Vikan - 27.03.1969, Side 6
"'N
W /n/^^frNX li ‘fl
SKARTGRIPIR
ywy^i^ fc=,n
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist.
- SIGMAI OC PÁLMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355 og
Laugaveg 70. Sími 24910.
KAKTUS OG
LÁTINN MAÐUR
í KVIKMYNDA-
HÚSI
Kæra Vika mín:
Ég ætla að biðja þig að
ráða þessa drauma fyrir
mig. Eru þeir nokkuð
merkilegir?
Sá fyrir er svona:
Mig dreymdi, að ég væri
í ókunnu húsi. Ég sat þar
inni í stofu. Allt í einu lít
ég í lófana á mér og sé, að
þeir eru alþaktir einhverju
grænu og brúnu. Mér
sýndust það vera pínulitlir
kaktusar.
Ég reyndi að reyta þetta
úr lófunum á mér og
fleygði því í blómapott,
sem var þarna. Svo fór ég
að velta því fyrir mér,
.hvað fólk hlyti að verða
undrandi, ef þessi ófögn-
uður héldi áfram að vaxa
í lófunum á mér!
Hinn draumurinn er á
þessa leið:
Mig dreymdi ,að ég væri
í bíó í Reykjavík. Ég var
með systur minni, sem er
15 ára. Það var uppselt,
nema hvað eitt sæti við
hliðina á mér var autt.
Hinum megin við mig sat
systir mín.
Þegar myndin var rétt
byrjuð, kemur gamall
maður inn. (Hann er ný-
dáinn og ég kannaðist
ágætlega við hann). Hann
sezt við hliðina á mér, en
ég gríp í systur mína og
öskra. Síðan féll ég í öng-
vit. Liltu síðar er ég aftur
kominn til meðvitundar og
fer að hugsa um, hvernig
á því standi, að ég hafi séð
látinn mann.
Svo vaknaði ég. Ég man
þennan draum mjög vel.
Jæja, bless
og fyrirfram þökk,
Deitla.
Kaktusar eru ævinlega
fyrir erfiffleikum, en þó
ekki mjög stórvægilegum.
Hins vegar eru mjög skipt-
ar skoffanir um þaff, hvaff
það merki aff dreyma látiff
fólk. Sumir álíta drauma
um dautt fólk vera fyrir
því aff vinur svíki mann í
tryggffum, en affrir, aff þaff
sé gott aff dreyma framlið-
iff fólk. Þá sé dreymand-
anum óhætt aff halda
áfram stefnu sinni óhikaff,
því aff duld öfl séu honum
til trausts og halds. Við
álítum, aff draumur þinn
um gamla manninn í kvik-
myndahúsinu sé fyrir góffu
þótt þú hafir öskraff og
falliff í öngvit.
MÁTULEGAR
BUXUR
Kæri draumráðandi!
Nú er röðin komin að
mér að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, sem mig
dreymdi í fyrrinótt. Mér
finnst hann vera tákn-
rænn. Mig dreymdi eftir-
farandi:
Ég var stödd í dimmu
herbergi og fannst vin-
kona mín, sem við skulum
kalla A, vera stödd þarna
rétt hjá eða alveg á næstu
grösum. Þarna lágu buxur,
sem hún á. Allt í einu
dettur mér í hug að máta
þær. Mér fannst þær vera
alltof stórar, því að A er
stærri en ég. En þegar ég
er komin í þær, eru þær
alveg mátulegar. Þá hugsa
ég: „Mér sem fannst A
vera stærri en ég!“ Þegar
hér var komið sögu, fannst
mér vera allt í lagi, þótt ég
væri í buxunum og flýtti
mér ekkert úr þeim.
Ég gleymdi að taka fram
áðan, að þegar ég var að
máta buxurnar, flýtti ég
mér og vildi ekki láta
neinn sjá mig í þeim, fyrr
en ég sá, að þær pössuðu.
Með fyrirfram þökk fyr-
ir ráðninguna.
G.G.L. 22.
Líklega berff þú mikla
virffingu fyrir vinkonu
þinni og lítur upp til henn-
ar. En þessi draumur tákn-
ar, að þú munir innan
skamms komast aff raun
um, aff þú sért ýmsum
kostum og hæfileikum
gædd engu síffur en hún
og getir sem hægast „farið
í föti nhennar" ef þú
vilt.
6 VIKAN
13. tbl.