Vikan - 15.02.1968, Side 14
ANDRÉS INDRIÐASON
Paul McCartney er hér við Eclair kvikmyndavélina,
sem notuð var við töku „Magical Mystery Tour“.
Þess má geta til gamans, að vélin er af sömu gerð
og kvikmyndatökumenn sjónvarpsins okkar nota.
Iilanl slffiini
dómi
Yehudi Menuhin, fiðluleikarinn snjalli, sagði
eitt sinn: „Þótt ég kunni að leika á fiðlu, er
ekki þar með sagt, að ég kunni að búa til
góðan mat!“ Þetta hvarflar ósjálfrátt að okk-
ur, þegar við minnumst á nýjasta sköpunar-
verk Bítlanna — kvikmyndina „Magical My-
stery Tour“. Þótt Bítlarnir séu snjallir músik-
antar, er ekki þar með sagt, að þeir geti
gert kvikmynd! Myndin var sýnd í brezka
sjónvarpinu (BBC) á jóladag, og var mikil
eftirvænting að vonum ríkjandi. Eins og áð-
ur hefur verið sagt frá, var myndin að öllu
leyti gerð eftir fyrirsögn Bítlanna; þeir
sömdu kvikmyndahandritið, stjómuðu
myndatökunni og þeir önnuðust sjálfir klipp-
ingu myndarinnar. Það tók þá alls sjö daga
að klippa og fullgera þessa mynd, sem tekur
klukkutíma að sýna og var gerð með það fyr-
ir augum, að hún yrði sýnd í sjónvarpi ein-
göngu.
Skemmst er frá því að segja, að þessi mynd
Atriði úr „Magical Mystery Tour“. — Paul, Ringó og l>ekkt fígúra í brezkum skopmyndum.
hlaut hina herfilegustu dóma, og vissu fæstir,
hvað Bítarnir voru í rauninni að fara. Þeir
segjast hins vegar hafa gefið ímyndunarafl-
inu lausan tauminn, en því miður, það tókst
ekki betur til en svo, að öllum dauðleiddist,
sem myndina sáu, og vist má telja að höf-
undarnir hafi rýrnað mjög í áiiti. Paul Mc
Cartney kvaðst hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með viðbrögð almennings gagnvart
myndinni. Hann lét svo um mælt, að þeir fé-
lagamir hefðu álitið, að hvað sem þeir gerðu,
hlyti góðar viðtökur! Þessi ummæli Paul
féllu ekki í góðan jarðveg. Af þessu mátti
skilja, að Bítlarnir litu á sig sem heilagar
kýr, sem væru hafnar upp yfir alla gagn-
rýni.
Bítlamir hafa gefið í skyn, að næsta kvik-
mynd þeirra (til sýningar í kvikmyndahús-
um) verði gerð innan tíðar, en margir eru
fremur ókátir yfir þeirri yfiriýsingu þeirra,
að þeir ætli sjálfir að semja handrit og
stjórna myndinni að öllu leyti. Þeir segjast
nú vera reynslunni ríkari, en aðdáendur
þeirra óttast, að samt sem áður muni mynd-
in bera keim af sjónvarpskvikmyndinni Ma-
gical Mystery Tour.
14 VIICAN
7. tbl.