Vikan


Vikan - 27.03.1969, Page 3

Vikan - 27.03.1969, Page 3
Tþessari viku PÓSTURINN ..................... DAGLEGT HEILSUFAR ............. MIG DREYMDI ................... UNGA KYNSLÓÐIN................. MEÐ ÁSTARKVEÐJU FRÁ DOMINIC.... EFTIR EYRANU .................. MEÐ BROS Á VÖR ................ PALLADÓMUR EFTIR LÚPUS ........ ANGELIQUE í VESTURHEIMI........ FRJÁLST SKOTLAND OG NORRÆNT, KELT- NESKT BANDALAG ................ MAÐURINN OG FJALLIÐ ........... VIÐ HVERJA SNERTINGU HANS ..... VORTÍZKAN 1969 . .............. . . Bls. 4 . . Bls. 6 . . Bls. 7 . . Bls. 8 . . Bls. 12 . . Bls. 14 . . Bls. 16 .. Bls. 18 . . Bls. 20 T- . . BIs. 22 BIs. 24 . . Bls. 28 . . Bls. 30 VÍSUR VIKUNNAR: Margur lítið úr býtum ber við basl sitt á hauðri og legi bankar og kaupmenn berja sér bæði á nótt sem degi og finna eigi við ráðleysi því sem ríkir hér ráð sem að duga megi. Bændur telja sér búið grand bölsýni fólkið lamar verkföllum hóta vítt um land valkyrjur framtakssamar með sigð og hamar viðreisnarduggan virðist strand og varla til mikils framar. FORSÍÐAN: Þá er liðið að lokum fegurðarsamkeppni unga fólksins að þessu sinni, sem Vikan og Karnabær gangast fyrir í þriðja sinn. í þessu blaði kynnum við allar stúlkurn- ar sex í einu. Myndir af þeim eru á blaðsíðum 8, 9, 10 og 11. Hver verður fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1969? Svarið við því fæst í Austurbæjarbíói 1. apríl. (Ljósm. Óli Páll). VIKAN — ÚTGEFANDI: IIILMIR HF. Ritstjóri: Sigurffur Hreiffar. Meffritstjóri: Gylfi Grön- dal. Blaffamaffur: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friffriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug- lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. i . -rrvs~rrri •. • Ritstjórn, auglýsingar, afgreiösla og dreifing: Skipholti 33. Simar 35320—35323. Pósthólf 523. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega. í næstu Viku verður sagt frá 27 mismunandi hárgreiðslum, sem allar hafa það sér til ágætis, að konur geta sjálfar útbúið þær heima hjá sér og þurfa ekki að fara á hár- greiðslustofu. Geir Hallsteinsson er tví- mælalaust fremsti handknatt- leiksmaður okkar, enda var hann kjörinn „íþróttamaður ársins 1968“. Jón Birgir Pét- ursson, fréttastjóri Vísis, hef- ur skrifað grein um Geir fyr- ir Vikuna, þar sem hann rek- ur hinn glæsilega feril Geirs í handknattleik. Einnig verð- ur forsíða næsta blaðs skemmtileg teikning af Geir, sem Baltasar hefur teiknað. Herdís Egilsdóttir hefuc nokkrum sinnum skrifað og teiknað sögur fyrir yngstu lesendurna. Þessar sögur hafa notið mikilla vinsælda. Nú hefur Herdís samið nýja sögu fyrir Vikuna og nefnist hún Músétna páskaeggið. Efnið er tímabært, þar sem næsta blað er síðasta blað fyrir páska. Flest eldra fólkið þekkir,. kvikmyndina Á hverfanda hveli, en hún er einhver vin- sælasta kvikmynd, sem gerð hefur verið bæði fyrr og síð- ar. Um þessar mundir eru 30 ár síðan hún var frumsýnd. Aðalleikendurnir voru Clark Gable, Vivian Leigh, Leslie Howard og Olivia De Havil- land. Þeir eru nú allir látnir, nema Olivia De Havilland og í næsta blaði segjum við frá henni og hinni minnisstæðu mynd, Á hverfanda hveli. Þá er stutt grein um stað- gengil Roger Moore, Dýr- lingsins, — manninn, sem vinnur öll erfiðustu afreks- verkin fyrir hann, og ótal- margt fleira fróðlegt og skemmtilegt efni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.