vera viss um að þér.... — Að ég væri iðinn? Ég skal vera það. Það er mitt starf. Nú þarf ég að fá svolitlar upplýs- ingar um yður og systur yðar. Hún þáði sígarettuna, sem hann bauð og hallaði sér fram til að ná í eldinn. Hún saug að sér reykinn cg sagði með vott af beiskju. — Já, um Hornestúlk- urnar. Hlutlæga skilgreiningu. Faðir þeirra dó fyrir langa löngu, í miðju viðskiptabraski, sem hefði gert þau hjónin auðug, ef hann hefði lifað. Dæturnar og ekkjan höfðu góða þjóðfélags- stöðu. Fátæktin var yfirgengi- leg. Gömul íbúð, röngu megin á góðu stræti. Móðir þeirra féll saman, stuttu eftir að hún varð ekkja. Föðursystir stúlknanna, piparjómfrú flutti til þeirra og hefur verið þeim stoð og stytta æ síðan. Nú er mamma að deyja, Gæðaframleiðiila frá Philin Morris Ii 40 VITÍAN 7-tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.