Vikan


Vikan - 29.08.1968, Side 49

Vikan - 29.08.1968, Side 49
HEILBRIGT Doris Day lifir líí'i smu á allt annan liátt en leik. rar almennt í Hollywood. Hún býr í Beverly Hills og sést þar gjarnan úti á götu að degi til, annaðhvort fótgang- andi eða á hjóli, en nær aldr- ei í bíl. Hún tekur mjög sjaldan þátt í samkvæmislífinu; sést næstum aldrei í hinum íburðarmiklu Hollywood-veizl- um, þar sem stórar og litlar stjörnur reyna að láta á sér bera og taka af sér myndir. Hún hef- ur andstyggð á öllu slíku. Hún er orðin 44 ára gömul, en hefur haldið vinsældum sínum ár eftir ár með því eina móti að vera hún sjálf. Það eitt er athyglisvert í borg eins og Hollywood. Hún lifir ósköp venjulegu og hversdagslegu lífi eins og hver annar borgari. Tvisvar í viku fer hún á markaðinn. Einu sinni í viku sækir hún móður sína og snæðir með henni hádegis- verð. Þegar hún hefur gert innkaup til heimilis- ins dag hvern fær hún sér kaffi og kökur á litlu veitingahúsi. Hún hefur mikinn áhuga á íþrótt- um og fer oft að horfa á baseballkappleiki ásamt eiginmanni sínum, Marthy Melcher. Sumir vilja halda því fram, að IDoris Day fari einförum og loki sig inni, en hún harðneit- ar því: — Eg er oi’tar á ferli í bænum en nokkur annár leikari, segir hún. Hins vegar lifi ég eðlilegu lífi eins og hver annar borgari, enekki öfgafullu og yfirborðskenndu lífi, eins og leikararnir gera almennt. Hverjum manni er nauðsynlegt að lifa ])ví lífi, sem honum er eðlilegt. Þetta er sérstaklega áríðandi hér í Hollywood, þar sem allir eru að rembast við að vera eitthvað annað en ])eir eru. Eg hef unnið hér í mörg ár og séð hvernig gáfað fólk hef- ur eyðiíagt sjálft sig og hæfi- leika sína. Það hefur ekki staðizt freistinguna að öðlast skjótan frama, en ákafinn og umstangið hefur verið svo mikið, að líf þessa fólks hefur gersamlega farið úr skorðum. Slikt leiðir til óhamingju og hefur orðið mörgum góðum leikara ör- agarík reynsla. Hjónaskilnaður, t augaáfall og mannskemmandi slúður einkennir líf leikaranna í Hollywood, en Doris Day hefur tekizt að sneiða lijá öllu ])essu. Hún lifir heil- brigðu lífi í hinum spillta heimi kvikmyndanna. 34. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.