Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 15
Þetta eru þrír ólíkir klæðnaðir. Cour-
regés sýnir þarna mikið smápils og
heldur sér við stígvélin ‘og hvítan lit.
Neðar er svo kjóll úr gullefninu
skemmtilega, málmur allt í gegn, en
samt mjúkt og þægilegt. Litlar perl-
ur á faldi, ermum og þríhyrning í
hálsmáli og vel stuttur, en svartir
sokkar eru aftur ákaflega mikið not-
aðir, jafnt að degi sem kvöldi. Þetta
er kjóll, sem allir gætu hugsað sér
að eiga. Neðst er svo rómantíkin í
algleymingi með svarta flauelinu,
nýju, víðu buxunum og prestakraga
úr organdi í hálsinn.
Myndirnar að ofan og neðan sýna
plastfötin, sem sumir telja táknræn
fyrir nútímann. Ég held bara að
konan vilji ekki vera neitt geim-
ferðatákn og hafi andstyggð á
hörðu, köldu plasti. Kjóllinn að of-
an tekur flestu fram hvað þetta
snertir; virðist vera allur úr upp-
hleyptu plasti. Ekki vildi ég klæð-
ast þessu, nema þá á tízkusýningu.
Það er enginn vafi á því, að flegna
tízkan er að vinna á, þótt ekki sé
gengið eins langt að vera í gagnsæju
að ofan, eins og sýnt var á fyrri síðu.
Þessi kjóll þekur svona rétt miðjuna,
en perlufestin á líklega að bæta það
upp og minnir einna helzt á hið
þekkta tilsvar Marylyn Monroe, að
hún svæfi 1 Channel 5!
Hálsmálið á buxnadragtinni hér að
neðan er allt annars eðlis, þótt fleg-
ið sé. Kjóllinn t. v. minnir á tízkuna
fyrir nokkrum áratugum, en þetta
hálsmál er nýtt.
Her er önnur tegund af flegn-
um kjól. Kvikmyndir hafa haft
úrslitaáhrif á tízkuna undan-
farið — hvaða kvikmynd skyldi
það verða í ár? Yrði það Romeó
og Júlía, yrði hin nýja stúlku-
myndi eitthvað á þessa leið.
Hverfur þessi nutimastulka,
kannski hálfnauðug, fyrir þeirri
yzt á síðunni hér á móti.
43. tbi. VIKAN u