Vikan - 29.08.1968, Qupperneq 23
Lady Bird með gestum X
vesturálmu á fyrstu hæð.
— Þetta herbergi hefi ég
sjálf skreytt, segir hún.
Þaö er grænt, gult og apri-
kosulitt, sem eru litir fjöl-
skyldunnar. Okkur finnst
þetta herbergi heimilislcgt.
Borðstofa fjölskyldunnar. í>
onan, sem raunverulega heitir Claudia Alba, viður-
kennir einfaldlega: — Ef mig liefði grunað að ég
ætti einhvern tíma eftir að verða forsetafrú, fyrsta
frú ríkisins, hefði ég reynt að losa mig við gælu-
nafn mitt, „Lady Bird“.
Lady Bird, (sem þýðir maríuhæna) hljómar líka
undarlega á amerísku, þegar átt er við virðulega
ommu á fimmtugast og sjötta ári.
Eins og kunnugt er var það afleiðing af morð-
inu á Jolin F. Kennedy, að Johnson hjónin fluttu
inn í Hvíta húsið. Það hefir ekki verið erfiðislaust fyrir konu,
sem ekki hafði verið mikið í opinberum störfum, fyrr en maður-
inn hennar varð varaforseti, að verða að taka við slíku starfi, fyrir-
varalaust, og það var örugglega ekki hentugt að heita Lady Bird.
Þegar Lyndon B. Johnson, hinn örlagarika dag í nóvember 1963,
tók við embætti forseta Bandaríkjanna, þótti hann, samanborið
við Kennedy, ekki nema meðalmaður, og konan hans, sem bar
þetta hlægilega nafn. viðurkenndi sjálf að hún væri aðeins ósköp
„venjuleg kona“.
Síðar kom það í ljós að Lyndon B. Johnson, var ekki einungis
metnaðargjarn stjórnmálamaður, heldur var hann lika hamingju-
samur eiginmaður, sem tilkynnti það hatt og hatiðlega að „an
T,adv Bird, væri ég glataður maður“.
Þessi ummæli og mörg önnur vöktu mikið umtal, og Lady
Bird var líka stöðugt líkt við fvrirrennara sinn. Jackie Kennedy,
svo hún var sannarlega ekki öfundsverð.
Hún trúði náinni vinkonu sinni fyrir því að fyrstu dagana í
TTvíta húsinu liefði sér liðið eins og leikkonu, sem komin væri
upp á leiksvið í fyrsta sinn, án undangenginna æfinga. ITún var
fædd og uppalin í sveitahéraði. Faðir hennar hét Taylor og hann
vak lyfjabúð i sináþorpinu Karnack, þar sem íbúar voru aðeins 100.
Þegar Lyndon B. Johnson var 25 ára var hann langur, mjög
horaður, en ákaflega duglegur. TTann liefir greinilega orðið
ástfangin af ungu stúlkunni Claudiu Alba Taylor, sem þá var
orðin stúdent, við fyrstu sýn. Hann kvnntist henni hjá sameigin-
legri vinkonu þeirra í Austin, í september 1934.
Claudia A. Taylor suðræn í útliti og mjög lagleg, var aðeins
108 cm á hæð, og þykir það frekar lágvaxið í Texas. TTún hefir
stór, hlýleg, brún augu og blásvart hár. en í seinni tíð hefir hún
látið skola hárið og hefir það nú rauðbrúnt, sem fer betur við
hvíta húðina. Þesar Claudia Alba fæddist., hrópaði þeldökka barn-
fóstran: — Ó, hún er eins og ladybuff“ (ladvbug býðir hka mariu-
hæna). Móðir hennar fannst þetta fallegt nafn, þótt hún hefði mis-
skilið stúlkuna. Nafnið varð Ladv Bird og festist við hana ævi-
langt. oa' allar tliraunir hennar til að losna við það hafa mistekizt.
Ladv Bird missti móður sína þegar hún var fimm ára, og bjó
með föður sínum eftir það.
Lvndon Johnson lauk prófi úr sjötta bekk ríkisháskólans í John-
son Cit.v, smábæ í Texas, sem afi lians hafði grundvallað. Hann
var þá 10 ára. Hann fór til Kaliforniu, með aðeins 26 dollar í
vasanum, og þurfti að nota megnið af þeim í fargjöld.
Þar sem hann gat ekki vænzt neinnar hjólpar frá föður sínum
eða bræðrmn, varð hann sjálfur að sjá sér farborða. Hann svelti
sig bókstaflega til að komast gegnum kennaraskóla, og vann fvrir
sér með allskonar íhlaupavinnu. T tvö ár, eða þangað til hann
lauk prófi frá kennaraskólanum, svaf hann og las í lítilli kompu
yfir bílskúr, og eigandi skúrsins vissi ekki einu sinni að hann
var þar. Hann lauk prófi eftir tvö ár, árið 1930. Þá fór hann að
kenna mexikönskum börnum og fékk 125 dollara á mánuði, lítil
laun en örugg.
Johnson var mjög hrifinn af Franklin Helano Roosevelt. hin-
um lamaða ríkisstjóra New York fvlkis, sem sigraði remiblikan-
ann í forsetakosningunum 1932. f bakklætisskvni fyrir dugnað i
kosningabaráttunni, fékk Lyndon Johnson ritarastarf í Washing-
ton. og 267 dollara mánaðarlaun.
Frá þeim tíma var hinn ungi maður altekinn af stjórnmálunum
og hefir verið það æ siðan.
34. tbi. viKAN 23