Vikan - 15.08.1968, Page 19
9. Þú mátt ekki taka það sem gefið, að á þig
sé litið sem kóng, þegar þú kemur heim frá
vinnu. Þótt þú getir stjórnað á skrifstof-
unni, þegar þú skipar skrifstofuþrælum fyr-
ir verkum, gildir ekki sama reglan heima.
F.n ef þú á einhvern hátt hefir öðlazt ein-
hverja sjeikstöðu á heimilinu, skaltu vera
þess minnugur að „allar hetjur verða þreyt-
andi til lengdar". ________________
10. Öskeikulleiki þinn (í eigin augum) er ekki
dyggð, ef þú berð hann með fýlusvip.
Ef þú ert þreyttur, þegar þú kemur heim,
skaltu nota síðustu kraftana til að brosa við
fjölskyldunni, þótt það sé næstum ofraun.
Þú skalt ekki hlusta á þá sem segja að falskt
blíðubros sé einskis virði.
JEISTA REGLA EIGINMANNSINS
IETTI AD VERA Sð. AD SLÁ
KONLNNI RlKULEGA GUUHAMRA
ÞEGAR HUN Á SfZT VON A
£g get fullvissað þig um það, að það er
ekkert sem hefir eins mikil áhrif á konuna
og bros frá dauðþreyttum manni, og ekkert
sem frekar fær hana til að stjana víð þig
allt kvöidið.
11. Þú skalt ekki temja þér að kalla konuna þína
hænu, eða einhverjum öðrum nöfnum, í
tíma og ótíma. Það er orðið svo úrellt að
hún herpir ekki einu sinni munninn, og þótt
hún svari þér ekki í sömu mynt, þá máttu
ekki taka það sem undirgefni, heldur þvert
á móti.
12. Láttu það aldrei henda þig að þykjast vita
allt betur en konan þín. Ef þér verður það
á að falla í stafi yfir þinni eigin vizku, þá
skaltu hafa það í huga að aðrir karlmenn,
- heimsþekktir og hátt settir, hafa ekki verið
skynsamari en það, að þeir hafa komið
mannkyninu í öll þau vandræði, sem steðja
að því í dag. Hver veit nema eitthvað hefði
verið öðruvísi, ef konur hefðu fengið að
ráða meiru. Hver veit nema að þú komist
niður á jörðina aftur, ef þú hugleiðir þetta
vel.
32. tbi. VIKAN 19