Vikan


Vikan - 29.08.1968, Blaðsíða 26

Vikan - 29.08.1968, Blaðsíða 26
Tímabil iómfrúarinnar er síðasti hluti sumarsins og með því lýkur fyrra helmingi dýrahringsins, sem hófst með hrútnum. A Ijónstímanum þroskast kornið og blómstrar, ó tímabili jómfrúarinnar hefst upp- skeran. Menn byrja að skynja ná- lægð haustsins. Tóknmynd þessa merkis er ung stúlka, jómfrú, sem gjarnan er sýnd með vængi og kornöx í höndum. Hún er tákn hinnar nýju, ósnortnu moldar, sem býr sig undir að taka á móti gróðri næsta dýrahringhelm- ings. Þrátt fyrir þessa vængi sína tilheyrir jómfrúin, ásamt nautinu og steinbukknum, jarðþríeykinu. Segja má að steinbukkurinn tákni gadd- kalda janúarmoldina, en nautið hina feitu, röku og hlýju maíjörð, þegar gróðurinn sprettur. Jómfrúin merkir hinsvegar síðsumarjörðina, sem er Sophia Loren, f. 20/9 1934 við áhrif tungls, sólar og Neptúns. skrælþurr eftir sólskin hásumarsins. Til að gera sér betri hugmynd um jómfrúna, er ágætt ráð að bera hana saman við það merki, sem er andfætlingur hennar í hringnum, fiskana. Segja má að jómfrúin lifi í heimi talsverðra takmarkana; hún leggur mikið upp úr að gera sér sem skýrasta grein fyrir form- um hlutanna, dáir reglur, skilgrein- ingu og formúlur. Heimur fiskanna er hinsvegar ótakmarkaður, óendan- legur, formlaus, ólýsanlegur. Líkja má jómfrúnni við líffræðing, sem rannsakar smæstu hugsanlegar líf- verur gegnum smásjá, en fiskunum við stjörnufræðing, sem rýnir í vetr- arbrautina í stjörnukíki. Jómfrúin hneigist til hlutleysis, hleður um sig veggi til hlífðar gegn öldugangi veraldarinnar. Fiskmennið lítur hins- vegar á sig sem hluta af heildinni, líkt og einn af ótal dropum sjávar- 23.8. ins, það er stöðugt fullt af hluttekn- ingu gagnvart meðbræðrunum. Hún er hinsvegar gefnari fyrir að flokka sundur og kanna hvert einstakt smá- atriði sér á parti. Hún heldur aftur af tilfinningum sínum; tekur greind og rökrænar þenkingar langt fram yfir þær. Sú stjarna sem mestu ræður með jómfrúnni er Merkúr, sem einnig er drottnari tvíburanna. Má segja að eiginleikar merkis og stjörnu séu að miklu leyti þeir sömu. Þeim mun meiri sem áhrif Merkúrs eru í merk- inu, þeim mun meira kveður þar að greind og menntahneigð. Þessa nutu til dæmis skáldjöfrarnir Maet- erlinck og Tolstoj. Tunglið er nátengt gróandi jurta- lífi og frjósemi, svo að það á held- ur illa heima í jómfrúnni, tákni hinnar þurru, skrælnuðu jarðar. Leó Tolstoj, f. 9/9 1828 vi8-áhrif frá sól, mána og Merkúr. Dæmi- gert meymenni af bezta tagi. Þessvegna er máninn yfirleitt hálf- gerður vandræðagemlingur, þegar hann lætur sjá sig í merkinu, veld- ur þá eirðarleysi, skorti á öryggis- tilfinningu og elur upp í fólki minnimóttarkennd. Mánajómfrúr hneigjast oft til sjálfskönnunar, svo að við þessi skilyrði verða stund- um til góðir sálfræðingar. Kven- fólk sem fætt er við þessi skilyrði verður oft óþægilega barnalegt, en reynir að bæta úr þvl með því að temja sér hamingju og sjálfsaga. Engu betur er Venus, stjarna ást- arinnar, sett í þessu merki. Við samkrull hennar og jómfrúarinnar verða til hlédrægar, feimnar og blygðunarfullar manneskjur. Þær forðast að hrífast af því, sem þeim kann að þykja fallegt og reyna að bæla niður hverskonar tilfinningar. Marz fylgir allsstaðar, sem við vitum, æðimikill sóknarhugur, en auðvitað reynir jómfrúin að halda aftur af honum eins og öðru. En sú hamning getur haft þær óheilla- afleiðingar að skotið hlaupi aftur úr byssunni, það er að ágengnin og sóknarhugurinn, sem Marzmönnum er eðlilegt að beina út á við, bein- ist þess í stað inn á við, að mann- eskjunni sjálfri. Lúðvík sextándi Frakkakóngur hefur oft verið nefnd- ur til dæmis um þessháttar menn, sem nota stríðslund sína sjálfum sér til eyðileggingar. En stundum brýzt þessi hermannlegi baráttuhugur, sem Marz fylgir, þó út á við, þá venjulega ýmislega breyttur og um- myndaður. Þannig geta komið fram ofstækisfullir anarkistar og útsmogn- ir og kaldrifjaðir harðstjórar en líka sérlega skynsamir skipuleggjendur með skýran og flækjulausan þanka- gang. Johann Walfgang von Goethe, f. 28/8 1749 viS mikil sólaráhrif. Júpíter fylgja hér sem annarsstað- ar sígildir verðleikar, reglusemi, drenglund, agi, hófsemi, en líka aðrar dyggðir borgaralegri: siðferð- isleg nákvæmni, móralskur þanka- gangur, heimilisagi og guðhræðsla. Satúrnjómfrúr eru yfirleitt mjög innhverfar, leggja áherzlu á nið- urbælingu hverskonar hvata, hlé- drægni, aga, háttprýði og stjórn- semi. Þetta getur, þegar verst læt- ur, endað í meinlætum og þyrrk- ingslegri kerfisdýrkun. Úranus magnar einnig hneigð jómfrúarinnar til velsæmis og strang- leika, en hefur jafnframt nokkur byltingakennd áhrif á hana. Neptún fylgir hvarvetna mikið og auðugt ímyndunarafl, og á það heldur illa við þann kaldlynda skynsemisdýrk- anda, sem jómfrúin er. Neptúnsjóm- frúr skortir þessvegna yfirleitt mik- ið á innra jafnvægi og sálarró. Af goðsögnum mun sú er fjallar um uppskerugyðjuna Demetru hvað nátengdust jómfrúnni. Meginatriði hennar eru þau að Hades, drottn- ari undirheima, stal Persefónu, dótt- ur Demetru, sem þá hljóp út um allar trissur og hrópaði á sitt týnda afkvæmi. Þeir, sem innvígðir eru i leyndardóma astrólógíunnar, segja þesskonar skipulagslausa og æðis- lega leit sýna, að menn vilji innzt inni ekki finna það, sem þeir leita að .Þetta er snar þáttur í eðlisfari meymenna — þannig mætti nefna þá, sem í merkinu eru fæddir — þau óttast og forðast það, sem þau girnast sem ákaflegast. Lok goðsögunnar eru þau, að Seifur miðlaði málum milli Hadesar og Demetru; skyldi Persefóna dvelj- ast um vetur hjá kóngi undirheima, en um sumur hjá móður sinni. 36 VIKAN 34- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.