Vikan


Vikan - 29.08.1968, Síða 29

Vikan - 29.08.1968, Síða 29
Reykurinn fer ca. 22,5 sm. í gegnum kælikerfi RONSON pípunnar og kemur kældur og þurr út. EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. HVERFISGÖTU 89, REYKJAVÍK. Þaö eru fleiri en ein pípa í sömu pípunni, 10 mismun- andi kóngar o'; tvenns konar munnstykki fyrirliggjandi. Það er hægt aö velja á milli. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vertu ekki of hlédrægur. Láttu ekki smámuni fara í taugarnar á þér, reyndu að sjá einhverja skyn semi í skoðunum annarra. Sýndu vinum og maka traust og láttu þá finna að þú metir þá mikils. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Ef þú notar þér þau sambönd sem þú hefur, geturðu liagnazt nokkuð. Þú ert fremur eirðarlaus, einbeittu þér betur og árangurinn verður eftir því. Þú gerir samning á föstudag. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Sýndu varfærni í fjármálum. Það er mikill sann- leikur í orðrómi þeim er gengur á vinnustað, en gættu þess að bera hann ekki áfram. Þú hefur til- hneigingu að vanrækja störf þín vegna eigin anna. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vegna forfalla á vinnustað hefurðu í fleiri horn að líta en venjulega. Þú hefur bók að láni sem þú ættir að koma til skila hið bráðasta. Vikan er ekki vel fallin til viðskipta. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vertu vel á verði. Breytingar á högum þínum virð- ast á næsta leiti. Forðastu að segja nokkuð sem leggja má út á fleiri en einn veg. Óheppilegt að gera bindandi samninga. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Eitthvað óvænt og óvenjulegt gæti gerzt um miðja viku. Taktu öllu með stillingu, hvort sem þér falla hlutirnir betur eða verr. Nágranni þinn veitir þér helzt til mikla athygli. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Vinir þ'nir koma þér á óvart, en þú færð engar skýringar. Þú átt mikilvægt stefnumót seinni liluta vikunnar. Vertu ekki o£ auðtrúa, þótt þú getir vel látið sem svo þú trúir öllu. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Farðu varlega í fjármálum og skeyttu engu þótt þú verðir fyrir aðkasti þess vegna. Ef þig langar í til- breytingu er vikan kjörin til þess. Þú færð lang- dregið og innantómt bréf. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vikan verður dálítið óvenjuleg. Fullvissaðu þig um að skoðanir þínar hafi ekki valdið misskilningi. Þú færð lánaðan hlut sem léttir mikið undir störf þín. Það er mikill óróleiki umhverfis þig. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Eitthvað sem þér finnst næsta ólíklegt skeður innan tiðar. Veldu orð þín vandlega og vertu vel vakandi innan um fólk. Ferðalag færir þér nýjar og spenn- andi hugmyndir. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú ættir að halda sem kyrrast fyrir og ekki brydda upp á nýjungum. Gestakoma veldur þér noklcrum óþægindum. Hafðu samband við vin sem lengi hef- ur beðið eftir að heyra frá þér. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Gættu stillingar og reyndu að forðast margmenni. Láttu ekki gabba þig, en vertu samt ekki of tor- trygginn. Gerðu yfirlit yfir eyðslu þína, þú getur áreiðanlega sparað meira.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.