Vikan


Vikan - 31.10.1968, Síða 2

Vikan - 31.10.1968, Síða 2
V_____________________________________________________________________________/ Öflugasta tækið Engin listgrein hefur átt eins erfitt uppdráttar hér á landi og kvikmyndagerð. Saga hennar er bæði stutt og fá- brotin: Oskar Gíslason, Loft- ur Guðmundsson, Ósvaldur Knudsen og fleiri ruddu brautina við frumstæð skil- yrði og mikla erfiðleika. Síð- an hefur hópur ungra manna helgað sig kvikmyndagerð: eytt dýrmætum árum og lagt í mikinn kostnað við að nema þessa listgrein, sem nýtur mestrar almenningshylli alls staðar í heiminum. Þrátt fyrir tilkomu ungra starfskrafta, sem ættu að hafa betri kunn- áttu í greininni en frumherj- arnir, er þróunin enn hægfara. Við erum langt á eftir ná- grannaþjóðum okkar; við stöndum verr að vígi í kvik- myndagerð en nokkurri ann- arri listgrein. Ástæðan er fyrst og fremst skortur á nauðsynlegu fjár- magni og starfsaðstöðu fyrir þá menn, sem vilja helga sig þessari listgrein. Sinnuleysi valdhafa bendir eindregið til þess, að menn geri sér ekki almennt ljóst, að kvikmynd- in er nú á dögum það tæki, sem nær til flestra hvað fræðslu og listsköpun snertir. Tímarnir hafa breytzt. Kvik- myndin er tjáningartæki nú- tímans, þótt vissulega séu bókmenntir, myndlist og aðr- ar listgreinar í fullu gildi. Margir spáðu því, að til- koma sjónvarpsins yrði ís- lenzkri kvikmyndagerð mikil lyftistöng. Stuðningi úr þeirri átt er þó naumast að vænta, meðan greiddar eru 20.000 kr. fyrir hálftíma kvikmynd, sem kostar hálfa milljón að fram- Ieiða. En sjónvarpið hefur sannað, hversu öflugt tæki kvikmyndin er orðin. Yfir hundrað þúsund manns geta samtímis horft á nýtt, íslenzkt listaverk, sem flutt er í sjón- varpinu. Hinn mikli kostnaður, sem fylgir kvikmyndagerð, verður líklega ævinlega erfiður ljár í þúfu hjá okkur sökum fá- mennisins. Þess vegna er enn þá brýnni þörf á stuðningi við þessa ungu listgrein. G.Gr. 2 VIKAN 43-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.