Vikan - 28.03.1968, Side 2
SMITH-CORONA
30 GERÐIR
Stórkostlegt úrval rit-og reikni-
véia til sýnis og reynslu i nýjum
glæsilegum sýningarsal;
ásamt Taylorix bókhaldsvélum og
fullkomnum samstæðum skrifstofu-
húsgögnum
SKRIFSTOFUTÆKNI
© ©
ÞVOTUVÉl PURRIURI
ára levnsla!
VANDLÁTIR VELJA WESTINGHOUSE TÆKIN
Ekki aðeins vegna þess,að Westinghouse er leiðandi
i heiminum i dag í tækniþróun og framleiðslu
heimilistækja, heldur einnig af því, að á íslandi er
þegar fengin 20 ára reynsla af gæðum og endingu
tækjanna frá Westinghouse.
ALLUR SAMANBURÐUR ER WESTINGHOUSE í VIL
Nánari upplýsingar, myndalistar og sýnishorn í
NÝJUM GLÆSILEGUM SÝNINGARSAL
ARMULA 3
SÍMI 38900
Að eiga sitt hjá sér
Á elliheimilinu Grund er
gefið út fjölritað blað. Heim-
ilispósturinn. Utgefandi er
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri,
og ritar að jafnaði í blaðið
sjálfur. Kennir þar margra
grasa, og í þessum pistli ætla
ég að endurprenta hluta af
einni grein Gísla í desember-
heftinu frá 1967, með leyfi höf-
undar. Hann ræðir þar um
verkamannabústaðina við
Hringbraut og Brávallagötu,
tildrögin að gerð þeirra og
hvernig fyrirkomulag er í
þeim í aðalatriðum. Hann
bendir. á, að félagsmenn í
Byggingafélagi verkamanna
gangi fyrir um kaup á þess-
um íbúðum, þegar þær losna,
og fái þær við vægu verði,
miðað við ef þær væru seld-
ar á frjálsum markaði, vegna
ákvæða þar að lútandi. F,n
aðstæður hafa breytzt og sum-
ir þurfa á stærri íbúð að halda
eða íbúð annars staðar; það
verð, sem þeir fá nú hrekkur
skammt til kaupa á annarri
íbúð á frjálsum markaði. Síð-
an segir Gísli Sigurbjörnsson:
„Grund er við Hringbraut.
Litlu vestar eru verkamanna-
bústaðirnir. Væri því ekki til-
valið að fá íbúðir í þessum
húsum keyptar fyrir aldrað
fólk, sem gæti hugsað um sig
sjálft, en þyrfti á aðstoð eða
hjálp að halda, þá væri hægt
að fá hana á Grund. Breyting
á löggjöf þarf að vera þann-
ig, að heimilt sé að selja íbúð-
irnar elliheimilinu til að nota
þær fyrir aldrað fólk. Sölu-
verð væri gangverð á íbúðum
í borginni og myndu þvi selj-
endur fá miklu hærra verð en
þeir fá nú, þegar þeir verða
að selja íbúðirnar samkvæmt
sérstökum ákvæðum til félags-
manna.“
Ég vil taka undir þessi orð
Gísla. Þetta væri hagkvæm
lausn á nokkrum vanda aldr-
aðs fólks, því allir vita, að
þörf manna til að eiga sitt út
af fyrir sig og búa sem mest
að sínu vex með árunum, og
jafnframt er með þessu móti
kleift að hjálpa þessu aldraða
fólki og létta því ellina, án
þess að það sé beinlínis á
s.: