Vikan


Vikan - 15.02.1968, Page 27

Vikan - 15.02.1968, Page 27
,,Hvern diöfulinn ertu með í þessari tösku?" spurði Alain. „Aðeins póstinn. Hinkraðu við meðan ég sýni þeim farangurinn og vegabréfið." André lét sem sér stæði á sama þegar hann kom auga á mann í Cu- bana-jakka, sem fór fionum illa, að starfi að baki miðamannsins. Það var svo auglióst að hann var í hinni kúbönsku G-2 að hann hefði þess vegna mátt hafa einkennisstafi stofnunarinnar saumaða í jakkann. André setti ferðatösku sína á vogina og sá miðasalann renna augunum niðureftir farþegalistanum. Síðan sneri hann sér að manninum frá G-2. „Það eru þessar tvær handtöskur," sagði maðurinn frá G-2. „Ég held á þeim um borð." „Þær eru of stórar." „Ég er diplómat." „Mér þykir það leitt, en . . „Ég hef ekki hugsað mér að skilja þær við mig." „Setjið þær á vogina." „Nei." „Okkur hefur verið hótað sprengiutilræðum. Allur farangur verður veg- inn og rannsakaður." „Mér þykir það leitt, en. . . ." Maðurinn frá G-2 glápti á André, sem geispaði með leiðindasvip. „Hleypið honum í gegn," sagði maðurinn frá G-2 að lokum. Hendur miðamannsins skulfu meðan hann leysti hlutverk sitt af hendi. „Eftir ganginum, herra minn. Biðstofa númer þrjú." André hélt á handtöskum sínum og lagði af stað ásamt Alain Adam. Þeir höfðu ekki langt farið er varðmaður stöðvaði þá skyndilega. „Þér kveðiið vin yðar hér. Gestum er ekki hleypt inn í biðstofurnar." André skimaði í kringum sig og sá hvarvetna náunga úr G-2 á vakki. Tveir þeirra tóku sér stöðu að baki þeim svo að undanhald kæmi ekki til greina. Öllum öðrum brottfararfarþegum var vísað inn í biðstofur eitt og tvö. Hann yrði einn í stofu þrjú. Ekki var vafi á því að í tösku Juanitu var ærið efni til að koma henni í vandræði, svo og hundruðum annarra Kú- bana. Spilið var hafið! Flugvél frá Cubana lendir í Miami. Fransks sendifull- trúa saknað. Kúbanarnir myndu láta sem þeir hefðu ekki hugmynd um eitt eða neitt, sýna farþegalista sem nafn hans væri ekki á, biðjast afsökunar og lofa rannsókn, og endalok málsins yrðu þau að ekkert upplýstist. — André lét út sitt fyrsta spil á móti. Hann dró Alain Adam ( flýti til hliðar og hvíslaði fliótmæltur að honum. „Farðu undireins aftur til Havana. Náðu í Juanitu og láttu hana leita hælis ( sendiráðinu sem pólitískur flóttamaður. Hafðu síðan samband við Castro, Parra eða Che Guevara og láttu þá vita að okkur sé Ijóst hvað sé að gerast. Af stað nú." „Ég vil ekki skilja þig hér eftir einan, André." „Farðu. Reyndu að rugla embættismennina þeirra í ríminu sem allra mest. Hótaðu að fletta ofan af þeim. Þar eru okkar beztu möguleikar. Af stað nú." André horfði á eftir ambassadornum er hann yfirgaf flugstöðina og sá viðhafnarvagninn hverfa út frá afleggjaranum. Mennirnir frá G-2 höfðu nú slegið hring um hann. „Þér farið til bið- stofu númer þrjú," skipaði einn þeirra. Sá sem talaði virtist settur yfir hina. André nálgaðist hann hægt og hristi höfuðið. „Nei," sagði hann. „Munoz, húsbóndi yðar, bíður áreiðan- lega í einhverri skrifstofunni hérna. Nú gerið þér svo vel og hlaupið til hans og segið honum að við vitum hvaða leik hann er byrjaður á, og að franska sendiráðið hafi i nótt sent skeyti um það til Parísar. Ég hef hugs- að mér að bíða í stofu með öðrum farþegum unz hann óskar að ræða þetta mál við mig." Þar með skálmaði André framhjá manninum og inn í biðstofu tvö, sem iðaði af fólki. Kúbaninn, sem vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið, hljóp til skrifstof- unnar þar sem Munoz var fyrir og hafði upp fyrir honum orð Devereaux. Munoz japlaði um hríð á neðri vörinni og hrifsaði síðan til sín símann. „Gefið mér samband við Rico Parra!" æpti hann. Rico Parra hratt opnum dyrunum að Casa de Revolución. Hann kom undir eins auga á Juanitu de Córdoba, sem sat á stól með háu baki. Hernández, varðstjórinn, stóð fyrir aftan hana í allri sinni stærð og beindi handvélbyssu að höfði hennar. „Hún er vopnlaus," sagði Hernández. Rico gaf honum merki um að fara. „Ég er hreykin af þessari hersýningu m(n vegna," sagði hún, „en hennar var ekki þörf. Ég er sauðmeinlaus." „Þú ert álíka meinlaus og kóbra," svaraði Rico. „Eins og þú vilt." „Já, eins og ég vil. Það var ekki aulaskapur, sem gerði að verkum að ég lifði af skæruhernaðinn ( Sierra Maestra. Jæja, hvern andskotann viltu?" „Að sjálfsögðu veiztu hversvegna ég er hér," sagði hún. „Það er of árla morguns fyrir leikaraskap. Segðu mér eins og er." „Þú sagðist hafa eftirlit með vissum erlendum sendifulltrúum. Ég vil semja við þig um einn þeirra." Rico dró vindil upp úr brjóstvasanum og tuggði hann um hríð án þess að kveikja í honum. „André Devereaux verður að komast frá Kúbu heilu og höldnu." ,,Og ef hann sleppur?" „Þá færðu þína litlu dúfu." Klukkustund leið. „Takið eftir! Töf verður á Cubana flugi 438 til Miami, af tæknilegum orsökum." Það rumdi í fólkinu og á svipstundu breiddist út kvittur um að sprengja hefði verið falin ( flugvélinni. Skrifstofan var illa loftræst og andlit Munozar var blautt af svita. Full- trúi Cubana barðist eins og Ijón gegn því að fluginu yrði frestað frekar. Munoz horfði út um gluggann á flugvélina, sem beið út á brautinni. „Ég sagðist láta ykkur vita þegar vélin ætti að fara," sagði hann. „Og út með yður." Stórir svitaflekkir voru í einkennisbúningnum undir höndum hans og fóru hraðstækkandi. Þegar síminn hringdi, greip hann tólið svo snögglega að það rann úr rakri hendi hans. „Halló!" Það var Uribe. „Hefur þú haft uppi á Rico?" „Nei, en það er komið nokkuð nýtt upp á diskinn. Che Guevara var að hringja. Hann sagði að franski ambassadorinn hefði komið til hans og sagzt vita um samsæri til að ræna Devereaux." „Nú, og hverjar eru skipanir Ches?" „Hann sagði mér að það væri þitt, sem yfirmanns G-2, að ákveða hvað gera skyldi, þar eð hvorki næðist ( Castro né Parra." Munoz lagði á og fór sér hægt, gekk til dyranna, lauk þeim upp og kallaði á lautinantinn, sem beið frammi. Juanita grét lágt. „Þér býður við mér," tautaði Rico, uppgefinn og sjálfsmeðaumkunar- fullur. „Nei . . . ég græt vegna þess að ég er hamingjusöm," snökkti hún, „vegna þess að ég er svo hamingjusöm." „Takið eftir! Takið eftir! Cubana flug 438 hefst nú þegar. Farþegar geta haldið áfram til útgöngudyranna." FIMMTI KAFLI Fyrr þennan dag hafði forsetinn rætt ! tvær klukkustundir við sérlegan sovézkan sendimann, sem hafði það hlutverk að lofa friði af hálfu föður- lands síns og fullvissa bandarísk yfirvöld um að fyrirætlanir Sovétmanna hefðu verið mistúlkaðar. „McKittrick," sagði forsetinn, „ég ætlast til að Kúba sé Ijósmynduð end- anna á milli og það án tafar. Ég vil að því sé lokið á nokkrum dögum. Drífðu allar hindranir úr vegi." Síðan reis hann upp úr ruggustólnum og leit á St. James hershöfðingja. „Komdu með áætlanirnar varðandi hugs- anlega innrás í Kúbu," sagði hann. Hernández, varðstjórinn, stóð fyrir aftan Juanitu og beindi vélbyssu a8 höfði hennar .... 7. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.