Vikan


Vikan - 29.08.1968, Side 33

Vikan - 29.08.1968, Side 33
ósveigjanlegur. Rétt sem þau komu að bílunum hlýtur hún að hafa gert sér ljóst að hún hafði glatað Howard og myndi ekki vinna hann aftur. Hún sleit sig lausa og hljóp í burtu. Howard hljóp á eftir henni og náði henni. Ég reikna með að öll sú beizkja sem myndaðist hjá honum, þeg- ar hann frétti hvernig allt var í pottinn búið frá upphafi, hafi verið í fyrsta högginu, sem hann greiddi henni. Og þegar hún var fallin hélt hann áfram að berja hana. Ofboðsleg reiði knúði hann áfram. Herra Sam tók vasaklút úr brjóstvasa sínum og þurrkaði í framan með honum. — Með hverju sló hann hana? spurði Peter. Herra Sam leit snöggt á Ho- ward. Howard var grafkyrr, hall- aði sér upp að bókunum með augun lokuð. — Byssuskefti, sagði herra Sam. — Ber hann byssu á sér? Pet- er leit á Söndru. — Er það, Sandra? — Eg vissi ekki að hann ætti byssu, hvíslaði hún. — Það er byssusafn í öðru her- bergi hér, svaraði Sam óákveðið. — Hvað gerðist svo, herra Delafield? spurði Macklyn. -— Howard rann reiðin. Hann horfði á stúlkuna og hélt að hann hefði drepið hana. Þá varð hann ofsahræddur. Hann þreif hana upp og bar hana inn í bílinn sinn, hann lagði hana í aftursætið og ók með hana hingað út í grjót- námuna, svo gekk hann upp að húsinu og sagði mér alla söguna. Herra Sam andvarpaði: —- Hann er sonur minn Macklyn og hann er okkur mjög mikilvægur. Eg ákvað að reyna að hjálpa hon- um og gerði Joe að trúnaðar- manni mínum- Við sendum Ho- ward í verksmiðjuna en við Joe ókum aftur út að húsi stúlk- unnar. Joe tók bíl Howards og ók honum aftur hingað; ég fylgdi honum eftir á mínum. Við þaul- leituðum allan staðinn og fund- um ekki neitt sem beint gæti grun að Howard. Það var skyndi- leg hugdetta, sem kom mér til að hringja á lögreglustöðina, breyta röddinni og tilkynna morðið. Mér var óbærilegt að bíða eftir því að þetta uppgötv- aðist fyrir tilviljun. Ég vildi að þessu yrði aflokið sem fyrst. Macklyn lögregluforingi leit á Peter: — Ánægður Styles? — Nei, svaraði Peter. — Hvað er nú að þér? spurði Macklyn. — Þú hefur ekki yfirheyrt þriðja yfirhilmarann, sagði Pet- er. — Hvern meinarðu? Peter leit á þann þjóðverja- lega Gus Kramm: — Herra Kramm gaf Howard fjarvistarsönnun í gær. Hvernig var hún nú aftur? Howard fór úr verksmiðjunni klukkan fimm- tán mínútur yfir tvö og kom þangað aftur fimm mínútur fyrir þrjú. Var í verksmiðjunni til sex. Var þetta ekki rétt? -—- Það er rétt, ég bókaði hann sjálfur inn og út, sagði Kramm. — Og þá sérðu hversvegna ég er ekki ánægður með þetta, sagði Peter. —• Ef Kramm segir sann- leikann hrynur saga herra Sams í parta. Við drögum frá hálfa klukkustund í milliferðir og þá verður allt það sem herra Sam segir að gerzt hafi að hafa farið fram á tíu mínútum. Látum okk- ur sjá hvað hann segir að gerzt hafi. Howard kom, hann heilsaði Mary og þau fóru inn í húsið.. Mennirnir tveir komu, þeir þrátt- uðu við Mary — nógu lengi til að Howard komst á snoðir um alla þessa leiðinlegu sögu, svo skaut hún mennina tvo. SvO' reyndi hún að réttlæta sig fyrir Howard. Svo þráttuðu þau um hvort þau yrðu að fara til lög- reglunnar- Svo gengu þau út á bílastæðið. Síðan reyndi Mary að flýja, Howard náði henni og barði hana meðvitundarlausa. Svo tróð hann henni í litla Triumphinn og ók henni út í grjótnámuna. Svo> gekk hann hingað upp að hús- inu, fann Sam og sagði honum hvað gerzt hefði. Síðan ræddu þeir um hvað gera skyldi, þeir- sömdu áætlun og Howard fór: aftur í verksmiðjuna. Getur allt þetta hafa gerzt á tíu mínútum? Það hefði mátt heyra flugu anda í herberginu. Howard starði uppglenntum augum á föður sinn. — Þessar tímaákvarðanir sem ég gaf ykkur um ferðir Howards eru nákvæmar, sagði Kramm með erfiðismunum. Ég bóka venjulega ekki sjálfur þá sem koma og fara, en þegar svona margt ókunnra manna er í borg- inni, tók ég sjálfur á mig ábyrgð- ina gagnvart leyndasta hluta starfseminnar — rannsóknarstof- unni. Sg bókaði hann inn og út;. ég sá hann stimpla kortið sitt; ég sá hann skrifa sig í bókina. — Ef Kramm segir sannleik- ann er herra Sam blygðunarlaus lygari, sagði Peter. — Er þetta nóg til að opna augu þín, Mack- lyn? Macklyn starði á herra Sam og beið eftir afneitun. En mað- urinn var enn einu sinni að þurrka andlitið með vasaklútn- um, sem nú var orðinn blautur. — Hvernig gaztu látið koma þér til að taka þetta á þig Ho- ward? spurði Peter. Hálsvöðvar Howards hreyfðust með rykkjum. Peter hélt áfram: -— Sandra segist hafa séð þennan Christie tala við þig í klúbbnum Howard. Hvað var hann að segja? Um hvað spurði hann þig? Howard var enn þögull. — É'g skal geta upp á því, sagði Peter. — Hann spurði hvar hann gæti fundið föður þinn. Rétt? Það fóru kippir um augnalok Howards en hann svaraði engu. Peter sneri sér að herra Sam- — Það varst þú sem heyrðir allt, Delafield. Það varst þú sem fald- ir þig í húsinu. Howard stökk fram snöggt og óvænt. Hann var næstum kom- inn að föður sínum, þegar lög- reglumennirnir tveir náðu taki á honum aftur. — Er til sannleikskorn í því, sem þú sagðir mér? öskraði hann framan í herra Sam: — Sagði hún í raun og veru að hún hefði hætt að segja Christie, það sem ég sagði henni vegna þess að hún hefði orðið ástfangin af mér? Sagði hún það nokkurntíman eða er það enn ein helvítis lygin í þér? Gamli maðurinn leit þreytu- lega á son sinn: — Hún sagði það, Howard. Hún sagði það. Hann sneri sér að Macklyn og reyndi að brosa án árangurs: — Þú gætir notað krystalskúlu þessa Styles í þínu starfi, lögreglufor- ingi. Já, Christie var að leita að :mér. Hann kom til mín í klúbbn- um og sagði mér að fyrir ákveðna fjárupphæð skyldi hann segja mér hvar leki væri í kerfinu okkar. Ég trúði honum ekki. Ég :sagði honum að fara til andskot- ans. Hann sagðist geta sannað mér það, ef ég vildi koma með honum og vini hans á ákveðinn stað. Ég sagðist skyldi gera það. 'Fyrst vildi hann fá ávísun upp á fimmtíu þúsund dollara. Til hvers var ávísun? Ég gat kom- ið í veg fyrir að hún væri greidd. Hann sagðist skyldi taka þá á- hættu. Ef hann sannaði mér að það væri leki og ég sviki hann myndi hann segja CIA það, sem hann vissi. Ef hann gæti ekki sannað það væri mér í lófa lag- ið að koma í veg fyrir greiðslu á ávísuninni og við því gæti hann ekkert gert. Svo ég skrifaði ávís- unina og svo sagði hann mér hvert ferðinni væri heitið og mér féll allur ketill í eld. Gamli mað- urinn rétti úr sér: — Þaðan í frá er allt satt, sem ég sagði ykkur, ef þið setjið mig í Howards stað. Ég heyrði það allt- É’g sá það allt. Ég kom aftan að henni og tók af henni byssuna. Svo bað hún og betlaði og sagðist elska Howard og hún hefði myrt þessa tvo þorpara til að koma í veg fyrir að upp um hann kæmist og hann yrði að þola skaða og smán. Allan þann tíma ólgaði reiðin og sauð í mér. Ég dró hana niður undir bílastæði og ætlaði að fara með hana til lögreglunnar. Hún sleit sig lausa og ég náði henni aftur, það var eins og eitthvað spryngi í mér. Ég hafði tekið með mér byssu, vegna þess að ég treysti ekki Christie. Ég notaði skeftið á hana. Annars er þetta allt í einni rauðri þoku fyrir mér. — Tókstu svo veskin af mönn- unum til að koma í veg fyrir að við uppgötvuðum hverjir þeir væru? spurði Macklyn. — Ekki beinlínis. Ég tók þau vegna þess að ávísunin frá mér var í öðru þeirra. Ég hafði ekki tíma til að leita að henni. Ég var með stúlkuna á höndum mér. Hann vætti varirnar: — Eg hélt að hún væri dáin. Ég setti hana upp í bílinn og ók henni í grjó- námuna. Ég varð að vinna tíma áður en hún fyndist. Svo varð ég að ná mínum eigin bíl og Joe hjálpaði mér. Vertu ekki of harð- ur við Joe lögregluforingi. Hann er vinur; góður, tryggur vinur. Hann sneri sér við og leit á Ho- ward: — Þegar ég gat í kvöld fór ég á sjúkrahúsið og sagði Howard alla sólarsöguna eins og hún lagði sig- Ég neyddist til, vegna þess að Styles var kominn svo nærri sannleikanum. Ég leit þannig á málið, að ef Howard játaði myndi hann sennilega sleppa með lítinn eða engan dóm. Hann myndi fá Framhald á bls. 50. 34. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.