Vikan - 27.03.1969, Page 5
heldur aðeins falleg konu-
mynd. Hitt er svo kannski
rétt, að fyrir svo sem fimm
árum hefði myndin þótt
djörf, af því að ekki var
sett fyrir geirvörtur stúlk-
unnar. En tímarnir breyt-
ast, og flestir mennimir
með, sá kreddutrúarlegi
hugsunarháttur að konu-
brjóst séu ósiðleg og megi
hvergi sjást er á hröðu
undanlialdi, án þess þó að
siðferði fari versnandi að
sama skapi. Við erum því
ekki sammála, að „sex“,
eða kynferðismál, séu gild-
ari þáttur í vandamálum
unglinganna nú en áður
var. Þvert á móti eiga ung-
lingar nú á dögum greið-
ari aðgang að hvers konar
kynferðisfræðslu en nokk-
ur kynslóð á undan þeim.
Hver sá unglingur, sem
um það skeytir, getur leit-
að sér raunhæfrar fræðslu
um vandamál og ábyrgð
kynlífsins bæði sálarlega
og líkamlega, og svo er
fyrir þakkandi, að það
þykir ekki lengur hneyksl-
anlegt að vilja fræðast og
vita um þau mál. — Varð-
andi það, sem þú segir um
stuttu tízkuna og siðferðið
í Japan er þvi til að svara,
að Japan er nú á mótum
ævafornrar og kreddu-
fastrar austrænnar menn-
ingar og frjálsari vest-
rænni áhrifa, slíkur sam-
sláttur menninga hefur
oftast í för með sér upp-
lausn og vandræðaástand,
sem ólíklegustu neistar
geta gert að báli. Stutt
tízka, sem í gróinni menn-
ingu er björt, létt og fagn-
andi og í hæsta máta sið-
söm, getur við slíkar að-
stæður orðið cldfim og
varasöm.
Ekki mælum við klámi
bót, í neinni mynd, og til
kunna að vera á íslandi
verzlanir, sem hafa það á
boöstólum í leynum. En
það, sem við vitum af þeim
efnum hér heima, er minna
en taki því að tala um í
samanburði við það, sem
frændur vorir á Norður-
löndum, einkum Svíar og
Danir, verða að þola. Það
er ekki nóg með, að klám-
bókabúðir séu með endi-
löngu Strikinu í Kaup-
mannahöfn til dæmis,
heldur er bersögli og
„dirfska" alisráðandi meira
að segja í dagblöðunum.
Þær frásagnir, sem hér á
landi þættu aðeins skúma-
skotavarningur, eru þar
daglegt brauð á síðum
þeirra dagblaða, sem ætl-
uð eru fólki beggja kynja
á öllum aldri jafnt, sér til
uppbyggingar og fróðleiks.
Sýningar klámkvikmynda
eru þar auglýstar á sama
liátt og þvottaefni hér-
lendis, og þannig mætti
lengi telja. Það er því ekki
að undra, þótt einhverjum
dönskum unglingum of-
bjóði, kannski er betra að
„demonstrasjónir" þeirra
beinist að slíkum hlutum
en ýmsu öðru. Og langt
eigum við í land með klám-
ið, svo það sé á minnsta
hátt sambærilegt við það
sem í Danmörku gerist. —
Og Vikan verður ekki hér
eftir fremur en áður boð-
beri klámsins. Við erum
einmitt að gera það, sem
þú biður okkur: Að hjálpa
ykkur, sem reynið að
skapa unglingunum lioll
uppvaxtarskilyrði, heil-
brigðar hugsjónir og sjálfs-
aga. Einn liður í því er
einmitt sá, að kenna þeim
að skilja á milli þess sem
er fallcgt og vel gert, og
þess sem aðeins er klúrt
og sóðalegt. Og við getum
nú sem hingað til heilshug-
ar tekið undir orð þín:
Burt með allt sorp’.
VEÐMÁL UM ÍBÚAFJÖLDA
Kæri Póstur!
Við gerum þig hér með
að dómara í veðmáli. Deil-
an stendur um það, hve
margir íbúar séu á Siglu-
firði. Talan þarf ekki að
vera hundrað prósent ná-
kvæm, en helzt má ekki
skakka um meira en
nokkra tugi. Við treystum
þér til að leysa þennan
vanda fyrir okkur.
Kærar þakkir.
Gamlir Siglfirðingar.
Tölfræðihandbókin var
gefin út af Hagstofu ís-
lands í fyrra og þar eru
nákvæmar skýrslur yfir
íbúafjölda á einstökum
stöðum á landinu. Þar er
sagt, að íbúar á Siglufirði
séu 2573, en talan er frá
árinu 1963, svo að vel get-
ur verið að hún hafi
breytzt eitthvað síðan. —
Nýrri tölu höfum við því
miður ekki.
HaCOHt* 5UPUR
Svissneskar súpur
Ekkert land stendurframar í gestapjónustu
og matargerð en SVISS.
HACO súpur eru fra Sviss
Hámark gœða
Vegetable de Luxe
Chickcn Noodle
Primovera
Leek
Oxtoil
Celery
Asparagus
Mushroom
Tomoto
13 tbl- VIKAN 5
NVJOiSVONlStfOnv®