Vikan - 15.02.1968, Blaðsíða 33
ÍSBIIÍBÍHÍHIIIIIIBIBHHHIHMHHhHBHIIIIIÍIIHRNIÍHPHHrhRhHBHHmHHIHS
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMliNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Vikan verður einkar þægileg. Engir stórviðburðir
gerast, en þú færð svar við mikilvægri spurningu.
Þú eignast nýjan kunningja af gagnstæða kyninu.
Þú stundar mikið áhugamál þín.
Tvíburamerkið (22. mai — 21. júní):
Fóik undir tvítugu er mjög upptekið af sjálfu sér
og bryddar upp á nýjungum. Varastu að sýna ná-
unga þínum lítilsvirðingu, jafnvel þótt hann hafði
telít nokkuð gróft.
Krabbamerkið (22. júni — 23. júlí):
Þú verður fremur heppinn, en þó mun eitthvað
skyggja á hamingju þína. Láttu ekki draga úr þér
kjarkinn því fátt fæst fyrirhafnarlaust. Skemmtanir
þínar og félaga þinna eru nokkuð kostnaðarsamar.
Þú átt í nokkrum erfiðleikum, sérstaklega skortir
þig tíma til að anna því sem þarf. Ekki þýðir annað
en taka verkefnin föstum tökum, og slá ekki slöku
við fyrr en öllu er lokið. Happatala er þrír.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú kannt vel við þig heima hjá þér, og átt lítið er-
indi út á meðal manna. Þú ert nokkuð uppstökkur
og var um þig, en reyndu að láta fara vel um þig
og hafast lítið að. Þú færð freistandi tilboð.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Annríki þitt í vikunni snýst aðallega um heimilið.
Þú átt verðmætan hlut sem þig langar mjög að koma
í verð, en ytri aðstæður hamla gegn því að sinni.
Þú verður að heiman á laugardag.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þér hættir til að gera lífið flóknara en það í raun-
inni er og búá þér til áhyggjur. Þú ert reyndar mjög
vel settur eins og er og margir hafa miklu erfiðari
aðstæður, svo þú þarft ekki að kvarta.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Þú eyðir of miklum tíma í draumaheimi. Reyndu að
gera þér ástandið ljóst eins og það er og horfast í
augu við það. Taktu þér tak og þér eykst sjálfs-
traustið. Föstudagur er bezti dagur vikunnar.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú færð einhvern hlut til umráða, sem ýmislegt
skemmtilegt á eftir að ske í kringum. Þú hefur ekki
sinnt vinnu þinni eins samvizkusamlega og skyldi,
undanfarið, en það er auðvelt að kippa því í lag.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú ert fremur þreyttur og leitar ýmissa óvenjulegra
leiða til að slaka á. Þér hættir til að ofmeta fáfengi-
lega hluti, en þar sem dómgreind þín er skörp, þá
hættirðu þessu von bráðar.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Ljónsmerklð (24. júlí — 23. ógúst):
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú verður að fá gjaldfrest, vegna þess að þú treystir
um of á aðra. Vertu fús að viðurkenna að þú hafir
ekki rétt fyrir þér, en ekki þó um of. Þrjóska þín
gerir þér erfitt fyrir.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert nokkuð þrasgjarn og veldur það þér og öðr-
um leiðindum. Á sunnudaginn ferðu í heimsókn, og
þá gefst þér gott tækifæri til að sýna þínar dipló-
matísku hliðar. Þú átt rólega helgi í vændum.
7. tbi. ynCAN 33