Vikan


Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 17

Vikan - 31.10.1968, Blaðsíða 17
11 " 1 ■ ~ -'A - %' ■ ♦ 4 I»ótt tólf1 ár væxu ' liðin var Ircne jafn aðlaðandi og áður. ÖRDRATTUR UR SDGU JOHNS GALSWORTHY 5 HLUTI Soames vildi ganga frá skilnaSi Winifred systur sinnai strax, hann vildi ekki láta hana lenda í þeim vandræðum, sem hann hafði orðið fyrir. — ■f' '. «• r . . - .T<-- Timothy og auðvitað líka fyrir James, föður hans. Það var gott að Roger hafði sloppið. við þær áhyggjur, það fannst Juley frænku að minnsta kosti. Það hrökk tár úr öðru auga hennar við tilhugsunina. Soames drakk te og borðaði þrjár af makkarónukökum systr- anna, sem alltaf voru á boðstólum hjá þeim. Bros hans var orðið svolítið stirðnað í munnvikjunum. Það var furðulegt hvað þessi fjölskylda hans gat verið smáborg- araleg, og þó var þetta einhver auðugasta fjölskyida Lundúnaborgar. Juley frænka malaði áfram. Hafði Soames heyrt nokkuð frá Irenu? Það var sagt að Jolyon hefði arfleitt hana að 15.000 pundum. Vissi Soames að Jo frændi hans var búinn að missa konuna? Hann vissi þó altént að Jo var fjárhaldsmaður Irenu? Soames hristi höfuðið. Iiann vissi þetta allt, hafði vitað það 1 mörg ár, en hann vildi ekki kannast við að hann hefði nokkurn áhuga á því. Hann hafði ekki séð Jo, síðan kvöldið sem Bosinney lézt. Hann stóð snöggt á fætur. Hann þoldi ekki þetta skvaldur lengur. Frænkurnar höfðu hreyft við þeim málum, sem voru efst í huga hans, og hann gat ekki talað um það við þær . Það að hinn léttúðugi og samvizkulausi Monty Dartie bjó ennþá í húsi því sem hann flutti inn í fyrir tuttugu árum, var eingöngu því að þakka að tengdafaðir hans, James Forsy.te, hafði alltaf borg- að húsaleiguna, skatta og öll opinber gjöld fyrir hann. Á þennan einfalda, en nokkuð kostnaðarsama hátt, hafði James tryggl Wini- fred dóttur sinni og börnum hennar nokkurn vegin örugga afkomu. Það var huggun fyrir Winifred að hafa þak yfir höfuðið. Maður hennar hafði alltaf verið forfallinn í hestaveðmál og allskonar fjárhættuspil. Soames hitti Val systurson sinn fyrir utan hús systur sinnar, og fylgdist með honum inn. Hann fékk allt í einu góða hugmynd, sem var afleiðing af skvaldri systranna. Hann ætlaði að fara út til Robin Hill, og tala við Jo. Hann var fjárhaldsmaður Irenu. Það gat verið gott að nota Val, til þess að hafa ástæðu til heimsóknar- innar. — Þú átt frænda, sem þú hefir aldrei séð, sagði hann við Val á leiðinni inn. — Langar þig ekki til að koma með mér á morgun og heimsækja Jo Forsyte? Sonur hans er við nám í Oxford, en hann hlýtur að vera heima núna. Val sýndi engan áhuga á þessu, en Soames flýtti sér að segja: — Ég sæki þig þá á morgun, eftir morgunverð .... Winifred reis strax upp frá skrifborði sínu og gekk t.il móts við bróður sinn. — Monty er stunginn af til Buenos Aires, með þessum kvenmanni, og hann tók perlurnar mínar með sér, sagði hún með hljómlausri rödd. Soames var lögfræðingur hennar og hún var vön því að snúa sér til hans með vandræði sín. — Ég skal gera ráðstafanir til að fá skilnað í gegn, sagði Soames ákveðinn. — Hefir Monty lagt á þig hendur? Ekki það! En hann hleypur á brott frá þér. Við krefjumst þess fyrir dómstólunum að hann snúi strax heim. Ef hann gerir það ekki og það er sennilegast, þá fær þú löglegan skilnað eftir hálft ár. Talaðu ekki um þetta við nokkra sál, og borgaðu ekki skuldir hans. — Þetta er allt svo andstyggilegt, sagði Winifred og andvarpaði. Þrátt fyrir alia erfiðleika í sambúðinni við Monty, þá saknaði hún hans. Það var eins og tilveran yrði litlaus. Hún var skilin eftir, ein og sorgbitin, og eignalaus með öllu. Framhald á bls. 47. 43. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.