Vikan - 29.08.1968, Page 50
PER SPARID
MED ÁSKRIFT
ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
VIIvAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL.
r
i
i
i
L
----KLIPPIÐ HER-------------------------------------.-----KLIPPIÐ HER------------
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
□ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blað á kr. 30,77.
□ 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað á kr. 28,85.
Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ógúst — 1. nóvember.
SKRIFIÐ GREINILEGA
NAFN
HEIMILI
POSTSTOÐ
HILMIR HF.
VIKAN
PÓSTHÓLF 533
SÍMAR:
36720 - 35320
SKIPHOLTÍ 33
REYKJAVÍK
n
i
i
i
■Jl
Hláturinn
Framhald af bls. 33
tíma til að ljúka sínu verki. Það
hafði verið leikið á hann, hann
hafði verið svikinn, hann var
fórnarlamb ótryggðar og pretta.
Ef hann segðist hafa gengið af
göflunum, þegar stúlkan reyndi
að flýja frá honum og barið hana
í bræðikasti — myndi enginn
hafa láð honum það mjög mikið.
Það gegndi öðru máli með mig.
Mér fannst ég ætti skilið að fá
ækifæri. Röddin var næstum
móðursýkisleg: — Mér bar að fá
tækifæri!
— Og allir, sem þú hefur und-
ir þumlinum dansa eftir þinni
pípu, sagði Peter. — Konungur-
inn skipar fyrir og þrælarnir
hlýða.
Síminn á borðinu hringdi og
Macklyn anzaði:
— Macklyn hér. Hann hlustaði
og muldraði síðan þakkir og lagði
tólið á. Hann leit hörkulega á þá
sem í herberginu voru: — Ungfrú
Landers dó fyrir um það bil tíu
mínútum, sagði hann. — Ákær-
an er morð, herra Delafield.
Hátt, snöggt hljóð brauzt fram
af vörum Howards og hann féll
niður á hnén, fól andlitið í hönd-
um sér....
Peter og Sandra sátu í hvíta
Jagúárnum á tunglskinsbjartri
hæðinni, þar sem Sandra hafði
endur fyrir löngu átt sína einu
hamingjustund með Howard.
Hún hafði viljað fara þangað
núna og Peter hafði ekki viljað
neita henni um það, vegna þess
að hún þarfnaðist félagsskapar af
einhverjum. Án þess að virða
Söndru viðlits hafði Howard far-
ið aftur til sjúkrahússins til að
vera sem næst Mary Landers og
gera það sem hann gæti gert fyr-
ir hana nú. Hafði hún ekki sagt
að hún elskaði hann? Hún hafði
hætt að leika á hann og hætt lífi
sínu til að bjarga honum, vegna
þess að hún var ástfangin af hon-
um- Howard hélt dauðahaldi í
það.
— Hann kemur ekki aftur til
mín, sagði Sandra og starði nið-
ur í silfrað vatnið.
— Sennilega ekki, sagði Peter.
•— Svo það er ekki annað en
að girða sig í brók og byrja upp
á nýtt, sagði Sandra. — Ég hefði
átt að gera það fyrir löngu. Mað-
ur getur víst ekki fengið þann
sem vill mann ekki.
— Það skiptir mestu máli hvar
þú byrjar Sandra, sagði Peter. —
Sá afbakaði skilningur sem þið
Howard byrjuðuð með, skilning-
ur fólksins sem ég kalla rang-
snúið fólk — er ekki réttur upp-
hafsstaður.
— Er hann verri en heimur
Sams — heimur valdanna, þar
sem tilgangurinn helgar meðalið.
Er ekki til einhversstaðar ein-
hver sómasamlegur millivegur?
Staður þar sem maður getur gef-
ið og þegið en reynir ekki að-
eins að grípa það sem maður get-
ur náð í?
Hann leit á hana:
— Ef til vill er þetta ekki verri
upphafsstaður en hver annar,
sagði hann.
-— Ef til vill er heldur ekki
úr vegi að hætta nú að leika yfir
sig gáfaðan spæjara, sagði hún.
— En hvernig kemst ég til þessa
sómasamlega staðar? Kemst ég
þangað ein? Hvernig á ég að
bera mig að?
— Það er ekki auðvelt, sagði
hann. — Þú byrjar að leita að
sannleikanum og það er ekki auð-
velt nú til dags. En hann er til.
— Viltu hjálpa mér að finna
hann, Peter?
Hann strauk henni um kinna
með handarbakinu.
— Ef þú vilt, sagði hann.
— Við skulum koma héðan,
Peter. Það fór hrollur um hana:
— Þessi staður er fortíðin.
Endir.
Moskvíts. . .
Framhald af bls. 9
frágangurinn víða groddalegur og
gerður óhrjólegri en efni standa til,
sums staðar sýnist ekki vera meiri
vinna eða tilkostnaður að gera hlut-
ina vel en illa.
Um margt er þessum óhrjáleika
þannig farið, að maður tekur ekki
eftir honum undir eins. En þegar
farið er að vera ( bdnum verður
þetta æ áleitnara auganu og ósjálf-
rátt fer maður að pota í ósómann.
Ekki ræður þetta þó úrslitum.
Minn dómur er sá, að Moskvits sé
á margan hátt með eigulegri smá-
bílum. Hann er gerður fyrir vonda
vegi og fer vel á þeim, svo er sagt
og svo er að sjá, sem hann þoli þá
mörgum bílum betur. Fljótt á litið
virðist heldur auðvelt að komast að
flestum hlutum til viðgerða í hon-
um, það er líka kostur. Það er ein-
staklega þægilegt að sitja í honum
og það er barnaleikur að stjórna
honum. Miðstöðin hefur sjálfsagt
verið prófuð í Síberíu ef dæma má
eftir því hitaroki, sem hún framleið-
ir. Þar að auki er bíllinn með þeim
ódýrari. Væri hann hljóðari, brems-
urnar léttari, gírskiftingin í gólfinu
og innréttingin eins og hægt væri
að hafa hana beiía með sömu fyrir-
höfn og efni, skaraði Moskvits fram
úr mörgum keppinautum slnum, sem
dýrari eru. Mér kæmi ekki á óvart,
þótt ég eignaðist einhvern tíma
Moskvits.
S
50 VIKAN
34. tbl.