Vikan - 15.02.1968, Side 50
augun voru galopin og spyrjandi.
— En það geturðu ekki gert?
hvíslaði hún, furðu lostin.
— Ég get það og ég skal líka
gera það. Hann nuddaði sóran fót-
legginn. — Það sem eftir verður
er nóg til að gera við Super gömlu,
eða til að kaupa nýja flugvél, ef
hún fær ekki skoðun. Við getum
líka byggt tíu kofa í viðbót ó
Spiros.
— Er þér alvara? Hvað ætlarðu
að gera viðvíkjandi Sheilu?
— Hvað heldur þú? Hlustaðu nú
ó mig, það er mjög óríðandi. Um
leið og við erum horfin úr aug-
sýn flýgur þú Super til Spiros, og
lætur Philo lappa upp ó hana (
nokkra daga. Svo flýgurðu henni
hingað aftur og hittir mig við
Aþenuflugvélina ó föstudaginn
kemur.
— Roger, ég þori það ekki, ég
verð sett í lífstíðarfangelsi! Ég hef
ekkert flugvottorð!
— Þú skilur hana eftir hér, þetta
er mín flugvél og minn flugvöllur.
— Ég þori það ekki, ég þori
ekki . . . .!
— Þú verður að gera það og
þú skalt! Því að ég kem til baka
með meiri peninga en þú hefir
nokkru sinni séð í öðrum vasanum
og leyfisbréfið í hinum vasanum.
Við giftum okkur hér ó Lyceus og
næsta brúðarparið sem gistir Spir-
os verða eigendurnir, þú og ég. Þú
kemur á móti mér í Aþenu. Kysstu
mig nú tíu kossa, áður en þetta
fólk nær í mig!
Hann leit um öxl. Tanya stóð
við vélina.
— Bless, kallaði hann til henn-
ar. — Ta-ta, au revoir! Roger sneri
sér að Sheilu og yppti öxlum. —
Hún kann ekki orð í ensku, það
er synd!
Bílstjórinn hneigði sig og opnaði
bílhurðina.
Sheila sneri sér við. — Vesalings
stúlkan, hún stendur þarna eins og
steinrunnin, ég held hún sé að
gráta.
— Þær eru nokkuð tilfinninga-
samar hér, sagði Roger og fleygði
töskunni sinni í farangursgeymsl-
una.
— Hvað var hægt að segja,
hugsaði hann, meðan bíllinn skrölti
yfir ójafnan veginn. Hvað er hægt
að segja við þetta fólk, sem mað-
ur er fyrir löngu kominn úr tengsl-
um við?
Hvernig var hægt að skýra fyrir
þeim gleðina að vera frjáls,
spenninginn yfir því sem var hulið
bak við sjóndeildarhringinn, ham-
ingjuna yfir þv! að fljúga milli
skýjahnoðranna og sjá sólsetrið rétt
hjá sér, friðinn sem ríkti allt í
kringum mann?
Hvernig átti ég líka að koma
þeim í skilning um hvað Tanya
var mér dýrmæt? Hvernig átti ég
að segja þeim að Tanya var að
gráta af hamingju, hamingju, sem
þær gátu aldrei skilið.
— Það verður dásamlegt fyrir
þig, Roger, að komast aftur í menn-
inguna, eftir allt þetta, sagði Mattie
frænka.
Hann senri við og gekk til móts
við gestina, eftir flugbrautinni.
— Fyrirgefið þið töfina, ég þurfti
að athuga ýmislegt, hundinn og
annað.
— Dásamlegt, sagði hann og
kinkaði kolli.
En í huganum var hann við
Aþenuflugvöll næsta föstudag.
— Dásamlegt, endurtók hánn . . .
IIIAR El IIMIN HANS NÍA?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Síðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Finnbogi Finnbogason, Laugavegi 128, Reykjavík.
Nafn
Heimili
Örkin er á bls.
Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar.
7.
126 fðrusl-4 konst af
ún hafði safnað sér í
mörg’ ár fyrir ferða-
lagi til Ceylon og Thai-
lands, og loks náði hún
takmarkinu. Fyrir rösku
ári lagði hárgreiðslumærin
Dagmar Bliimel upp í
þessa langþráðu ferð, sem
varð býsna skemmtileg,
eins og vonir stóðu til.
Þangað til á heimleiðinni,
að flugvélin, sem hún var
með, flaug á fjall á Kýpur.
Aðeins fjórir af þeim 130,
sem um borð voru, sluppu
lífs, Dagmar þeirra á með-
al. „Þegar ég lauk upp
augunum á UNO-sjúkra-
húsinu í Nikosíu, var það
fyrsta, sem mér flaug í
liug: Nú veit ég, að krafta-
verk gerast ennþá!“
Átta mánuði hefur hún
verið á sjúkrahúsi síðan.
Hún fékk orlof þaðan til
að vera heima hjá foreldr-
um sínum um jólin, en
varð svo að fara aftur á
sjúkrahusið. En senn fer
hún alheil og frjáls ferða
sinna, og í jólagjöf gáfu
foreldrar hennar forkunn-
ar góða landabréfabók. Og
hún hefur hugann fullan af
ferðaáætlunum: „Ég ætla
að sjá allan heiminn. Ég
ætla svo sannarlega að
njóta þess, sem góður guð
hefur gefið mér — og það
væri ólíklegt, að ég lenti
í öðru flugslysi!“
50 VIKAN 7-tbl-