Vikan


Vikan - 29.08.1968, Qupperneq 12

Vikan - 29.08.1968, Qupperneq 12
Hvíta húsið í Washington er tákn hins bandaríska stórveldis. Þar situr forseti Bandaríkj- anna, — en embætti hans svarar til embætta forseta (eða konungs) og forsætisráðherra í flestum lýðræðislöndum öðrum — og þar eru teknar ákvarðanir sem skapa öllu mannkyni forlög. Ekkert lýðræðisríki hefur nokkru sinni gefið þjóðkjörnum leiðtoga meira vald en það bandaríska. (Hér mætti þó ef til vill undanskilja Frakkland). Við Hvíta húsið eru tengdar vonir milljónanna um frið og ótti þeira við ófrið. Þessi valdamiðstöð er staðsett í fallegum garði, umgirtum grindagirðingu, og er yfirmáta friðsemdarleg en jafnframt tíguleg til að sjá. Staðarins er vandlega gætt af varðmönnum. Hvíta húsið var tekið í notkun árið 1800, og síðan hafa þrjátíu og sex forsetar búið þar ásamt fjölskyldum sínum. Þeirra á meðal voru nokkur mikilmenni, en líka nokkrir sem Banda- ríkjamenn vilja helzt gleyma. Hvíta húsið hefur, líkt og þjóðin í heild, gengið í gegnum sitt Að ofan: „Græna herbergið", uppáhaldsherbergi Kennedys forseta í Hvíta húsinu. Fyrir neðan: Vinnuherbergi íorsetans, séð úr sæti hans við skrifborðið. í»essi „röntgen-teikning" sýnir nokkur þekktustu herbergin í Hvíta húsinu. 12 VIKAN 34. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.