Vikan


Vikan - 31.10.1968, Qupperneq 6

Vikan - 31.10.1968, Qupperneq 6
r LJÓSAÚRVAL: Loftljós Veggljós Standlampar Borðlampar og ýmsar gjafavörur. HEIMILISTÆKI: Frystikistur Frystiskápar Kæliskápar Eldavélar og fleira. VERZLUNARTÆKI: Djúpfrystir Kæliborð Kælihillur Kæliklefar í þrem stærðum og fleira. Sendum gegn póstkröfu. RAFTÆKJAVERZLUN H. G. GuOiónsson Stigahlíð 45 - Suðurveri — Sími 37637 Gólfdúkur — plast, vinyl og línólíum. Postulins-veggflísar — stærSir 7V2xT5, Tlxll og 15x15 cm. Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baSgólfdúkur. Málningarvörur — frá Hörpu hf., Mólning hf. og Slippfél. Rvíkur. Teppi — ensk, þýzk, belgisk nylonteppi. Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóSur — br. 55 cm. VeggfóSur — br. 50 cm. DAGLEGT B Ristill - Vítiseldur? Lesandi spyr hvaða sjúkdóm- ur sé kallaður vítiseldur. Við höfum aldrei heyrt þetta nafn, en eftir lýsingunni, þá er þetta líklega það sem kallað er ristill (Herpes zoster), og gerir fyrst vart við sig með sárum verkjum, svo sárum að þeim er gjarnan lýst sem brennandi verkjum, öðrum megin á líkamanum, (búk, höfði eða limum). Sé læknis vitjað strax, sér hann oft fljótlega hvað er í uppsiglingu. Þessar kvalir geta varað í viku, áður en einkenni koma í ljós, en húðin er samt mjög aum og sár viðkomu. Svo koma útbrotin, sem eru smáar bólur eða blöðr- ur og undir þeim rauðir blettir, margir í hóp eða röðum, sem svo verða beltislaga, eftir þeim hluta líkamans, sem sjúkur er. Oftast byrjar þetta á bakinu og heldur áfram fram með annarri hliðinni fram á maga öðrum megin. En ristill getur komið fram víðar á líkamanum. Þessir út- brotablettir geta verið dreifðir og þeir geta líka verið það þétt- ir að þeir renni saman í eina heild. Það er glær vökvi í blöðr- unum, sem springa fljótt, verða svo að dökkri skorpu. Undir skorpunni eru oft djúp sár, sem geta skilið eftir ljót ör. Ef rannsakaðir eru sogæða- hnútar á veika staðnum, þá eru þeir oft bólgnir og sogæðarnar aumar. Sársaukinn heldur áfram þótt blöðrurnar séu sprungnar og skorpan dottin af. Hann gerir oft lengi vart við sig, og vikum, mánuðum, jafnvel árum síðar getur sársaukinn verið það HEILSUFAR slæmur að nota verður kvala- stillandi lyf. Sumir segja að þessir verkir geri helzt vart við sig við veðrabreytingar. Því fyrr sem leitað er til lækn- is, því fyrr ætti að ráðast bót á þessum sjúkdómi. En eins og áð- ur er sagt getur það tekið langan tíma, og örin geta verið ljót. Bæði börn og fullorðnir geta fengið ristil, en eldra fólk fær meiri kvalir og óþægindi. Ef ristillinn leggst á aðra hlið búksins eða limanna, þá verða eftirköstin ekki önnur en fyrr- nefnd ör, og þau er hægt að fyr- irbyggja ef nógu fljótt eru not- uð rétt lyf. Það getur verið verra að fá ritsil kringum augun. Þá geta komið örsmáar blöðrur á horn- himnu augans, sem þykknar og getur haft varanleg áhrif á sjón- ina. Ristill í hársverðinum er al- gengari hjá gömlu fólki. Það er ekki svo gott að lækna djúp sár og skorpna húð með smyrslum, nema að höfuð sjúklingsins sé rakað. Höfuðkvalirnar geta ver- ið mjög slæmar. Gamalt fólk, sem hefur fengið ristil í hár- svörðinn verður oft mjög slæmt á taugum. Nú á tímum er miklu betra að ráða við þennan sjúkdóm held- ur en áður, þegar lyf voru ekki eins margbreytileg og nú. Áður var ráðlagt að nota græðandi smyrsl. Að vísu er ekki enn fundið neitt lyf, sem lækn- ar vírusbólgur algerlega, en samt eru það betri og fleiri lyf, sem læknar hafa nú yfir að ráða. Þess utan eru kvalastillandi lyf orðin fleiri og betri en áður. ☆ V.______ 6 VIKAN 43. tbl. y

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.